Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 69

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 69
N ORÐURLJ ÓSIÐ 69 hreiður. Fimmtu kynslóðinni var sleppt út í náttúruna. Þeir fuglar fóru þegar í stað að búa sér til hreiður, alveg eins og forfeður þeirra. Svo margbrotin og vönduð eru hreiður sumra fugla, að því verður naumast trúað, að þau séu gerð af eðlishvöt, en ekki af viti og hugsun. Baltimore gullþrösturinn býr sér til hreiður, sem líkist litlu hengirúmi, þegar það er fullgert. Reykháfa múrsvalan býr sér til hreiður innan í holu tré eða ónotuðum reykháf. Hreiðrið límir hún fast við vegg- inn. Hvaðan fékk svalan límverksmiðju í gogginn? Hvers vegna hefir hún þetta lím í goggnum, en ekki aðrir fuglar, t. d. hrafninn eða dúfan? Hún hlýtur að hafa verið sköpuð þannig. EINKENNILEGIR fuglar, ólíkir öllum öðrurn, bera vitni um Guð og sköpunina. Vatruiþrösturinn (Water ouzel) flýtur eins og korkur ofan á vatninu. Allt í einu sekkur hann eins og steinn niður í straumhröðum læk og gengur þar fram og aftur að vild. Hann getur að v.ild flogið um í loftinu, synt á vatni og gengið um niðri á botni þess. Þannig getur hann aflað sér fæðu. Ef þessir hæfileikar þróuðust, af því að það var gott fyrir fuglinn, hvers vegna þróuðust þeir ekki hjá öðrum fuglum, sem hefðu haft gott af að geta þetta? Svarið er auðvitað: Guð skapaði fuglinn svona, að hann getur tæmt líkama sinn af lofti og því sokkið eins og steinn. KIWI fuglinn í Nýja Sjálandi þótti brezkum vísinda- mönnum ótrúleg saga, þegar þeir fréttu fyrst um hann. Hver hafði nokkru sinni heyrt um fugl, sem hefir veiðihár eins og köttur, nasir við endann á löngu, bognu nefi? Hvar átti heima fugl, sem grefur niður í jarðveginn líkt og jarð- grís (ground hog), og verpir eggi, sem að þyngd er einn fjórði hluti þyngdar hans sjálfs? Hver hafði séð fugl, sem er án stéls, fugl, er hefir þumlungslanga, gagnslausa vængi, hulda í silkimjúku, hárlíku fiðri? Samt er það staðreynd, að slíkur fugl er til, Kiwi fuglinn. Hann á frænda í Astralíu, sem nefndur er flatnefur, en telst þó til spendýra. Þeir eiga það sameiginlegt, að enginn getur gert grein fyrir því, hvernig þeir hefðu átt að þróast — og verða svona — út af nokkru dýri eða fugli, sem verið hefir til. Guð virðist hafa skapað þá til að gera að engu hugmyndir manna um þróun! KÓLÍBRÍ fuglinn, minnsti fugl í heimi, getur haldið sér hreyfingarlausum í loftinu, Og auk þess að fljúga áfram, flogið til hliðar og aftur á bak. Enginn annar fugl getur þetta. Ef þetta er gagnlegt fyrir kólibrí fuglinn og kom vegna þróunar, hvers vegna geta aðrir fuglar þetta ekki? Þetta er þó tegundinni tíl gagns. FARFUGLARNIR vitna um Guð, ekki þróun. E. G. F. Sauer, fuglafræðingur og kennari við háskólann í Frei- burg í Þýzkalandi, ritaði árið 1958 grein um þýzku „Garð- söngvarana". Hver fugl flýgur aleinn og einungis að nætur- lagi frá Þýzkalandi til Suður-Afríku. Tilraunir hafa sann- að, að hann hefir stjörnurnar sér til leiðbeiningar. Eftir vissri afstöðu þeirra til jarðarinnar hefur hann ferð