Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 49

Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 49
NORÐURLJÓSIÐ 49 BARNAÞÆTTIR SÖGUR EFTIR VICTOR ROGERS. 1. FREKJULEGI HVOLPURINN. Stóra skipið lá fyrir akkerum á höfninni. Niðri í káetu skipherrans, þar sem foringjarnir sátu að kvöldverði, var ekki talað hátt. Þar var sérstakur gestur, sem var hvorki meiri né minni en sjálfur yfirherpresturinn, þótt hann væri glaðlyndur hisk- up, sem nú var önnum kafinn við að borða. Skyndilega hætti samtalið, og allir litu upp, þeg- ar einn hinna yngri foringja sagði: „Biskup, ég trúi ekki á Guð!“ Biskupinn hélt áfram að borða, en glampar voru í augum hans. „Biskup,“ endurtók ungi maðurinn, „heyrðuð þér, hvað ég sagði?“ „Afsakið,“ sagði biskupinn brosandi. „Ég sagði, að ég tryði ekki á Guð.“ Allir biðu hljóðir eftir svari biskupsins. Augu hans glömpuðu ennþá meir, meðan hann lauk í hægðum sínum við síðasta munnbitann og lagði til hliðar hníf og gaffal. „Það var einu sinni stór sveitabær,“ sagði hann. „Umhverfis hann var fagur garður og sléttir gras- fletir, sem lágu niður að spegilsléttu vatni. Dálít- ið frá húsinu var trjálundur, og mitt á milli húss- ins og trjánna stóð stór hundakofi. Inni í kofan- um var lítill hvolpur, steinsofandi, og aldimmt var. Allt í einu tók máninn að gægjast fram undan skýi, og ljósið frá honum flæddi yfir landið. Það lýsti yfir sveitahæinn, yfir vellina, vatnið fékk á sig silfurlit, og trjálaufið fór að glitra. Ljósið streymdi líka inn í hundakofann, þar sem litli hvolpurinn lá steinsofandi, og það vakti hann. Hvolpurinn fór út í dyrnar, leit á mánann og fór að gelta og gelta og gelta að honum.“ Biskupinn sneri sér að svo mæltu aftur að disk- inum sínum og hélt áfram að borða. Sumir af eldri mönnunum brostu, og ungi foringinn varð hrukk- óttur kringum augun. Allir biðu eftir, hvað hann segði. „Jæja, biskup, hvað gerðist?“ „0,“ sagði biskupinn og brosti stóru brosi, „mán- inn hélt áfram að skína eftir sem áður.“ Já, Guð er til. Stundum sjáum við auglit hans, stundum koma skýin á milli hans og okkar, en hann heldur áfram að vera til eftir sem áður. Davíð konungur ritaði í Sálmunum: „Heimsk- inginn segir í hjarta sínu: ,Enginn Guð,‘ “ og höf- undur Hebreabréfsins segir okkur, að án trúar sé ómögulegt að þóknast honum, því að sá, sem geng- ur fram fyrir Guð, verður að trúa því, að hann sé til og að hann lætur þeim launað, sem leita hans (af kappi). Ó, já, Guð er til! Guð er til! 2. HVER ER HRÆDDUR VIÐ LJÓN? Það var kominn tíminn að gefa dýrunum í dýra- garðinum matinn. Ljónið skálmaði fram og aftur um búrið sitt. Það beið með óþreyju eftir stóru kjötstykkjunum, sem það átti að fá. Tumi og pabhi hans voru meðal fólksins, senr ávallt safnast saman, þegar matmálstími dýranna kemur. En fleira vakti athygli hans Tuma. Hann horfði á fallegan, lítinn hvolp, sem hausinn á gægð- ist upp úr frakkavasa stórvaxins manns. Tumi sá, að hvolpurinn varð því hræddari sem ljónið öskraði hærra og eftir því, sem það kom nær grindunum. Hvolpurinn skalf og iðaði og vældi af hræðslu. Stóra manninum leiddist þetta, og hann var farinn að reiðast. „Þegiðu, geturðu það ekki?“ kallaði hann til hvolpsins. En hvolpurinn vældi samt af ótta. „Þarna, þegiðu, eða ég fleygi þér inn til Ijóns- ins,“ sagði maðurinn og hristi litla hvolpinn. Tumi hélt, að maðurinn væri vitlaus eða drukk- inn að tala svona við vesalings, lítinn hvolp. Gat hann ekki séð, að hann var hræddur? Allt í einu reyndi hvolpurinn að losna úr stóra frakkanum og frá manninum. Hann rak báðar framlappirnar í andlit mannsins, og klærnar á þeim voru beittar. Maðurinn varð fjarska reiður snöggvast, tók litla hvolpinn og ýtti honum inn á milli rimlanna, svo að hann datt vælandi inn í búrið til ljónsins. Fólkið rak upp hljóð. Tuma til undrunar gekk ljónið aftast í búrið, og þar lagðist það niður og teygði stóru framhramm- ana framfyrir sig. Hvolpurinn stóð grafkyrr. Hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.