Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Blaðsíða 78
140
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
landi um 1720, en þetta mið-
ast við hvcnær síðast er sagt
frá þessari reikningsaðferð í
samtíma stærðfræðibókum.
Ástæðan fyrir því að notkun
reikningspeninganna leggst af
er meðal annars sú að notkun
á pappír varð æ algcngari og
þótti því bctra að rcikna
skriflega á pappír og geyma
þar með útreikninginn. Loks
ber að hafa í huga að arabískir tölustafir ryðja sér til rúms og koma í
stað rómversku tölustafanna, sem í raun eru bókstafir, og línureikningur
er hafður til einföldunar á meðferð rómversku talnanna.
Undir lok þess tíma sem reiknað var með rcikningspcningum fór að
bera mun meira á því að meira væri borið í gerð þeirra, vandað til við
gerð móta o.fl. Sú hcfð komst á í Frakklandi að embættismenn fcngu
nýja peninga senda árlega frá konungi og voru þá myntir og áletranir
í samræmi við atburði liðins árs. Auk þess tíðkaðist að aðall og yfir-
stéttir fengju sér reikningspeninga úr æðri málmum, var þá silfur mun
oftar haft en gull.
Pegar þessi reikningsaðferð leggst af upp úr 1700 eins og áður er
grcint frá, fá reikningspeningarnir nýtt og spennandi hlutverk, nú sein
spilapeningar. Á 18. öld varð afar vinsælt að spila á spil, fyrst hjá
frönsku hirðinni en fór síðan sem eldur í sinu um alla Evrópu. Jók það
mikið á gamanið, ef lagt var undir við þessa spilamennsku. Þar sáu
Þjóðverjar sér leik á borði og hófu í Núrnberg útgáfu „Spiel Marke“
eða spilamerkja. Margt flcira mætti tengja þessari þróun sem varð er
fram á 19. öldina var komið, en það verður að bíða betri tíma.
1000 Dæmi • n o o o
500 •
100 • • o o
50 •
10 • • o o o o
5 • o
1 • o o ooo
1776 + 1237 = 3013
HELSTU HEIMILDIR
Barnard, F.P. Tlie casting - counters atid the counting - hoard; Oxford 1916.
Bcrry, Gcorgc. Medieval English jetons. London, 1974.
Bcrry, Gcorgc. Family Business. Tlic Wolf Laufcrs of Nurnbcrg. Coin and Medal News,
Dccembcr 1984, pp. 48-49, ill.
Bcrry, Gcorgc. „Your Neck, Sir, is Pen, Book and Countcrs" Coins and Medals, March
1977, pp. 16-17, ill.
Bcrry, Gcorge. English Rcgal Countcrs struck at Nurnbcrg. Coins and Medals, May 1976,
pp. 38-41.
Berry, George. Rechenmeister Jetons of Niirnherg Coins, January 1973, pp. 16-18.
Berry, George. Jetons of Medieval France Coins, April 1973, pp. 18-20.