Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 27
SVEINBJÖRN RAFNSSON
KIRKJA FRA SIÐMIÐÖLDUM AÐ VARMÁ
1. Rannsókn húsaleifanna og lýsing þeirra.
Rannsókn hóls eins í túni hins forna Varmárbæjar í Mosfellssveit,
Kjósarsýslu, fór fram á sumrinu 1968. Tilefni rannsóknarinnar var
að fyrirhuguð var skólabygging mjög nærri hólnum og ekki einsýnt
hvort hann mundi sleppa óskaddaður undan þeim framkvæmdum.
Nú var kunnugt af Fornbréfasafni að kirkja var að Varmá a. m. k.
siðari hluta miðalda. Því var það sem Þór Magnússon, núverandi þjóð-
minjavörður, gerði í júníbyrjun 1968 könnunargröft á einni dagstund
í hól þennan, sem honum þótti einna líklegastur til þess að vera hið
gamla kirkjustæði þarna við bæjarrústirnar. Varð þá fyrir honum
beinhnúta á u. þ. b. eins metra dýpi frá yfirborði hólsins. Var beinið
fært prófessor Jóni Steffensen, er skar úr um að hér væri um manna-
bein að ræða. Þannig voru nú sterkar líkur fyrir því að kirkjutóft lægi
í hólnum. Litlu síðar hófu greinarhöfundur og Helgi Jónsson forn-
fræðastúdent rannsókn á þessum stað á vegum Þjóðminjasafnsins.
Stóð sú rannsókn yfir til ágústloka sama sumar. Var þá lítið eitt eftir
af mælingum. Sumarið 1969, hinn 6. ágúst, fóru greinarhöfundur og
Gísli Gestsson safnvörður að Varmá og luku því litla sem eftir var
á einni dagstund. Skýrt skal þó tekið fram, að ekki var allsstaðar
gi-afið í botn á óhreyft undir rústum þessum svo sem sést á lóðskurð-
arteikningum. Kom þar einkum til, að við það hefði hin vandaða
steinhleðsla undir kirkjunni verið gjöreyðilögð og í öðru lagi var ljóst
af þeim stöðum þar sem í botn var grafið, að eftirtekja yrði mjög rýr
af slíkri rannsókn. Verði nú ekki skólabyggingin byggð beint ofan í
tóftina, er óhætt að hylja hana mold og geyma þannig í jörð að mestu
óskemmda.
Sem áður segir stóð hóll þessi í bæjartúninu (1. mynd). Allmikill
halli er til suðurs og suðausturs niður að ánni í háum malarás. 1 þeim
halla hafa hús Varmárbæjarins mörg staðið. Uppi á ásnum hefur
gamli þjóðvegurinn legið um og niður af honum til norðausturs um