Norðurljósið - 01.01.1965, Page 22
22
N ORÐURLJ ÓSIÐ
sem í yður er, en sá, sem er í heiminum.“ (I. Jóh. 4. 4.).
„Ef þannig einhver er í Kristi, er hann ný skepna (ný
sköpun), hið gamla varð að engu, sjá, það er orðið nýtt.“
(II. Kor. 5. 17.). Hann gefur þér nýtt eðli, eðlisfar, sem
elskar réttlæti og hatar ranglæti. Heilagur Andi er kraft-
ur þinn, hann gerir þig frjálsan. Nú getur þú unnið sigur.
„Synd skal ekki drottna yfir yður.“ (Róm. 6. 14.).
Þitt hlutverk er að velja réttlætið og að hafna syndinni.
Snú þú baki v.ið henni. Vísaðu henni á brott. Settu allan
þinn nú endurfædda vilja á móti henni. „Hafið andstyggð
á hinu vonda, en haldið fast við hið góða.“ (Róm. 12. 9.).
Ef þú finnur, að einhver sérstök synd loðir við þig, flýðu
þá frá henni. Utrýmdu og deyddu hið illa, sem drottnað
hefir yfir þér. Eigðu ekkert við syndina. Hugsaðu ekki
um syndsamleg efni. „Ef ég hygg á illt í hjarta mínu,
þá heyrir Drottinn ekki.“ (Sálm. 66. 18.). Þegar þú
vilt af öllu hjarta losna undan valdi einhverrar syndar,
þá mun Guð leysa þig undan valdi hennar. Bið Guð um
lausnina vegna verðleika blóðs Krists og fyrir kraftinn í
nafni Jesú. „Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum
líkama yðar.“ (Róm. 6. 12.). Skildu þig alveg frá synd-
inni. Hættu við hana algerlega. Hlýðnastu ekki freisting-
unum. „Látið af að gera illt. Lærið gott að gera.“ (Jes.
1. 16., 17.).
í fjórða lagi. — Notaðu mikinn tíma til biblíulesturs
og bœnar.
Því meir, sem þú lest biblíuna, því meir mun þig langa
til að lesa hana. Ef þú vilt vaxa í náð, mættu þá Guði í
bæn á hverjum degi. Hafðu þinn ákveðna bænastað og
stund til bænar og biblíulesturs. Vertu biblíu-kristinn.
Láttu engan dag líða hjá, svo að þú eigir ekki stund með
Guði í einrúmi. „Sækizt eins og nýfædd börn eftir hinni
andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér getið dafnað.“
(I. Pét. 2. 2.). „Með hverju getur ungur maður haldið
vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði
þínu.“ (Sálm. 119. 9.). Ef þú vanrækir orð Guðs, muntu
falla frá. Ef þú lærir, hvernig á að biðja, muntu stíga stór
skref í trúarlífinu.
/ fimmta lagi. — Vertu önnum kafinn við að þjóna
Guði.
„Iðjulaust hjarta er vinnustofa djöfulsins.“ Fáðu þér
því eitthvað að gera. Gefðu fólki kristileg smárit. Vertu
með þar, sem er lifandi kristilegt starf. Farðu þangað,
sem fólki er boðið að koma fram og taka á móti Kristi,
þar sem sálir frelsast, þar sem prédikað er: „Yður ber
að endurfæðast.“ Bíð þú ekki eftir því, að þú sért beðinn
að gera eitthvað. Ger þú þetta að bænarefni og tak til
starfa. Vertu með í söngflokknum. Hjálpaðu til í æsku-
lýðsstarfinu. Vertu með á bænasamkomunum. Talaðu
persónulega við fólk. Kenndu flokki í sunnudagaskólan-
um. Taktu þátt í útisamkomum. Vitjaðu hinna fátæku,
hinna sjúku og þeirra, er sitja í fangelsi. Vitnaðu um
Krist.
Þetta nægir, v.inur minn. Meira þarf ég ekki að segja.
