Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Blaðsíða 1
GÍSLI GESTSSON - LILJA ÁRNADÓTTIR
KÚABÓT f ÁLFTAVERI VII
Fundaskrá
Margir hlutir komu í ljós við uppgröft-
inn og verða þeir allir taldir upp. Ýmsir
þeirra eru merkir og auðvelt cr að hugsa
sér, að einhverjum vcrði gerð betri skil,
þó síðar verði.
Þeir munir sem fundust í sömu tótdnni
eru taldir upp í þcirri röð, sem þcir
fundust. Fundanúmerin eru fjögurra stafa
og táknar fyrsta talan árið, sem hluturinn
fannst en hinir þrír tölumerkið frá því ári.
Alls eru þetta 564 tölusett númer.
Öll mál eru tilgreind í centimetrum.
Umfjöllun urn eftirtalda gripi cr eftir
Gísla Gestsson: 2028, 2062-2065, 2067,
2068, 2070-2076, 2078, 2080, 2089, 2096,
2097, 2102, 2109 a, b, 2142, 2144, 2157-
2159.
Eftir að uppgrefti var lokið konr Þórður
Tómasson safnstjóri í Skógum í Kúabót og
hirti lausafundi, gripina 7001-7010.
Futidið í A (stofuj
2028. Bogið trc. L. 83,5 cm, br. 12,5
cm, þ. 8,0 cm. Tréð gæti sem best hafa
verið yfir dyrum, sem þá hafa aðeins vcrið
41,5 cm víðar. Á trénu er ein slétt hlið og
á henni er grunnt einfalt strik, sem fylgir
neðri brún hennar og er þá gert ráð fyrir
að kryppa bogans snúi upp. Neðri hlið
bogans er einnig slétt tilhöggin og þar er
sams konar strik, sem fylgir sömu brún og
hitt strikið. Til beggja cnda að neðan eru
gerðir „láréttir" fletir og þar eru göt í
gegnum bogaendana og hefir boginn lík-
lega verið negldur ofan á tvö tré eða
(dyra)stafi. Leifar af trénöglum eru enn í
D
götunum. Að ofan er boginn einnig til-
högginn, og eru skáfledr á báðum endum
og á þeim ofanverðum eru götin fyrir tré-
naglana til fcsdngar bogans niður á dyra-
stafi. Fjórða hliðin virðist minna tilsniðin,
en þó er láréttur stallur á henni cfst og
víðar sjást á henni axarför.
Boginn er svartur af sóti á öllum hliðum
nema að ofan. Einnig eru sléttu fletirnir
bæði að ofan og neðan til beggja enda lítt
sótugir og virðast þeir hafa fallið óná-
kvænrlega að tré.
Talsvcrður fúi er í trénu, einkum við
annað naglagatið og mcst þó á sléttu hlið-
inni, aðallega í miðju.
Fundið um 1,60 m austur frá dyrum til
skála.
2029. Fjalhögg. Var austur frá dyrum til
skála.
2030. Flauskúpa úr litlu dýri. Var í
rofurn í norðvesturhorninu.
2031. Sýni af barnamold. Var yfir gólfi.
2035. Sýnishorn af tré. L. 19,9, br. 4,2
þ. 3,0. Úr stofu.
2042. Eirþynna með gati. Stærð
5,4 x 3,5. Ferköntuð, aflöng þynna með
tveimur götum við annan endann. Úr
rofum í stofu.
2043. Flatur, aflangur hlutur úr beini. L.
6,2, br. 1,9, þ. 0,25. Önnur hliðin er kúpt,
cn hin flöt og á henni sjást merki eftir sög.
Brúnir eru ckki samsíða. Göt eru boruð í