Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 102
102
styrktarmönnum safnsins. II. kom síðar í viðbót og enn síðar þriðja heftið, sem
Sigurður Vigfússon samdi og Reykjavíkur-deild Bókmentafélagsins gaf út. Svo
féll það þarfa útgáfufyrirtæki niður. — Sbr. enn fremur næsta bréf (nr. 7).
7. Bls. 55. Um Hafurbjarnarstaðafund er skýrsla á bls. 67—78 í Skýrslu um
Forngrs. II. — BIs. 56. »Baldri hinum góða«, þ. e. Baldur, mánaðar- og hálfs-
mánaðar-blað; kom út 1868— 70. Skýrsla (séra S. B. Sivertsens á Útskálum) »um
dysjarnar á Hafurbjamarstöðum« er i I. árg., 6. tbl. Er þess getið þar til, að
þarna hafi verið dysjaðir fylgdarmenn Kristjáns skrifara, þeir er Norðlendingar
drápu á Kirkjubóli 1551. — Hildishaugur var (og heitir svo enn) fyrir austan
Kirkjubæ á Síðu, sjá Kr. Kálund, Hist. Topogr. Beskrivelse, II., bls. 316—17, Árb.
Fornlfél. 1894, bls. 19 (sbr. einnig 1888—92, bls. 67—68), og Skýrslu um Forngrs.
I. , bls. 46 og 50. — »Atgeir, sem fannst í Skagafirði«; hann er nr. 585, fannst við
vegargerð á Vatnsskarði og gefinn safninu af Jóni Árnasyni, bónda á Víðimýri,
6. júlí 1868. — Um Hafsteinsbúð sjá »Þegar Reykjavík var fjórtán vetra«, Safn
til sögu íslands, V. b., nr. 2, bls. 53—54. Hún er nú hluti af verzlunarhúsi
þeirra Johnsons & Kaabers við Hafnarstræti. Var kend við eigandann, N. Chr.
Havsteen. — Um bygging Skólavörðunnar sjá Andvara XXXIII. ár, bls. 9—12,
og Þjóðólf, XX., 45, sem þar er vitnað í. — »Skothúsið« stendur enn, er á horn-
inu við Skothúsveg og Suðurgötu. — Hinn 8 álna álna breiði vegur »fram yfir
öll túnin« er Vesturgata, vestari hluti hennar. — Vegir þeir sem nefndir eru neðst
á bls. 56 og efst á bls. 57, eru nú lagðir niður að mestu, en sjást þó vel enn.
Sigurður minnist en á þessa vegi í næsta bréfi, bls. 59. — Bls. 57. Ritgerð Br.
J. kom út i Árb. Fornlfél. 1884—85. — Ingimundur krókur var Jónsson. — Bls.
58. Ingimundur dó (»varð bráðkvaddur«) 2. júlí; hann var þá 61 árs gamall.
8. Bls. 59. Vegurinn, sbr. bls. 56; þ. e. vegurinn yfir Skólavörðuholtið og
suður á Öskjuhlið; sbr. 15. bréf, bls. 74 hér fyrir aftan. Suðaustan í holtinu var
hann tekinn allur upp er þar var tekið grjót til uppfyllingar við höfnina, en
norðvestan í hlíðinni var hann aflagður er gerður var annar vegur yfir hana
austar, sá er nú er farinn; þó sést hinn eldri vel, og sömuleiðis hinn gamli
reiðvegur, sem er milli akveganna.
X. Bls. 60. »Vorsár«, þ. e. J. J. A. Vorsaae, forstöðumaður þjóðminjasafns
Dana, um eitt skeið ráðherra, ágætur safnamaður og visindamaður, f. 1821, d.
1885; hann tók við stjórn safnsins (Oldnordisk Museum) eftir C. J. Thomsen 1865.
— Strunk, þ. e. Chr. Ad. Fr. Strunk, safnamaður, f. 1816, d. 1888. Varð »inspektör«
við Oldn. Mus. 1866, en starfsmaður við það 50 ár alls. — Útdrátturinn úr »cata-
logum« safnsins var aldrei gerður, — fyr en að eg gerði lýsingar á íslenzku
gripunum í safninu 1918. — Fornleifalýsingar Jónasar Hallgrímssonar eru í
handrs. J. S. í Landsbs. 123—126 4to. — »300 rdl.«; forstöðumenn Forngripa-
safnsins sendu alþingi 1867 bænarskrá um styrk, og alþingi konungi. Afsvar var
ekki komið er Jón skrifaði þetta vor, en kom næsta sumar; sbr. Árb. Fornlfél.
1912, bls. 6—7. — Bls. 61. »Ármanni«, þ. e. tímaritinu »Árm. á alþingi«. —
Rektor, þ. e. prófessor Bjarai Jónsson; hann dó í Höfn 5 dögum eftir að þetta
bréf var skrifað. — »Vísur Bjarna skálda«, þ. e. Aldasöngur; sjá um hann í
ritinu »Menn og menntir« eftir Pál E. Ólason, III., 757, og IV.; þar er gerst sagt
frá Bjarna, bls. 707—728.