Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 2

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 2
2 NORÐURLJÓSIÐ KYNNI MÍN AF MERKU FÓLKI i. Þegar ég kenndi í Kvennaskólanum Saga af léttara tagi. Saga þessi gerðist árla vetrar 1922. Eg hafði stundað nám í Kennaraskólanum í Reykjavík í hálfan annan vetur. Þar var þriggja vetra námstími, en var mér kleift að vera þar þriðja og síðasta veturinn? Sumarkaupið var mest farið í það að greiða skuldir, sem myndast höfðu veturinn á undan. Ég vildi ekki hleypa mér í skuldir. Leiðsögubók mín, biblían, sagði: „Skuldið ekki neinum neitt, nema það eitt að elska hver annan.“ Mér kom helzt til hugar að sleppa námi þennan vetur, en reyna að afla mér fjár. Þegar ég gat um þetta við skólastjórann, síra Magnús Helgason, vildi hann ekki heyra, að ég hætti námi, þótt ekki vær.i nema um sinn. Bauðst hann til að skrifa upp á víxil fyrir mig, svo að ég fengi lán, er næmi þeirri upp- hæð, sem fæði mitt og hið allra nauðsynlegasta mundi kosta yfir veturinn. Kennarastaða væri mér vís, þegar á næsta hausti, og gæti ég þá greitt þetta víxillán. Það eitt var tilskilið af hans hálfu, að ég líftryggði mig, svo að lánið yrði greitt með tryggingarfénu, ef ég dæi. Meira þurfti þó en þetta. Húsnæði vantaði. Einn af kennurum skólans, Asgeir Ásgeirsson að nafni, bauðst þá til að lána mér herbergi endurgjaldslaust. Hann bjó í Laufási, efri hæð, ásamt konu sinni, Dóru Þórhallsdóttur, biskups, og börnum þeirra. Átti ég að taka þessum boðum? Það var að hleypa mér í skuld. Hins vegar var ég ekki eignalaus maður. Ég átti nokkrar kindur, og ég leit svo á, að væru þær allar seld- ar, mundi nokkuð standast á verð þeirra og skuldin við bankann. Ég tók því þessum boðum, sem voru kostakjör á að líta og hjálpin boðin af góðum hug. Afleiðingarnar urðu nokkuð margvíslegar, en það eru sögur, sem eigi verða sagðar hér, nema það, sem hér fer á eftir. Ófyrirséð atvik gerðist síðla hausts eða snemma vetr- ar. Urið mitt bilaði, svo að eigi varð við það gert. Ég átti alls ekki nóg fyrir nýju úri, en úrsmiðurinn, Jón Sigmundsson, minnir mig, lánaði mér það, sem ekki var greitt. Ég sá reyndar enga leið til að fá peninga. Þá var kreppan skollin yfir. Til marks um það, hve lítil aura- ráð sumir nemendur Kennaraskólans höfðu, skal ég geta þess, að rætt var um það síðar um veturinn að fella nið- ur árshátíð skólans, en þátttökugjaldið var 4 kr. Ég var með þeim, sem vildu sleppa skemmtuninni. En aðrir réðu og höfðu sitt mál fram. Skuldaskilin komu eftir skemmt- unina, en þá gekk þeim svo báglega innheimtan, að þeir komu seinast til mín og báðu mig að taka hana að mér. Náði ég þessum fáum krónum hjá öllum, nema einum manni, sem ekki vildi borga, af því að hann var búinn að neita að gera það. Bitu hvorki brýningar eða fortölur, bænir eða særingar á hann, og mun hann fara í gröfina með þessa skuld á baki sér ásamt vöxtum hennar og vaxta- vöxtum um tugi ára, nema iðrun komi til áður, svo að skuldin verði goldin. Ég hafði eigi lengi verið í Laufási, þegar Ásgeir varð veikur. Læknir var skjótlega fenginn til hans, og kvað hann upp þann úrskurð, að skarlatssótt gengi að honum og skyldi hann fluttur í Farsóttahúsið. Það var gert, og þar varð hann að dvelja í mánuð eða fimm vikur. Nú er að geta þess, að Ásgeir kenndi einnig við Kvenna- skólann í Reykjavík. Þótti það mjög bagalegt, sem von var, að kennslustundir hans féllu niður. Liðu svo nokkrir dagar, en eigi margir. Einu sinni bar svo til, að ég mætti frú Dóru í fordyri og spyr hana eftir líðan manns hennar og hvort nokkur maður sé fenginn til að kenna fyrir hann í Kvennaskól- anum. Er hún svaraði þeirri spurningu neitandi og sagði, að það fengist enginn maður í allri Reykjavík, þá hrutu mér ógætnisorð af vörum, og ég mælti: „Það vildi ég, að ég gæti kennt fyrir hann Ásgeir.“ Frú Dóra leit á mig snöggt og hvasst. „Þér getið það,“ sagði hún. Æ, að það skuli ekki vera unnt að taka aftur töluð orð, afmá þau með einni hugsun úr heila þess eða þeirra, sem heyrði þau. Ég hafði ekki fyrr heyrt þessi örlagaorð: „Þér getið það,“ heldur en ég iðraðist sárlega framhleypni minnar. Ég reyndi að eyða þessu, sem ég hafði sagt. Frú Dóra vildi engum sönsum taka, en sagði: „Nú fer ég og tala við Ásgeir.“ Á meðan beið ég sem boli höggs. Hún kom aftur með þann úrskurð, að hann hefði sam- þykkt þetta. Ég skyldi kenna tvær námsgreinar hans: grasa- fræði og dýrafræði. Við teiknikennslu skyldi ég ekki eiga, því að ég væri lélegur í teiknun, og vissi ég það allra manna bezt, að það var sannur dómur. Ég sá mér ekki annað fært en vera í skárri klæðum en þeim, sem ég klæddist venjulega, þegar ég færi niður eftir að kenna. Ég hafði mjög nauman tíma til að skipta, en er ég kom n.iður í fordyrið, var frú Dóra þar. Kvaðst hún ætla að sjá, hvort nokkuð væri út á búnað minn að setja. „Ég man, hvernig við stelpurnar krítiseruðum kennar- ana okkar, þegar ég var í Kvennaskólanum,“ sagði hún. Tvær stúlkur mætast á götu. Um leið og þær ganga framhjá, líta þær andartak, og skemur þó, hvor á aðra. Á eftir geta þær hvor um sig lýst hinni og búnaði hennar út í yztu æsar. Er þetta kallað hámark mannlegrar eftir- tektar. Slíkri athygli beitti frú Dóra, er hún leit á mig, þegar ég, sem fulltrúi manns hennar, var að leggja af stað i þessa v.irðulegu menntastofnun, Kvennaskólann í Reykja- vík, sem fröken Ingibjörg H. Bjarnason stjórnaði af skör- ungsskap og myndarbrag. Hálsbindið var ékki alveg rétt. Það var lagfært. Fata- burstinn var þrifinn og rykkorn strokin á brott. Svo var mér leyft að fara. Þegar ég kom í Kvennaskólann, gekk ég fyrst á fund skólastýrunnar. Þá voru konur ekki nefndar skólastjórar, svo að ég muni, þótt svo sé víst oft gert nú. Ég heilsaði fröken Ingibjörgu með handabandi. Hún leit fyrst í augu mér. Þar var víst lítið fagurt að sjá, þar sem ég er með
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.