Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 24

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 24
24 NORÐURLJQSIÐ Molar frá borði Meistarans. (Greinir handa lœrisveinum Krists.) Ofund og mögl Lesið 4. Mós. 16.1. Kor. 10. 10. Þegar Israelsmenn komu að Sínaí-fjalli, voru þeir þjóð. Þegar þeir fóru þaðan, voru þeir orðnir þjóðfélag, sjálf- stætt ríki, þegnar á leið til landsins, sem Guð hafði heit- ið þeim. Konungur þeirra var Jahve, Drottinn, sjálfur. Fulltrúi hans í þjóðfélaginu var æðsti presturinn. „Þér skuluð vera mér prestaríki.“ Æðsti presturinn hafði brjóstskjöld- inn ásamt höklinum, sem hann var festur við. Þar mátti hann leita úrskurðar Drottins sjálfs, þegar þekking eða vizka manna var komin í þrot. ísrael var því eigi lengur safn manna, myndað úr mörg- um ættkvíslum, heldur skipulegt þjóðfélag. Forustuvald- ið, leiðtogastarfið, var í höndum Leví-ættkvíslar. Ef til vill hlaut hún það að launum, að fá að þjóna Drottni öðr- um ættkvíslum fremur, eftir hina ákveðnu afstöðu, sem Levítarnir tóku með Drottni, er Drottinn vildi hegna lög- leysi og uppreisn fólksins, þegar það hafði gert gullkálf- inn. Hins vegar fengu ekki allir Levítar jöfn réttindi. Aron og ættleggur hans hafði þau sérréttindi að mega ganga fram fyrir Guð og brenna reykelsi. Ofund er samgróin mannlegu eðli. Hún er ávöxtur synd- arinnar og leiðir einnig til syndar. Ef til vill var það öf- und, sem Satan varð að falli, svo að hann gerði uppreisn gegn Guði. Menn öfunda aðra, sem þeim finnst að beri betri hlut frá borði en þeir sjálfir. Það getur verið stétt eða staða, eignir eða peningar, glæsileikur eða gengi mannsins, sem öfundina kveikir. Uppreisnin, sem þeir Kóra, Datan og Abíram gerðu, spratt af öfund. Kóra vildi ná í embætti prestsins. Hinir öfunduðu Móse af valdi hans og vildu ekki lúta því lengur. Drottinn tók af skarið með það, hverjum augum hann leit á uppreisn þeirra félaganna þriggja. Eldur eyddi Kóra og mönnum hans. Jörðin gleypti Datan og Abíram og allt, sem þeir áttu. Öfund er eitt af því, sem ritningin býður lærisveinum Krists að afleggja. 1. Pét. 2. 1. Hún er eitt af verkum holdsins. Gal. 5. 21. Þeir, sem lifa í öfund, eru öfund- sjúkir, mega ekki búast við að erfa guðsríki. Svo mikið illt getur hún af sér leitt, að í Orðskv. 27. 4 er hún talin verri en heift og reiði. „Hver fær staðizt öfundina?“ Jósef var elskaður af föður sínum. En bræður hans öfunduðu hann. Öfundin leiddi þá til að ráðgera að drepa hann. Barnlaus Rakel öfundaði Leu, þótt hún ætti sjálf ást Jakobs, af því að Lea ól honum börn. Öfundin var aflið, sem knúði æðstu menn Gyðinga til að framselja Drottin Jesúm Pílatusi. „Hann vissi, að æðstu prestarnir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.“ Mark. 15. 10. Kveða iná svo að orði, að öfund sé hálfsystir hrokans og alsystir eigingirni og sjálfselsku. Öfund knýr mann- inn, sem elur hana í brjósti sér, til að reyna að verða að minnsta kosti jafnoki þess, sem hann öfundar, eða þá að ryðja honum alveg úr vegi. Þetta er hroki, því að ritn- ingin segir: Metið með lítillæti hver annan meir en sjálf- an sig. Þetta gerir öfundin ekki. Lítillæti getur hún ekki sýnt. Hún getur ekki tekið lægri sessinn eða umborið það, að annar beri úr býtum hnossið, sem hún þráir sjálf. Hún gerir manninn eigingjarnan, sjálfselskufullan, og drepur í hjarta hans kærleikann til annarra. Hún treður fótum boð Guðs og vilja. Hún er uppreisn gegn honum jafnt í dag, sem á dögum þeirra Kóra, Datans og Abírams. Undarlegt er mannshjartað og ótrúlega blint. Israel horfði á stórmerki þau, sem Drottinn gerði, þegar hann lét jörðina opnast og gleypa þá Datan og Abíram. Áður hafði dýrð Drottins birzt öllum söfnuðinum. Eldur hafði gengið út frá Drottni og eytt Kóra og flokki hans. Lýðnum var að sjálfsögðu kunnugt um það. Eigi að síður möglar allur söfnuður ísraels í gegn þeim Móse og Aroni og sagði: „Þið hafið myrt lýð Drottins!“ Og fólkið safnaðist saman gegn þeim. Dagar þeirra hefðu sjálfsagt verið taldir, ef Drottinn hefði eigi afstýrt áformi fólksins. Reiði gekk út frá Drottni, plága byrjaði. En Aron hljóp að boði Móse inn í söfnuðinn, friðþægði fyrir fólkið og stóð á milli hinna dauðu og hinna lifandi. Þá staðnaði plág- an. Má af þessu atviki sjá, hve mögl er alvarleg synd. Þetta atvik er minnzt á í 1. Kor. 10. 10: „Möglið ekki heldur, eins og nokkurir þeirra mögluðu og fórust fyr- ir eyðandanum.“ Trúað fólk nú á dögum er því í hættu fyrir þessari synd. Hún liggur í eðlinu gamla, sem aldrei vill lúta Guði né gera sér að góðu ráðstafanir hans. „Gerið allt án mögls,“ er boðað í Fil. 2. 14. Öfund og mögl eru hræðilegar syndir, þegar þær komast í söfnuði eða samfélög trúaðra. Skaðinn, sem þær geta valdið, er óútreikanlegur. Þegar far.ið er að gagnrýna og setja út á bræður og systur í Kristi eða leiðtoga, hirða og kennara kristinna manna, rangdæma þá, gera lítið úr þeim og lítilsvirða þá, er skammt til andlegs ófarnaðar þeirra, sem slíkt temja sér. Auðvitað geta leiðtogar, hirð- ar og kennarar kristinna manna brotið af sér, og skýlaus brot ber að dæma, en ekki samþykkja með þögninni. En það er þetta nag eða nart, óánægjunöldur, sem setur út á allt að kalla, sem leiðtogarnir gera, sem er svo hættulegt andlegu lífi þeirra, sem temja sér það. Guðs fólk á að vera glatt fólk, ánægt með hlutskiptið, sem Guð hefir úthlutað því. „Ég hefi lært að vera ánægð- ur með það, sem ég á við að búa,“ ritaði postulinn Páll. Það var víðs fjarri honum að mögla yfir kjörum sínum. Hann sóttist ekki eftir því, að vera talinn fremstur post- ulanna. Hann ritaði: „Ég er síztur postulanna og er þess ekki verður að kallast postuli.“ Þetta er að hafa hugarfar Drottins Jesú Krists. Hve fjarri það var honum að vilja upphefja sjálfan sig. Hann jafnvel afklæddist Guðs-mynd sinni og gerðist maður, fá- tækur, fyrirlitinn maður, talinn með lögbrotsmönnum og deyddur á krossi. Aldrei kenndi nokkurrar öfundar hjá honum, aldrei mögls, ekki einu sinni þegar hann varð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.