Norðurljósið - 01.01.1965, Page 12
12
NORÐURLJÓSIÐ
Dick með þýðingarstarfið, fór hann að hugsa meir og
meir um kröfur Krists.
Tveimur árum seinna hafði Siblian og tveir menn
aðrir gefið Kristi líf sitt. Dick hafði getað þýtt meira
af ritningunni og frætt þá um grundvallarsannindi trú-
arinnar, þegar þau Betty fóru heim til að hvíla sig. Er
þau komu aftur, taldi hópur hinna trúuðu sjö menn. í
fyrra (1964) voru þeir orðnir 46, og Anuy var einn þeirra.
A samkomu sumarið 1963 talaði Siblian og las þá
úr nýútgefnu guðspjalli Jóhannesar og 1. bréfi hans.
Hann skoraði á aðra að horfast í augu við vandamál sín
og að leyfa Drottni að leggja til lausnina á þeim.
Er ræðu hans lauk, reis faðir dánu stúlkunnar, sem
grafin hafði verið upp, á fætur og mælti:
„V.iljið þið gera svo vel að biðja fyrir mér, að Drott-
inn veiti mér náð til að fylgja sér algerlega og að halda
engu eftir.“
(Þýtt úr Translator, málgagni Wycliffe Bible
Translators, Purley, Englandi).
---------x--------
Spurning hjúkrunarkonunnar
„Jesús svaraði og sagði við hann: Sannlega, sannlega
segi ég þér: Enginn getur séð guðsríki, nema hann end-
urfæðist. . . . Yður ber að endurfæðast. (Jóh. 3. 3., 7.).
Hjúkrunarkonan spurði: „Trúir þú, að Guð muni senda
mig til helvítis vegna smásynda þeirra, sem ég drýgi?“
Frá venjulegu sjónarmiði var það ekki svo mikilvægt,
sem hún gat um. Hún notaði tímann mest til lesturs skáld-
sagna og tímarita, og að loknum daglegum hjúkrunar-
störfum, fór hún í bíó. Hún lifði sem aðlaðandi stúlka,
og í augum þeirra, sem voru henni ókunnir, virtist hún
vera trúuð. Hún sótti kirkju, starfaði í sunnudagaskóla
og í æskulýðsfélaginu, — en hún var ekki fœdd að nýju;
og það vissi hún.
Þegar ég hafði hugsað litla stund um spurningu henn-
ar, svaraði ég: „Afstaða þín gagnvart spurningu þinni
er ekki rétt. Ég vil með sem fæstum orðum láta þig vita
afstöðu þína gagnvart Guði. Hingað í sjúkrahúsið kemur
sjúklingur, sem tekið hefir inn eitur. Læknir.inn býr til
móteitur, og þú ferð með það inn til sjúka mannsins, en
hann vill ekki taka það inn. Þó að þú biðjir hann að gera
það, neitar hann því. Ef maðurinn deyr, hvort er það
honum að kenna eða þér?“
„Auðvitað manninum,“ svaraði hún.
„Þetta er rétt, og þetta er mynd af afstöðu þinni til
Guðs. Syndin hefir eitrað þig. Þú ert fædd í synd. Ef þú
fæðist ekki að nýju, þá deyr þú dauða syndarans. Jesús
segir, að deyir þú í syndum þínum, getur þú ekki komizt
inn í Guðsríki, þar sem hann býr, og þá er enginn annar
staður en helvíti að fara til. En Guð hefir framreitt undur-
samlegt móteitur gegn syndinni, og á því andartaki, sem
þú tekur það, verða augljósar verkanir þess, af því að all-
ar syndir þínar verða afmáðar að eilífu, svo að þeirra
verður aldrei framar minnzt.“
„Hvaða móteitur er þetta, sem þú talar um?“
„Drottinn Jesús Kristur er hinn eini, sem bjargar frá.
syndinni. Hann yfirgaf dýrð himinsins og kom hingað til
jarðar til þess að frelsa heiminn frá synd með því að
fórna sér í dauðann á krossinum. Ef þú vilt taka á móti
honum nú sem frelsara þínum, verða syndir þínar afmáð-
ar. „Ég mun vera vægur við misgerðir þeirra, og ég mun
alls ekki framar minnast synda þeirra.“ (Hebr. 8. 12.). En
neitir þú að taka á móti frelsaranum, sem Guð býður þér,
getur þú ekki ásakað Guð fyrir það, að þú ferð héðan
glötuð að eilífu. Þú getur ekki afsakað þig með því, að
þú sért fædd í synd, en neitir þú að taka á móti hinum
undursamlega frelsara, sem Guð vill gefa þér, verður þú
ein að bera afleiðingarnar af því, að hafna honum. Skilur
þú nú, hvað ég á við?“
„Já, ég skil þetta nú,“ svaraði hjúkrunarkonan af mik-
illi alvöru.
„Þú sérð nú, að Guð sendir engan í helvíti vegna smá-
synda, en þú ert sjálf völd að því, að þú ferð þangað,
vegna þess að þú hrindir frá þér því frelsi og þeirri björg-
un, sem Jesús vill gefa þér. Þær eru ekki, þessar smásynd-
ir, alvarlegar í þínum augum, en ef þær skilja þig frá
Guði og loka þig úti frá himninum, verð ég að segja þér,
að þær eru mjög alvarlegar og stórar í augum mínum.
Vilt þú láta smásyndir skilja þig frá Kristi? Vilt þú ekki
eiga hann framar öllu hér í heimi?“
„Jú, ég vil það,“ svaraði hún með hógværð.
Heimsk er sú manneskja, sem lætur nokkrar smásyndir
loka fyrir sér himninum. Öllum ber saman um, að Júdas
Ískaríot gerði slæm kaup, er hann seldi frelsarann fyrir
30 silfurpeninga. En nú á dögum eru þeir margir, sem
selja Jesúm fyrir miklu minna en þetta.
Tak þú á móti Jesú Kristi í dag. Hugleiddu þessar ritn-
ingargreinar:
„Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið, þótt sum-
ir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við yður,
þar eð hann vill ekki, að neinir glatist, heldur að allir
komist til iðrunar.“ (2. Pét. 3. 9.).
„Lærið gott að gera, leitið þess, sem rétt er; hjálpið
þeim, sem fyrir ofríki verður, rekið réttar hins munað-
arlausa og verjið málefni ekkjunnar. Komið nú og eig-
umst lög við, segir Drottinn. Þó að syndir yðar séu sem
skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu
rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull.“ (Jesaja 1.
17., 18.).
Ég, ég einn, afmái afbrot þín sj álfs mín vegna og minn-
ist ekki synda þinna.“ (Jes. 43. 25.).
„Og þér munuð með fögnuði vatn ausa úr lindum hj álp-
ræðisins.“ (Jes. 12. 3.).
Agúst Gíslason, Siglufirði, þýddi.
---------x----------
Tónskáldið Haydn ræddi við tvo vini sína um hrygga
lund. Annar þeirra sagði: „Þegar ég er langt niðri, f*
ég mér vín, og það hressir mig upp.“ Hinn sagði: „Eg
fer í hljómlistina, og hún huggar mig.“ Þá sagði Haydn:
„Þegar ég er hryggur í lund, fer ég að biðja. Enginn get-
ur huggað mig líkt því eins vel og Drottinn minn.“