Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 65

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 65
ELDBJÖRG 127 hefðu hvarvetna haft hneigð til að búa til nýja tyllidaga, eftir að lúterski rétttrúnaðurinn tók að útrýma gömlum katólskum hátíðum, þá væri það furðuleg tilviljun, ef næstum því sama nafnið hefði orðið til um svo til sama daginn á íslandi, í Noregi og Svíþjóð án þess að nokkur tengsl væru á milli. Ennfremur er ljóst, að Eldbjörg er ekki þekkt sem katólskur dýr- lingur, og engar sagnir fara heldur af henni sem neins konar alþýðudýr- lingi á miðöldum í líkingu við t.d. Guðmund biskup góða. Petta er því ekki pápisk siðvenja að uppruna. Hitt er alkunna, að katólska kirkjan sýndi víða mikið langlundargeð gagnvart þjóðlegum heiðnum sið- venjum og leitaðist raunar hvarvetna við að innbyrða þær og fá þeim sitt kristilega yfirbragð eða finna þeim með einhverju móti stað innan ramma eigin helgihalds. Þessa steinu má rekja allar götur aftur til Greg- oriusar páfa mikla um 600. Þess vegna var ekki algjört samræmi í helgi- haldi katólsku kirkjunnar á miðöldum, og einstök biskupsdæmi gátu átt sína aukadýrlinga og þolað einhvcrjar aukahátíðir af umburðarlyndi sínu, þótt móðurkirkjan hefði ekki átt frumkvæði að þeim.37 Það er því líklegast, að nafnið Eldbjörg sé tilbúningur úr eldra orði eða orðum og menn hafi verið hættir að skilja merkingu þess, a.m.k. þegar tekið var að amast við siðvenjunni í Svíþjóð á 18. öld. Nú vill svo til, að í norskum skjölum frá 14. og 15. öld kemur fyrir heiti á degi um jólaleytið, sem menn hafa helst skilið sem eldsdag jóla og talið eiga við lok jólanna 6. eða 7. janúar. Það kemur fyrst fyrir í hand- ritinu AM 12, 4to af lögum Magnúsar konungs Hákonarsonar. Þar stendur ællzdag iola sem önnur handrit hafa þrettanda dag iola. Þetta ltandrit hefur verið talið frá fyrra hluta 14. aldar, en fornlegt bæði að stafsetningu og málfari.38 í bréfi frá 1419 stcndur a œlsdag jola, í öðru frá 1458 a elzs dagh jola og í hinu þriðja frá 1465 a elsdagh jola.y> Stundum þykir það illt fræðimanni, að skrifarar skuli fara eftir fram- burði án þess að skýra uppruna. Af samhengi orða í bréfunum verður ekki ljóst, um hvaða jóladag er að ræða. Eina haldreipið er lagahandrit- ið, sem notar ællzdag í staðinn fyrir þrettánda dag. Og við það verður að búa, uns annað kemur í ljós. Ekki verður nú bent á neina skynsamlegri íslenska endurgerð eða ráðningu þessara samstafa en einmitt orðið eldsdagur. Það ber engan árangur, þótt reynt sé að hugsa sér mislestur úr rómverskri tölu í for- riti, t.d. XIII, XIV eða XX, sem væru líklegastar, ef átt væri við ein- hvern lokadag jólanna, þrettánda, fjórtánda eða tuttugasta dag. í fyrsta lagi er nánast ógerningur að lesa els úr rómverskum tölustöfum, nenra

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.