Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 17

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 17
NORÐURLJÓSIÐ 17 ÉG TRÚI Á KRAFTAVERK Eftir Kathryn Kuhlman. 2. George Speedy Það var guðsþjónusta á Þakkardegi (Thanksgiving Day, í Bandaríkjunum), og ég beið eftir að ganga upp á ræðu- pallinn, þegar sætavörður færði mér orkideu og sagði, að herramaður hefði beðið hann að færa mér hana til að bera hana, meðan stæði á guðsþj ónustunni. Eg opnaði bréfspjaldið, sem fylgdi, og las: „I viður- kenningarskyni fyrir það, sem þú hefir gert fyrir mig. — ,Speedy‘ .“ Ég nældi á mig blómið, gekk upp á ræðupallinn og til- kynnti fyrsta sálminn. Að honum loknum stöðvaði ég guðs- þjónustuna, las bréfspjaldið fyrir söfnuðinum og bað þann, er hafði sent það, að koma fram. Inn ganginn gekk maður um fertugt. Andlit hans ljóm- aði. Þegar hann nam staðar frammi fyrir mér, sagði ég: „Speedy, ég þori að segja, að þetta er fyrsta orkidean, sem þú hefir keypt um dagana.“ Svarið kom skjótt. „Ekki einungis fyrsta orkidean, heldur fyrsta blómið. En þú veizt,“ sagði hann með breiðu brosi, „að mánuðum sam- an héldu eigendur veitingahúsa í Warren, Ohio, að ég væri blómasali. Sjáðu til, ég vann hjá félagi, sem fram- leiddi grafhvelfingar, og ég flutti þær í kirkjugarðana. Þá tók ég fersk blóm, sem lágu á nýjum gröfum. Síðan fór ég í veitingahúsin og lét þau fá fersk blóm í skiptum fyrir áfengi.“ George Speedy byrjaði ekki að drekka til þess að verða áfengissjúklingur. Gerir nokkur það? Líkt og flestir unglingar drakk hann upp á „sport“ og vegna þeirrar öryggiskenndar, sem það veitti honum. En hann byrjaði fyrr en flestir aðrir. „Þegar ég var átta ára,“ seg.ir hann, „fór ég út í bílskúrinn og sötraði lögg- ina úr tómum viskíflöskum föður míns eða náði mér í eplamjöð úr tunnu afa míns.“ Þegar Speedy var fjórtán ára, fluttist fjölskyldan til Warren í Ohio. Þar eignaðist hann nýja vini. Þeim fannst eins og honum mikið „sport“ í því að fá sér flösku af víni eða koníaki, hvenær sem þeir gátu það. Þegar hann kvæntist, tvítugur að aldri, var hann kom- ■inn vel á veg með að verða ofdrykkjumaður. Hann hrós- aði sér oft af því, að hann gæti drukkið flesta menn „und- ir borðið.“ En af því að hann var ungur, hraustur og hafði góða matarlyst, datt engum í hug, að hann væri á góðri leið til að tortíma sjálfum sér. Hann og unga konan hans, Kay, voru mjög ástfangin hvort af öðru. Hann stundaði vinnuna stöðugt, er þau voru gift, þó að eins og hún segir: „ég sæi sjaldan nokkra peninga. Við höfðum aðeins fyrir brýnustu lífs- nauðsynjum, hitt fór fyrir áfengið.“ Meðan greitt var kaup hálfsmánaðarlega, var þó ástand- ið ekki of slæmt. En þegar Speedy fékk kaupið greitt vikulega, þá töpuðust tveir dagar á viku: útborgunar- dagurinn, þegar hann hélt upp á greiðsludaginn, og dag- urinn á eftir, þegar var að renna af honum. En þrátt fyrir drykkjuskap sinn var George Speedy afbragðs verkmað- ur, alveg sama hvað sem hann vann. Þess vegna lét vinnu- veitandi hans hann halda vinnunni. Hann var í sjálfu sér góður maður, sem alltaf var tilbúinn að hjálpa vini, sem var í erfiðleikum, og honum var blóðilla við, að nokkur setti út á drykkjuskap hans. Hann stóð fast á því, að hann gerði engum nema sjálfum sér skaða með honum, og harðneitaði að sjá, hvað drykkjuskapurinn gerði hjóna- bandi hans. Það var eins og konan hans segir: „Heimilislíf okkar varð helvíti á jörðu, áður en lauk. Speedy kom heim dauðadrukkinn kvöld eftir kvöld, kvikinzkur og þrætu- gjarn. Börnin urðu svo hrædd við hann, að þau sögðu oftar en einu sinni, að þau vildu, að hann kæmi aldrei heim.“ Peningar hans voru farnir löngu fyrr en greiðsludagur kom. Hann drakk ekki lengur um helgar, heldur á hverju kvöldi. Svo fór hann að koma inn um framdyrnar á verkstöð- inni, þar sem hann vann, á morgnana, stimplaði tíma- klukkuna, gekk í gegnum bygginguna og út um bakdyrn- ar, yfir brautarteinana, inn í veitingahús, til að fá sér eitt eða tvö staup til að halda sér uppi yfir daginn. Þá fór hann inn aftur og tók til starfa. Þrátt fyrir drykkju- skapinn vann hann svo vel og var svo hraðvirkur, að yfirmaður hans viðurkenndi aldrei þessar morgungöng- ur hans, ef hann vissi um þær. Loks kom að því, að hann gat ekki sofið á nóttum, nema hann vissi, að hann ætti nóg áfengi til að fá sér vænan sopa næsta morgun. Oft var honum svo óglatt á morgnana, að vínið tolldi ekki niðri í honum, en með svo skjálfandi höndum, að hann gat varla hamið lítinn sopa í stóru glasi, án þess að hella því niður, hélt hann áfram að reyna, unz hann gat haldið viskíinu niðri í sér. Afengisþörf hans fór alltaf vaxandi, unz hann þurfti að fá sér sopa á tveggja stunda fresti. Speedy lærði hvert verk, sem hann reyndi við, fljótt og vel. En hið innra með sér var hann óöruggur og sí- hræddur um, að sér mundi mistakast. Þetta varð svika- mylla. Hann missti atvinnuna, af því að hann drakk. Og drykkjuskapur hans óx, af því að sjálfstraust hans þvarr. Hann var að vinna fyrir mjólkursamlag, þegar fyrstu einkenni um hnignun sálarkrafta fóru að koma í ljós. Það kom oft fyrir, er hann lá á legubekk, að hann rétti út höndina til að klappa hundi, sem ekki var þar. Akstur hans varð skeikull. Hann minnist þess, að einu sinni fann hann til nærri óstjórnlegrar löngunar að stökkva út úr mjólkurvagninum. Hann varð að halda fast um stýris- hjólið og reka þessa hugsun úr huga sér, svo að hann tæki ekki stökkið. Sama kvöldið gekk hann inn í húsið sitt, algerlega alls- gáður, að því er v.irtist, og heimtaði að fá að sjá móður sína, en hún hafði dáið fyrir fimmtán árum. Eðlisfar hans fór að taka gagngerum breytingum. Hann gerðist mótsnúinn fólki, sem honum hafði fallið vel við áður, og móðgaði hvern, sem heim til hans kom, unz allir hættu að koma til hans, jafnvel ættingjar hans.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.