Norðurljósið - 01.01.1965, Page 1

Norðurljósið - 01.01.1965, Page 1
46. árg. J anúar-—desember 1,—12. tbl. i :s ii i n i \ \ i \ <- \ ic Snjóbreiðan huldi landið. Kvöldsett var orðið og dimmt. Ekki skein tunglið, þó að heiður væri himinn. Ekki var heldur mjög stjörnubjart. Hvað gat rofið einveldi miðsvetrar myrkursins? Eg var einn á ferð milli bæja. Ég vissi mæta vel, að villa beið mín, ef mér skeikaði stefnan. Allt í einu tók að birta. Skínandi norðurljós lauguðu himininn. Ljóshafið breiddist óðfluga út. Birtan varð svo mikil, að dagsljósi var líkast. I vasa mínum bar ég litla bók, nýja testamentið á ensku, minnir mig. Letrið var mjög smátt. Eigi að síður var svo l)jart, að ég gat lesið það. Við birtuna sá ég, að ég var á réttri leið og skammt að leiðar- lokum. „Hvernig stóð á því að þú varst með þessa bók á ensku í vasanum?“ getur einhver spurt. Saga er á bak við það. Hún er þessi: Ég átti senn að fermast. Það var vorið 1913. Ég var sendur til saumakonu á Hvammstanga, er sauma skyldi mér föt. Ég þurfti að bíða í stofu hennar um stund. Þar lá blað, sem hét Norðurljósið. Ég greip það og las, meðan ég beið. Svo vel féll mér það, sem ég las, að ég vildi sjá þetta blað aftur. Þremur árum síðar sá ég aftur Norðurljósið. Þá las ég grein, sem það flutti. Hún olli þáttaskilum í ævi minni. Ég komst svo í bréfasamband við rit- stjóra blaðsins, Arthur Gook á Akureyri, og frá honum fékk ég nýja testamentið síðar meir. Ég vissi það ekki daginn þann, er ég sá Norður- ljósið fyrst, að ég yrði síðar ritstjóri þess. Nú sendi ég það út, sendi ÞER það, sem heldur erfið, og stefnan óviss, athugaðu þá, hvort einmitt Norðurljósið flytji þér ekki þá ljósgeisla, sem þú þráir. Markmið þess er að boða HANN, sem sagði: „Ég er ljós heimsins.“ Hann hefir ljósgeisla handa sérhverri sál, leiðbeining handa vegarvilltu fólki. Hann hefir von að gefa hinum vonlausu, lækning hinum sjúku, nýjan styrk handa þróttlausum og huggun handa sorgbitnum. Hann hefir fræðslu handa börnunum, köllun handa æskunni og segir henni til vegar, þegar hún er stödd á vegamótum lífsins, ef hún leitar hans. Hann er nálægur sjómanninum, sem hrópar til hans á háskastund, drykkjumanninum, sem leitar hans í baráttu sinni við vínið, og hann vill koma með sátt og frið inn í heimilin, sem eru að sundrast vegna áfengisnautnar, syndar eða ósamþykkis. Norðurljósið flytur margar frásagnir, sem sýna þetta og sanna. Lesið þær. Skiljið, að vandamál fólksins, sem þær segja frá, eru einnig vandamál ykkar. Hinn sami ástríki, hjálpsami, frelsari og læknir, sem hjálpað hefir öðrum, er fullkomlega fús til að hjálpa þér. „Andi Drottins er yfir mér, af því að hann hefir smurt mig, til að flytja fátækum gleðilegan boð- skap; hann hefir sent mig til að boða bandingjum lausn og blindum, að þeir skuli aftur fá sýn, til að láta þjáða lausa, til að boða hið þóknanlega ár Drottins.“ Þetta heimfærði Kristur til sín. Þetta var hlutverk Krists þá. Þetta er hlutverk hans enn, því að „Jesús Kristur er í dag og í gær hinn sami og um aldir.“ Fúsleiki hans og máttur til að hjálpa eru hinir sömu enn í dag sem forðum. Guð blessi þér Norðurljósið. — Ritstj. því nú í hendi þér. Ef þér finnst dimmt í kringum þig, lífsbrautin LAHDfiBÍhASAFN 2C030S . ÍSI .ANÍiS

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.