Norðurljósið - 01.01.1965, Page 16

Norðurljósið - 01.01.1965, Page 16
16 NORÐURLJÓSIÐ VERTU MEÐ Opið bréf til vinar míns. Heyrðu vinur, eigum við ekki að bregða okkur snöggv- ast í ferðalag, í huganum, og heimsækja stórkostlegt lista- safn? Það er margt að sjá í safninu. Þar eru listaverk, ólýsan- leg að mikilleika og fegurðin eftir því. Við teygum þann unað, sem það veitir að virða slíkt fyrir sér. Fjölbreytnin, hún er ótæmandi. V.ið fáum meir en að sjá, við fáum líka að heyra, hlusta á hljóma óumræðilega margbreytilega. Hér megum við dvelja, hlusta og skoða eins og okkur lystir. Hvað fer að fylla huga okkar mest? Er það tign og mikilleiki hins stórfenglega? Er það fegurðin eða marg- breytnin? Heldur þú ekki, að við munum alveg gleyma okkur vegna alls, sem við fáum að sjá, heyra og skoða? Hér megum við skoða allt frá öllum hliðum. En hvað vekur athygli okkar mest af öllu? Það er lífið, lífið sjálft í óteljandi myndum sínum. Við lítum til fjallanna. Við horfum á fuglana fljúga og á orma og pöddur í felum. Við lítum á hið háa, en einnig til hins lága. Við horfum á fossana, tign þeirra og fegurð. Við lítum yfir túnin, engin og hagana. Alstaðar blasir við lífið. Við lítum fyrst á það, sem mest ber á. Finnst þér ekki, eins og mér, yndislegt að virða fyrir þér hjarðir hesta, kúa og sauða? Við skulum gefa blómunum gaum. Fögur er eyrar- rósin, fagurt er blágresið og maríuvöndurinn litli, svo að eitthvað sé nefnt af okkar bernskuvinum. Við lítum inn í kaktusblómið stóra. Það er dásamlegt blóm og ógleymanlegt, minnir á hrynjandi foss. Við skoð- um einnig fegurð og fjölbreytni paradísarblóma og eilífð- arblóma, og þú verður að gefa þér aðeins tíma til að beygja þig niður að rósinni þarna og anda að þér ilmi hennar. Þú lítur rétt á fegurð hennar um leið. Það tillit borgar sig. Við nemum staðar við manninn: hjarta hans og heila, augað og eyrað, taugarnar og meltingarfærin. Þó er stór- fenglegast við hann, að hann er andi, sál og h'kami, gerður í mynd hins þríeina Guðs, sem er Fað.ir, Sonur og heilagur Andi. Fyllumst við ekki lotningu? Kemur ekki þrá í hjartað eftir kynnum við höfund lífsins og alls, er tilveru hefir? Hvílíkur er Hann, óumræðilegur að mikilleik og vizku, mætti og tign. Eigum við ekki að staðnæmast og hrópa til hans? „Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað?“ Getum við hugsað okkur að setja honum takmörk? Langar okkur virkilega til þess? Við skulum íhuga eigin smæð, takmarkanir okkar á öllum sviðum. Hvenær lærum við fyrst að þekkja okkur sjálf ? Þegar við sjáum kærleik og vizku, mátt og heilag- leik Guðs. Margvíslegar eru þær, hugmyndirnar, sem mennirnir gera sér um hann, sem er höfundur lífsins, uppspretta allrar tilveru. Þær hugmyndir sýna og sanna, að „vér fór- um allir villir vega sem sauðir, hver vor stefndi sína leið.“ Var ekki honum, sem er „konungur konunga og Drottinn drottna“ frjálst að fara þá einu leið, sem alvizka hans sá færa, til að framkalla andlegt líf í hjörtum okkar mann- anna barna? Hann, aðeins hann einn, þekkir okkur til fulls, og hann vissi, að við gátum aldrei nálgazt hann, aldrei sameinazt honum í eigin mætti. Þess vegna lét hann Orð sitt íklæðast mannlegu holdi, eins og ritað er: „í upphafi var Orðið og orðið var hjá Guði, og orðið var Guð; það var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir eru gerðir fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. I því var líf, og lífið var ljós mannanna; og ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið hefir ekki tekið á móti því.“ (Jóh. 1. 1,—5.). Þetta var leyndardómur hjá Guði, ráðsályktun hans: að Orðið varð hold, og hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika. Og um hann vitnaði Jóhannes skírari: „Vér sáurn dýrð hans, dýrð sem eingetins sonar frá föður.“ (Jóh. 1. 14.). Orð hins eilífa lífs. Jesús Kristur, íklæddist mannlegu holdi, gekk undir vald freistinga, en með full- komnum sigri yfir þeim öllum. Seinast tók hann á sig laun syndar.innar, sem er dauði. Hann stofnaði með blóði sxnu, dauða sínum, nýjan sáttmála, náðarsáttmála. Þetta er sáttatilboð Guðs. Er ekki kominn tími til að taka því? Vér eygjum ótal friðvana hjörtu. Hver höndin er uppi á móti annarri. Hvers vegna? Mennirnir hafa ekki „veitt viðtöku kærleikanum til sannleikans.“ Syndir þeirra hlað- ast upp sem múrveggur milli Guðs og þeirra. Fjölmargir segja, að enginn Guð sé til, af því að hann heyrist ekki og sést ekki. Sagt er, að Satan sé ekki til; að Jesús hafi ein- ungis verið góður maður, reyndar langt á undan sinni samtíð; margir eru komnir út á breiða veginn. En sá vegur endar í vegleysu, á helslóðum. Það er skýrt tekið fram. Við skulum líta á birgðirnar af kjarnorkusprengjun- um. Lítur ekki út fyrir, að heimurinn rambi á glötunar- barmi? Við lítum af þessari myrku mynd og horfum á Lávarð lífsins, á verk hans og vilja. Hann niðurlægði sjálfan sig okkar vegna, og hann „getur séð aumur á veikleika vor- um.“ En á sínum tíma kemur hann hingað aftur, eins og hann sjálfur sagði, á skýjum hirnins með mætti og mikilli dýrð, ólýsanlegri dýrð. En nú, á þessum tíma, býður hann hverjum þeim, sem orð hans les eða heyrir: „Komið tii mín, allir.“ Hlustaðu nú. Heyrir þú ekki, að unaðsblíða röddin hans kallar á þig með nafni? Hann elskar þig, elskaði þig að fyrra- bragði. Á hann þá ekki skilið, að þú gefir honum kær- leika þinn? Tak á móti náð hans, á móti honum sjálfum nú, því að einmitt nú er hentugi tíminn til þess. Með góðri kveðju til þín og þeirra, er þetta lesa. Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Keflavík.

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.