sína haust og vor. Enginn kennir öðrum, því að allir fljúga einir, ungarnir jafnt sem hinir fullorðnu. Sauer prófessor dregur það í vafa, að þróun hafi komið þessu til leiðar. SÖNGFUGLARNIR veita mönnum margar unaðar- stundir með söng sínum. Lærðu mennirnir kenndu áður fyrr, að karlfuglarnir syngju til að hæna kvenfugla til sín, og þannig hefði söngur þeirra smátt og smátt orðið til. Nú er sannað, að þetta er ekki rétt. Auk þess mætti benda á fugla, sem gefa frá sér söng á öðrum tímum en um varp- tímann. HÁÐFUGLINN (mockingbird) hermir eftir öðrum fugl- um svo nákvæmlega, að naumast verður greint á milli hans og þeirra. Einn háðfugl hermdi eftir 32 tegundum annarra fugla, meðan hann söng látlaust í 10 mínútur. Þegar kaflanum um fuglana er að ljúka, stendur í bók- inni: „Vísindamenn eru að lokum komnir að þeirri niður- stöðu, — úr því að „náttúruvalið“ er ekki skýringin og ekki heldur kenningin um „áunna eig,inleika“, þá HLJÓTI það að vera „stökkbreytingar“ — eða þá GUÐ.“ .... „Flestir nútíma vísindamenn viðurkenna, að kenningin um þróun verður ekki sönnuð, en þeir vilja heldur hafa þessa kenningu en kannast við GUÐ og sköpunarverk og verk hans.“ Þeir hittast enn, Arni og Bjarni, er þeir höfðu kynnt sér alla bókina: „Hvers vegna vér trúum á SKÖPUN, ekki á þróun.“ „Satt er það, aldrei hafði mér dottið í hug, að svona margt væri til, sem virðist sýna sköpun, en ekki þróun,“ varð Bjarna að orði. „En ég get ekki skilið, að það sé rétt, sem biblían seg.ir, að Guð hafi skapað allt, ef hann er til, fyrir 6000 árum eða svo. Vísindin hafa sýnt, að það er óra- langur tími, síðan jörðin okkar varð til.“ „Hvar stendur það í biblíunni, að Guð hafi skapað allt fyrir 6000 árum eða svo?“ spurði Árni. „Ja, ég veit það ekki, en þetta hefi ég heyrt,“ svaraði Bjarni. „Það er nú samt ekki satt,“ mælti Árni. „Ég hefi lesið alla biblíuna. Það stendur þar ekki. Biblían segir: ,í upp- hafi skapaði Guð himin og jörð.‘ Hún nefnir ekkert, hvé- nær það upphaf var. Annars hefi ég heyrt, að það séu til margar skýringar á sköpunarsögu biblíunnar. Ein þei'rra er á þá leið, að sagan af sköpuninni sé saga af því, þegár Guð hafi endurskapað allt. Mannkyn hafi verið til á jörð- inni á undan okkar mannkyni. Það hafi syndgað á móti Guði og hann hafi látið það deyja og allt, sem á jörðinni var. Þegar þetta hafi gerzt, hafi verið liðinn óralangur tími frá því, að Guð í upphafi skapaði himin og jörð, og það geti vel verið, að Guð hafi látið þessa fyrri sköpun taka óralangan tíma. En svo, þegar hann skapaði allt upp aftur, þá hafi sú sköpun ekki tekið nema þessa sex daga, sem biblían talar um. Sé þetta rétt skilið, þá er engin mót- sögn á milli nútíðarvísinda og biblíunnar." „Þetta er merkilegt að heyra, en ég get ekki hugsað mér, hvernig Guð hafi orðið til,“ varð Bjarna að orði. „Ef þú getur hugsað þér, að allur heimurinn hafi orðið til af sjálfu sér, þá líklega getur þú hugsað þér, að Guð hafi ekki þurft neinn til að skapa sig,“ mælti Árni. „Mér dettur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.