Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 24
GÍSLI GESTSSON
HVALBEINSSPJALD MEÐ KROSS-
FESTINGARMYND
Fyrir nokkru kom Emil Ásgeirsson, bóndi í Gröf í Hrunamanna-
hreppi, í Þjóðminjasafnið; þar tók hann upp úr föggum sínum
óvenjulegan hlut. Það var fornlegt hvalbeinsspjald, slétt á bakhlið,
en að framan var skorin á það krossfestingarmynd. Myndin er lágt
upphleypt, álíka og brúnir spjaldsins, sem mynda ramma um hana.
Spjaldið er að hæð 22 sm, breidd efst 15 sm og neðst 16 sm, þykkt
0,7 sm — 1,2 sm, ekki mjög nákvæmt skorið. Ramminn er tvístrik-
aður, og koma þá fram þrjár rendur, og er miðröndin breiðust.
Minnir þetta dálítið á blindþrykkingu á bókarspjaldi. Gat hefir verið
í gegnum miðjan rannnann efst, eflaust til að hengja spjaldið á
nagla, en nú er þar komið skarð vegna slits. Ekki er unnt að sj á hvort
gatið hefir verið á spjaldinu frá upphafi. Á spjaldinu er upphleypt
krossmark, og er krossinn ekki alveg á því miðju, og auk þess hall-
ast hann lítið eitt. Armar krossins eru 1,1 sm—1,3 sm á breidd. Þver-
álmurnar eru mislangar, hin hægri1 4,7 sm, en hin vinstri 5,2 sm.
Álman ofan þvertrés er aðeins 2,4 sm löng, en stofn trésins neðan
þverálmu er 13,3 sm hár.
Á krossinum er Kristsmynd, og ber Kristur þyrnikórónu og einfalt
lendaklæði, borða, sem leggst á misvíxl framan á líkamanum. Fætur
eru samhliða, en þó liggur hægri il á vinstri rist og eru fætur negldir
á krosstréð með einum nagla. Kristur er með stuttklippt hökuskegg,
rakaður í kringum munninn; hann ber ekki geislabaug. Sitt til hvorr-
ar hliðar við krossinn standa María og Jóhannes. Þau eru bæði með
geislabauga, í skósíðum klæðum með miklum, en dálítið stirðlegum
fellingum. María stendur til hægri handar Kristi. Yzt klæða er hún
í skikkju, sem virðist vera með áfastri hettu og er skikkjan tekin
saman undir höku. Undir skikkjunni sést kyrtill, en þó er þetta óljóst
og renna klæðin nokkuð saman á myndinni. María virðist vera með
bera arma, hún leggur hendur saman á brjósti. Jóhannes er líkt
klæddur og María, en fellingarnar í klæðum hans eru einfaldari.
1 Hér er hægri og vinstri notað eins og í skjaldarmerkjafræði, eða miðað við
Kristsmyndina, hægri hönd Krists er þá negld á hægri arm krossins.