Ef þú ert fullviss um frelsun sálar þinnar, tekur opinbera
afstöðu með Kristi, snýr þér frá öllu, sem þú veizt, að
er rangt, ef þú notar mikinn tíma til biblíulesturs og bæn-
ar, og ef þú ert önnum kafinn við þjónustu fyrir Guð,
þá mun þér vegna vel. Þú munt verða skínandi ljós og
reyna sælu lífsins með Kristi. Guð mun nota þig í þjón-
ustu sinni og þú munt verða mönnum til blessunar, hvar
sem leið þín liggur.
---------x---------
Verið ákveðin í bæninni
Þýtt úr bókinni „Prayer“ (Bœn) eftir dr. John R. Rice.
í Kingham, Texas, talaði ég á biblíu-móti í meira en
klukkustund um bæn og hvatti fólkið til að vera ákveðið,
að vera alvara, þegar það bæði. Ég sýndi með mörgum
ritningargreinum, hvers vegna við megum með djörfung
biðja um afturhvarf syndara. Er guðsþjónustan var úti,
kom til mín ung hjúkrunarkona, sem hafði verið kristin
um það bil eitt ár. Með andlitið uppljómað af ljósi frá
himni sagði hún: „Svo að þetta er aðferðin við að biðja,
er ekki svo?“
Ég svaraði: „Þetta er aðferðin við að biðja.“
„Jæja, þá ætla ég að fá tvo bræður mína frelsaða í
kvöld,“ sagði hún. „Ég hefi verið að biðja fyrir þeim nú
í eitt ár, en ég hefi beðið þannig: „Drottinn, frelsaðu
bræður mína áður en það er of seint.“ Nú fer ég heim og
bið Guð að frelsa þá í kvöld.“ Þar með gekk hún heim.
Mér leið ekki vel. Ég. fór að hugsa: „Er hún að treysta
á orð mín, eða er hún í raun og veru að treysta Guði?“
En hún fór heim og notaði tímann til bænar og hafði
um kvöldið þá unaðslegu fullvissu í hjarta sínu, að Guð
ætlaði að frelsa tvíbura-bræður hennar.
Um kvöldið kom móðurbróðir hennar 14 mílna (um 20
km.) leið og frelsaðist dásamlega. Þá kom móðir hjúkrun-
arkonunnar, er hún sá bróður sinn frelsast svo dásamlega,
grátandi fram og játaði, að hún hefði verið fráfallin, hún
hefði ekki haft þær áhyggjur út af börnum sínum, sem hún
hefði átt að hafa. Þá sá ég koma niður af svölunum tvo
unga ágæta menn, seytján ára gamla tvíbura. Með þeim
var safnaðarhirðirinn, og þeir komu opinberlega fram til
að veita Kristi viðtöku. Það getur verið, að Guð hafi þurft
að ná móðurbróðurnum fyrst til að vekja móðurina, og
það getur verið, að hann hafi þurft að vekja móðurina
áður en hann gat náð til piltanna; en Guð neitaði ekki ein-
lægri, ákafri beiðni ungu hjúkrunarkonunnar, sem bað
Guð að frelsa bræður sína þá um kvöldið, beiðni hennar,
sem reiddi sig á orð Guðs og skýr fyrirheit þess.
Ég segi, að íhugun orðs Guðs hjálpi okkur til að verða
ákveðin í bænum okkar. Er við hugleiðum Guðs orð, sjá-
um við, hve mjög hann þráir að gefa okkur og hve ríku-
lega hann hefir boðizt til að svara bænum okkar. Við get-
um komizt eftir því, hvað það er, sem samkvæmt er vilja
hans, og þannig orðið djarfari til að biðja um ákveðna
hluti á ákveðnum tíma.
Stundum þarf að bíða nokkuð eftir Guði áður en maður-
inn ljóslega veit, um hvað hann á að biðja. Láttu heilagan
Anda tala við þig. Bið þú Guð að sýna þér það, sem rangt