Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 72

Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 72
72 NORÐURLJÓSIÐ ÉG TRÚI Á KRAFTAVERK Eftir Kathryn Kuhlman. 4. Amelia. Hún var fjögurra ára. Hún var rétt nýkomin heim. Hún hafði verið við kraftaverka guðsþjónustu. Er hún kom inn í húsið, þaut hún áköf þangað, sem myndin hékk: „Hin síðasta kvöldmáltíð.“ „Þetta er Hann, amma,“ hrópaði hún og benti á þann, sem stóð. „Þetta er Jesús! Ég sá hann hjá ungfrú Kuhlman í dag.“ Amma hafði farið með litlu stúlkuna til guðsþjónustu síðdegis þennan dag. Þetta var eitt hinna fáu skipta, sem hún hafði fengið að koma fyrir manna sjónir í margar vikur, svo hræðileg var hún útlits. Um það bil átta mánuðum áður bar það til, að Amelia litla vaknaði morgun nokkurn, og virtust þá vera blettir af vessandi útbrotum á handleggjum hennar og fótleggjum. Áður en vikan var liðin, var líkami hennar allur þakinn í vessandi sárum. Fyrsti læknirinn, sem farið var með hana til, nefndi sjúkdóminn eksem. Hann fyrirskipaði læknismeðferð, en henni hélt áfram að versna. Er tímar liðu, fóru sárin að blæða mikið, og líkami hennar allur var vafinn í dúkum. Vatn mátti ekki snerta hana, og hún var hreinsuð með olíu eins mjúklega og unnt var. Armarnir voru reifaðir, svo að hún gat ekki sveigt þá, og þeir hengu niður með hliðunum. Það var eins og amma hennar sagði: „Öll hennar húð var opnar sprungur. Blóð og gröftur vætlaði stöðugt úr þeim. Hún var stöðugt þjáð, og það voru henni kvalir, þegar skipt var umbúðum. Hún hljóðaði, ef nokkur kom nálægt henni.“ Það varð alveg ógerningur að greiða hár hennar, svo þakin í sárum varð hársvörðurinn. Augabrúnir voru horfn- ar, og augnalokin voru etin burt af sárum. Eyrun voru raunverulega að rotna af henni, og annað þeirra bókstaf- lega sýndist vera að detta af, svo tært var það orðið af sjúkdóminum. Framan af sj úkdómstímanum hafði hún getað leikið sér með öðrum börnum, en svo fór þeim að bjóða við útliti hennar, og þau forðuðust hana, enda var þeim ekki leyft af foreldrum sínum að heimsækja hana. Aður en andlit hennar og höfuð var orðið svo grátt leikið af sjúkdómnum, hafði móðir hennar reynt að fara út með hana í strætisvagni. En jafnvel þá vildi eng.inn sitja hjá henni, og fólk var tregt til að sitja í næstu sætum. Þótt Amelia væri ung, varð henni sorglega ljóst, hvílíkan við- bjóð hún vakti hjá öðrum. Hún skildi ekki, hvers vegna fólkið starði á hana og sneri sér svo við með þann sv.ip í augum, sem hún skildi ekki. Hún varð ákaflega óham- ingjusöm. Hún grét oft og sagði við móður sína: „Hvers vegna geðjast engum að mér?“ unz sá tími kom, að raun- verulega var aldrei farið með hana út úr húsinu. Svo lengi sem hún gat, lék hún sér heima hjá sér. Er móðir hennar lét hana hjálpa til með heimilisverkin, svo að hún væri ekki aðgerðalaus, var hún mjög hreykin af þvi. Þessu varð þó að hætta, af því að það bakaði barninu æ meiri sársauka að hreyfa sig, og henni varð alls ekki hægt að beygja handleggina. Leitað var til lækna, hvers á fætur öðrum. Þeim kom ekki saman um, hver sjúkdómurinn væri, en allir voru þeir sammála um það, að þetta væri versti húðsjúkdómur, sem þeir hefðu kynnzt á allri sinni læknisævi. Loksins fór svo, að einn læknanna stakk upp á því, að farið yrði með hana til krabbameins lækningastofunnar. Amma hennar sagði v.ið hann þann dag: „Bænin hjálpar líka,“ og læknirinn kinkaði kolli. Þegar hér var komið, meðan beðið var eftir að mega koma með hana í lækningastofuna, lét amma í ljós þá löngun, sem hún hafði lengi fundið til: Hún bað leyfis af móður barnsins að fara með Ameliu til einnar guðsþjón- ustu hjá ungfrú Kathryn Kuhlman. Amma var guðrækin rómversk-kaþólsk kona, eins og öll fjölskyldan, en hún hafði fengið áhuga fyrir þjónustu ung- frú Kuhlman vegna útvarpsþátta hennar. Sjálf hafði hún sótt þó nokkrar guðsþjónustur og fann, að hún hafði öðl- ast mikla hjálp frá þeim. Móðir Ameliu gaf samþykki sitt, að farið væri með barnið, og meir en það. Hún samþykkti að vera á bæn heima, meðan guðsþjónustan stæði yfir daginn eftir. Litla stúlkan hafði alizt upp á trúræknu heimili, og hún var barn einfaldrar og fullkominnar trúar á Drottin og mátt hans til að framkvæma kraftaverk. Hún fór til guðs- þjónustunnar á sama hátt og hinir trúföstu fara til Lourdes — örugg og væntandi þess, að hún mundi læknast, svo að hún gerði engum lengur mein og gæti aftur leikið sér við litlu vinina sína; svo að hún gæti aftur farið út með móður sinni, ferðast í strætisvögnum og fólk gæti brosað til hennar og langað til að sitja hjá henni, en snúa sér ekki undan með skrýtinn svip á andlitinu. En framar öllu, hún trúði ömmu sinni fyrir því: „Mig langar til að sjá Jesúm.“ „Þegar ég bað son minn að aka okkur til guðsþjónust- unnar,“ sagði amma mér seinna, „færðist hann undan því. ,Þú getur alls ekki farið með hana innan um fólk,‘ sagði hann. En ég svaraði: ,Vissulega get ég það. Þeim stendnr á sama‘.“ Sonur hennar var samt ekki eins viss. Hann beið eftir þeim úti fyrir salnum, ef á þyrfti að halda. Þegar þær voru komnar inn, reyndi jafnvel amma að hylja höfuð barnsins sem bezt hún gat með kápunni sinni, svo að þeir, sem sæju hana, yrðu ekki hræddir, því að hún rifjar upp: „Húðin var orðin svo illa sprungin, að leggja mátti títuprjón í hverja sprungu. Hið litla hár, sem eftir var á höfði hennar, var klesst fast við hársvörðinn. Eyru hennar blátt áfram löfðu niður, eins og þau væru bæði tilbúin að detta af.“ Amelia og amma hennar settust aftast í salnum, og voru báðar mér alveg ókunnar. Meðan verið var að syngja við lok guðsþjónustunnar, ýtti Amelia við ömmu sinni: „Sjáðu, amma,“ hrópaði hún upp með hárri röddu, „ég sé Jesúm þarna uppi.“ „Hvar?“ hvíslaði amma hennar. Fólk leit við þarna í salnum, um leið og barnið sagði:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.