Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 21

Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 21
N ORÐURLJ ÓSIÐ 21 vann að þessu, bjuggu þau hjónin í garðhúsi hjá E. C. Murray öldungardeildarþingmanni. Unnu þau ýmislegt fyrir hann til endurgjalds fyrir húslánið. Ef til vill hefir það verið stoltasta andartak ævi Spee- dys, þegar þingmaðurinn sagði um hann: „George er alltaf heiðursmaður, og hann er ekki einungis áreiðan- legur, heldur hefir hann talsverða hæfileika til að vinna hvað sem er. Okkur geðjast mjög vel að honum og konu hans, og ég vona, að þau sjái leið til þess að halda áfram að vera hjá okkur enn um sinn.“ Speedy er hreykinn af þessu bréfi, en hann gleymir aldrei eitt andartak, að Drottni ber allur heiðurinn. Stærsta kraftaverk í heimi er gerbreyting á manni, þeg- ar rætist bókstaflega þetta: „Ef þannig einhver er í Kristi, er hann ný skepna (sköpun), hið gamla varð að engu, sjá, það er orðið nýtt.“ (2. Kor. 5. 17.). Efnafræðingar Flóa olíufélagsins tóku svartan, óhrein- an, saurugan, ólyktarúrgang frá olíuhreinsunarstöðinni og gerðu hann að hreinni, hvítri, gagnsærri glæolíu (para- fín). Slík er hugkvæmni manna, tengd krafti vísindanna. En hvorki menn né vísindi geta tekið mannshjartað, sem er svart af synd og gert það hreint og flekklaust. Menn geta ekki tekið manneðlið, óhreinkað og atað af saurgun Satans, og gert það að máttugu verkfæri réttlæt- isins. Slíkt krefst guðlegs máttar. Guð sjálfan þarf til að gera slíka umbreytingu. Umhverfið, hugsanakraftur, viljakraftur, allt þetta get- ur afrekað miklu, svo langt sem þau ná, en þau eiga sín takmörk, sem þau komast ekki yfir. Enginn mannlegur máttur, enginn ofdrykkjumaður, hefir nægan viljakraft til að steinhætta að drekka á einu andartaki, — langa aldrei framar í áfengi — að lausn hans sé leiftursnögg og varanleg. Læknisvísindin munu einnig staðfesta þá staðreynd, að hafi líkami mannsins verið gagnsósa af áfengi árum sam- an, þá geti líkaminn ekki staðizt það, að vínnautn sé snögg- lega hætt, það yrði of mikið áfall fyrir hann. Þess vegna er vínskammturinn smám saman minnkaður, þegar menn eru að ganga undir „lækningu". En Guð getur tekið mann og gefið honum andlega lækn- ingu, svo að hann fái að reyna fullkomna lausn á einu and- artaki og verði í sannleika „nýr maður í Kristi Jesú.“ Það þarf einhvern, sem er meiri en maður, til að end- urleysa menn þannig! Reynið að skýra svo dásamlega gerbreytingu mannlegs eðlis án hins mikla kraftar heil- ags Anda, reynið að skýra slíka frelsun án kraftaverka- máttar Jesú Krists, það verður móðgun við mannlega skyn- semi og svívirðing á nafni og persónu Krists, sem frelsaði Loforð Drottins „Akalla mig á degi neyðarinnar; ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.“ Sálm. 50. 15. „Þann, sem til mín kemur mun ég alls ekki burt reka.“ Jóh. 6. 37. „Hver, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.“ Róm. 10. 13. Hvernig á að lifa fyrir Guð? Eftir dr. Oswald J. Smith. Hefir þú veitt Jesú Kristi viðtöku sem frelsara þínum? Eru syndir þínar fyrirgefnar? Vitnar Andi Guðs með þínum anda, að þú sért Guðs barn, að þú hafir stigið yfir frá dauðanum til lífsins? (Róm. 8. 16.). Hefir þú endur- fæðzt, vilt þú í raun og veru nota líf þitt fyrir Guð? Sé það svo, þá eru hér fimm atriði, sem ég bið þig að gera: Fyrst af öllu. — Vertu fullviss um sáluhjálp þína. Hvernig getur þú vitað, að þú sért hólpinn. Af orði Guðs. Dauði Krists fyrir þig gerir þig óhultan, og Orðið gefur þér fullvissu. „Þetta hefi ég skrifað yður, til þess að þér VITIÐ, að þér hafið eilíft líf.“ (I. Jóh. 5. 13.). Hér stendur ekki: „Til þess að þér megið vona, halda, gizka,“ heldur: „til þess að þér V-I-T-I-Ð — vitið.“ Það stendur ekki: „Þessar sælu tilfinningar hefi ég gefið yður,“ heldur: „ Þetta hefi ég skrifað yður.“ Hvað stendur skrifað? „Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka.“ (Jóh. 6. 37.). Hefir þú komið? Hvar ertu þá? Hjá Kristi eða rekinn burt frá honum? Hann segist ekki reka þig burt. Þess vegna hlýtur hann að hafa tekið á móti þér. Enn stendur skrifað: „Öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn.“ (Jóh. 1. 12.). Hefir þú tekið á móti honum? Hvað ertu þá? Guðs barn, er ekki svo? Skilur þú það, að fullvissa þín er eingöngu háð orði Guðs. T.ilfinningar þínar geta breytzt á hverjum degi. Þér getur „fundizt“ í dag, að þú sért frelsaður. Á morgun getur þér fundizt, að þú sért glataður. Farðu ekki eftir tilfinningum þínum. Farðu eftir orði Guðs. Trúðu því, sem hann segir. Orð Guðs breytast aldrei. „Trúin kemur af boðuninni, og boðunin byggist á orði Krists." (Róm. 10. 17.). „Trúin kemur af . . . orði Kr.ists.'1 Það er þá. þegar þú þorir að trúa, að Andinn ber vitni með þínum anda, að þú ert Guðs barn. Þannig öðlast þú fullvissuna um sáluhjálp þína. í öðru lagi. — Taktu opinbera afstöðu með Kristi. Ég segi: opinbera afstöðu. Reyndu ekki að vera leyni- legur lærisveinn Krists, því að það fer út um þúfur. Drag fána þinn að hún, og láttu alla sjá þig. Játaðu trú þína á Krist við hvert tækifæri. Segðu öðrum frá honum. Fel þú ekki ljósið þitt. „Hver, sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, fyrir hann mun manns-sonurinn blygðast sín.“ (Mark. 8. 38.). Ef þú vilt, að hann kannist við þig, þá verður þú að kannast við hann. Ef þú vilt vaxa fljótt and- lega, viðurkenndu hann opinberlega. Gerðu það nú, þeg- ar í stað. Bíddu ekki þangað til seinna. Byrjaðu þetta undir eins. Það er óviðj afnanlegt. I þriðja lagi. — Snúðu þér frá öllu, sem þú veizt að er rangt. Fyrir kraft Heilags Anda, sem dvelur í þér, muntu öðlast lausn frá valdi synda þinna yfir þér. „Sá er meiri,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.