Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 6

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 6
6 NORÐURLJÓSIÐ Hér má geta þess, að Davíð þekkti erfiðleika fjárhirða af eigin raun. Hann hafð.i sjálfur gegnt því starfi hjá föður sínum. Þeir verða oft næmari að skilningi á ann- arra kjörum, sem staðið hafa í sporum þeirra áður. Dav- íð, sem Guð hafði útvalið til að vera leiðtogi þjóðar sinnar, lét sig ekki muna um að sýna þessum fjárhirðum hjálpsemi og lét sér ekki til hugar koma að taka nokkra skepnu frá þeim til lífsviðurværis sér eða mönnum sín- um, sem sjálfsagt hafa stundum búið við þröngan kost. Tíminn kom, er Nabal lét taka ull af fé sínu. Þá var siður, að fjáreigandinn héldi veizlu. Davíð sendi því til hans og beiddist þess, að hann léti eitthvað af hendi rakna handa sér á þeim hátíðisdegi. Hefðu þeir, Davíð og menn hans, vissulega átt slíkt skilið. Nabal tók þessari beiðni illa, líkti Davíð við þræl, er strokið hefði frá húsbónda sínum og lézt engin deili á honum vita, og vildi ekki láta neitt af hendi rakna. Er Davíð bárust svör hans, reiddist hann mjög, er Nab- al launaði honum gott með illu, og ákvað að hefna sín grimmilega. Hóf hann svo för sína í áttina að heimkynn- um Nabals. Einn af þjónum Nabals fór og sagði húsmóður sinni frá, hvað gerzt hafði, og segir við hana: „Hygg nú að og sjá til, hvað þú skalt gera, því að ógæfa er búin hús- bónda vorum og öllu húsi hans.“ Abígail reyndist vandanum vaxin. Hún brá við skjótt, tók 200 brauð, tvo vínlegla, fimm tilreidda sauði, fimm mæla af bökuðu korni, 100 rúsínukökur og 200 fíkjukök- ur, klyfjaði asna með þessu og sendi á undan sér. Sjálf hélt hún á eftir, og á leiðinni ofan fjallið rekst hún á Davíð og menn hans, 400 að tölu, sem komu þar með al- væpni til að koma fram hefndum á manni hennar. Heppn- aðist henni með gjöfinni og orðum sínum að blíðka Dav- íð. Sést af því, sem hún segir við Davíð, að hún hefir verið búin að heyra mikið um hann og að Drottinn hafi heitið honum miklum gæðum og að gera hann að höfð- ingja yfir lýð sínum, Israel. Þar sem Abígail vissi svo mikið um Davíð, þá er það ólíklegt, að maður hennar hafi engin deili vitað á hon- um. Þess vegna gerð.i hann meira ilit en það, að synja nauðstöddum mönnum um saðning, þótt hann ætti þeim gott að launa. I raun og veru var hann að lítilsvirða ráð- stöfun Guðs, að Davíð skyldi verða konungur yfir Israel. Hann virðist því ekki eiga það trúartraust til orða Drott- ins, sem kona hans á. Þótt Davíð væri á flótta, hafði hann ekkert til saka unnið. Hann hafði verið konungi sínum trúr. En „allur ísrael og Júda elskaði Davíð, því að hann gekk jafnan þeirra fremstur.“ (I. Sam. 18. 16.). Á þessi saga sér nokkra hliðstæðu? Svo mun vera. Ennþá eru heimili stofnuð af manni og konu, og ennþá geta valizt saman ólíkar persónur að erfðum og uppeldi. Ennþá mundi það vera talið til gildis konunni, að hún væri bæði vitur og fríð eins og Abígail. í hiblíunni stend- ur: „Yndisþokkinn er svikull og fríðleikinn hverfull, en sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skilið.“ Eins og fregn- ir af Davíð bárust þeim Nabal O'g Abígail og boðskapur hans síðar, þannig kemur boðskapur Guðs um Drottin Jesúm til heimila okkar: „Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hefi velþóknun á. Hlýðið á hann.“ Við getum sagt, að húsbóndinn beri mesta ábyrgð gagn- vart þessum boðskap, þar sem forsjá fj ölskyldunnar og heimilisins hvílir á herðum hans. En setjum svo, að hann spyrji, með orðum eða breytni, í skyldum tón og Nabal: „Hver er Jesús, og hver er Guðs sonur, að ég skuii hlýða honum? Margir eru þeir, trúarbragðahöfundarnir, í heim- inurn.“ Ætti þá konan að taka sömu afstöðu, til þess að hún geti verið eitt með manni sínum? Alls ekki. Samhugur er góður, þegar gott á í hlut, en illur, þegar um illt er að ræða. Biblían segir: „Framar ber að blýða Guði en mönnum.“ Sú kona, sem íinnur, að maður hennar heldur sig ekki á miðjum vegi réttlætisins, bregst stórlega skyldu sinni, ef hún beygir á krókóttar leiðir ranglætisins með honum, til þess að þóknast honum. Postulasagan 5. kafli skýrir frá því, að Pétur postuli afsakaði ekki Saffíru, er hún gerðist manni sínum samsek í lyginni, heldur furð- aði sig á því, að þau skyldu geta orðið samþykk um verkn- aðinn, eins og slíkt næði ekki nokkurri átt. Abígail taldi sig ábyrga gagnvart orðsendingu Davíðs, hélt niður fjallið með það offur á undan sér, sem Davíð átti rétt á og hafði gert manni hennar orð um. Bjargaði hún þannig lífi manns síns og allra karlmanna, er heyrðu til heimili þeirra hjóna, undan sverði Davíðs. Þannig mun enn í dag vitur kona taka á sig þá ábyrgð, sem á hana leggst í þessu tilfelli, og halda niður af há- fjalli kæruleysis um Krist og hans boð, þótt maður henn- ar sé þar allur í sinni arðberandi atvinnu eins og Nabal, sem var að klippa sína sauði, og geri sér ef til vill góða veizlu að kvöldi eins og hann. En konan mun falla fram fyr- ir höfðingja lífsins, eins og Abígail fyrir Davíð, og biðja hann ásjár um andlegt líf ástvina sinna, því að Hann er meiri en Davíð. Mun ekki sú kona verða blessuð um eilífð af þeim sálum, er hún tók andlega ábyrgð á og flutti mál þeirra frammi fyrir hástóli himnanna, bað um frelsun þeirra og fékk bænheyrslu? Vissulega. ----——-x---------- J JESÚ NAFNI" „Ég bað um afturhvarf mannsins míns í nálega 15 ár,“ segir kristin starfskona, „og það virtist sem bæn- ir mínar ætluðu ekki að hrífa. En dag nokkurn las ég orð Meistarans: „Ef þér biðjið einhvers í mínu nafni, mun ég gera það.“ Ég sá, að ég hafði verið að biðja í mínu eigin nafni, og að ég hafði leitað afturhvarfs manns- ins míns sjálfri mér til gleði og hamingju. Ég hætti að biðja af þessum hvötum og fór að biðja einlæglega í nafni Drottins Jesú Krists og eingöngu vegna dýrðar hans. Eftir fáeina mánuði var maðurinn minn frelsað- ur og varð virkur starfsmaður með mér í þjónustu Krists. — Athuga skal vel, hvort það er vegna dýrðar Guðs eða okkar eigin þæginda, sem við biðjum um eitthvað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.