Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 108

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 108
Skýrsla. I. Aðalfundur 1929. Hann var haldinn í lestrarsal Þjóðskjalasafnsins laugardaginn 5. október, kl. 6 síðdegis. Formaður minntist 4 félagsmanna, er Iátist hafa síðan aðalfundur var haldinn í fyrra, þeirra próf. Hjálmars Falks, Halldórs Briems, Jóns Guðmundssonar á Ægisíðu og Þórarins G. Árnason í Miðhúsum í Reykhólasveit. — Tóku fundarmenn undir það með því að standa upp. Formaður skýrði frá framkvæmdum félagsins á liðnu ári og gat þess um leið, að árbók þessa árs væri nær því fullprentuð. Gat hann þess enn fremur, að ritgerð eftir Margeir Jónsson um bæjanöfn í Eyjafjarðarsýslu yrði fylgirit með árbók þessa árs. Síðan skýrði hann frá fjárhag félagsins og las upp reikning þess. Þá voru kosnir embættismenn félagsins, stjórn, endurskoðendur og varastjórn; voru þeir allir endurkosnir, er verið höfðu: Formaður Matthías Þórðarson, skrifari Ólafur Lárusson, féhirðir séra Magnús Helgason; endurskoðendur Sigurður Þórðarson og Eggert Claessen; varaformaður séra Magnús Helgason, varaskrifari dr. Páll E. Ólason og varaféhirðir Pétur Halldórsson. — í fulltrúaráð voru þeir þrír endurkosnir til 4 ára, er úr skyldu ganga að lögum: Dr. Hannes Þorsteinsson, dr. Páll E. Ólason og Ólafur Lárusson. Formaður minnti á það, að 8. nóv. næstkomandi væri félagið 50 ára gamalt, og kvað fulltrúaráðið leggja það til, að félagið hefði samkomu þann dag. Var fundurinn því samþykkur og gat formaður þess þá, að fulltrúaráðið myndi ráðgast um hvað gert skyldi til hátiða- brigða þann dag. Þá leitaði formaður álits fundarmanna um það, hvort félagið ætti að ráðast í útgáfu hinna gömlu sýslulýsinga og sóknalýsinga. Urðu nokkrar umræður um það mál og starf félagsins í framtíðinni yfirleitt. Var engin samþykkt gerð á fundinum í þessa átt, en málinu vísað til fulltrúaráðsins til frekari athugunar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.