Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 51

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 51
N ORÐURLJ ÓSIÐ 51 •verið í eldi ofsóknanna. En þessir menn liafa aðeins brotið litlu axirnar sínar — biblían hefir haldið áfram að vera hin sama. Öguðlegir menn hafa farið með biblíuna upp á hæð sjálfsálits síns og þar kast- að henni niður fyrir þverhnípi hroka síns og síðan látið hana eiga sig. Sérhver drengur eða stúlka, sem er að leita að gulli, getur fundið hana og opnað hana með lykli bænarinnar. Sérhvert dýrmætt fyrirheit hennar er hið sama enn og það var, þegar Guð setti það í biblí- nna fyrir löngu. Biblían hefir ekki breytzt, af því að Guð breyt- ist ekki, og það eru margar þúsundir dýrmætra orða i biblíunni, sem Guð hefir sagt. Já, — Guð, sem er, sá Guð, sem er svo mikill, er sá Guð, sem hefir talað til okkar í biblíunni. Guð hefir talað. 4. SÍRÓPSBOLLUR. Villa þóttu góðar sírópsbollur; stórar, sverar boll- ur, fullar af rúsínum og smurðar að ofan með þykku sírópi, — stórar, mjúkar, sverar sírópsbollur. Þarna voru þær, kynstur af þeim, heilar raðir, fullir bakkar af stórum sírópsbollum, fullum af rúsínum og með sírópi. Engin furða var, að augun á honum Villa voru galopin, engin furða, að vatnið kom fram í munn- inn á honum, engin furða, að freknótta, stutta nefið á honum Villa var klemmt fast að rúðunni á brauð- búðinni. Og Villi var ekkert nema sulturinn, löng- unin í þessar dásamlegu sírópsbollur. En Villi átti enga peninga, hann gat ekki fundið svo mikið sem eina krónu í vasa sínum. Fyrst fór önnur óhreina höndin hans niður í vasa og síðan hin djúpt niður í vasana, sem geymdu allt, að því er virtist, nema peninga. Þar var snæri og líka vasa- hnífur með einu mjög góðu blaði, og hitt var gott svo langt sem það náði. Þar voru alls konar naglar, stubbur af blýanti, strokleður dálítið óhreint, vasa- klútur, piparmynta, tvær karamellur og golfkúla, sex marmarakúlur og buxnatala, en ekki ein króna, -— ekki ein lítil króna. „Auðvitað, ef þú ert svo ríkur að geta ekið um í dýrasta bíl, þá eru sírópsbollur aðeins handa hænsn- um,“ sagði Villi við sjálfan sig, um leið og stór, svört bifreið nam staðar við gangstéttina. Hann horfði á með athygli, er hurð var opnuð og hávax- inn, ungur maður kom út. Hann var myndarlegur ungur maður, mjög vel búinn, og hann var gáfu- legur á svipinn, vingjarnlegur og góðlegur. Villi veitti því samt mesta athygli, að hann stefndi beint inn í brauðbúðina. Villi sá hann ganga þar inn. Hvað gat hann verið að gera þangað? Var hann að sækja húsaleiguna, eða tala um eitthvað lögfræði- legt, var hann læknir eða sérfræðingur í einhverj- um sjúkdómi og kominn til að finna sjúkling, eða þótti honum líka góðar sírópsbollur? „Eg hugsa hann verði þar einhvern eilífðartíma,“ hugsaði Villi, en honum skjátlaðist. Hvað sem ókunni maðurinn var að gera, tók það hann ekki langan tíma. Hann gekk framhjá Villa með ákveðn- um skrefum, þegar hann gekk aftur til vagnsins. En hvað er þetta? Ókunni maðurinn stanzar, lítur við. Hvað er það við holduga, freknótta og ekki of- hreina andlitið á litla vininum okkar, sem dregur að sér athygli hans? Hvers vegna horfir hann á Villa? Okunni maðurinn stingur hendinni langt niður í vasa sinn og tekur upp fallegar 15 krónur. „Hérna, vinur minn,“ segir hann við Villa, „kauptu eitthvað af kökum handa þér,“ og þar með var hann kominn inn í vagninn, hurðin lokast með lágum smelli, og vagninn rennur hljóðlaust af stað frá gangstéttinni. „Hvers vegna,“ hugsaði Villi, „gerði hann þetta? Ég hefi ekkert gert til að fá þetta, ég á það ekki skilið, svo að ég muni. Ég var ekkert sérstaklega góður eða neitt. Nei, hann var vingjarnlegur á svip- inn. Það hlýtur að vera AÐEINS ÞETTA, AÐ HANN VAR GÓÐUR.“ Stundum, þegar við fáum indælan sólskinsdag, segir fólk: „Jæja, það var kominn tími til, að við fengjum dálítið sólskin eftir allt vonda veðrið, við eigum það skilið.“ En er það rétt? Nei, Guð gefur okkur ekki fallegt sólskin, hressandi regn, hvítan snjó, græna velli, bláar bárur, gullin blóm, góða vini, fjölskyldur og margt og margt, af því að við áttum það skilið. Hann sendi ekki Jesúm í heiminn, af því að við áttum það skilið. Hann blátt áfram elskar okkur. Hann er blátt áfram góður. Það er ástæðan. Hefir þú nokkurn tíma sagt „Þakka þér fyrir“ við Guð, að hann er svo góður? Guð er svo GÓÐUR við okkur. Guð er GÓÐUR.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.