Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 76
76
NORÐURLJÓSIÐ
veizt það eða veizt það ekki, þá er sérhver maður syndari
í augum Guðs.
L. Hvers vegna? Eg get ekki skilið það.
R. Er ekki rangt að brjóta lög landsins, t. d. lögin, sem
banna þjófnað, rán, íkveikjur og þess háttar?
L. Vitaskuld er það rangt. En ég er hvorki þjófur, ræn-
ingi eða brennuvargur.
R. Guði sé lof fyrir hvern maíin, sem ekki hefir horfið
út á afbrota veginn. En eigi að síður ertu búinn að segja
mér svo mikið um sjálfan þig, að ég sé, að þú hefir brotið
mesta og æðsta boðorð Guðs. Nú skaltu heyra þetta boð-
orð: „Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu
og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum. Þetta er hið
mikla og fyrsta boðorð. En hið annað er líkt, þetta: Þú
skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ (Matt. 22.
37.—39. Hefir þú haldið þessi boðorð? Þú ferð sjaldan
eða aldrei þangað, sem orð Guðs er flutt. Þú opnar sjaldan
eða aldrei biblíuna, sem er orð Guðs, og þér finnst hún
leiðinleg, og þú ert fyrir löngu hættur að biðja. Er þetta
að elska Guð af öllu hjarta, sálu og huga?
L. Nei, ekki get ég sagt það.
R. Það, að brjóta boð Guðs, rísa gegn vilja hans, það
er að syndga. „Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð.“
Fyrst allir hafa syndgað með því að elska ekki Guð, hvað
hefir þú þá gert?
L. Ég hefi syndgað.
R. Þetta minnir á orð sonarins í fjarlæga landinu. Þú
manst vafalaust söguna af honum. Kristur sagði hana.
L. Það er bezt að rifja hana upp.
R. Það var ungur maður, sem undi sér ekki heima, fór
með eigur sínar í fjarlægt land. Hann skemmti sér mjög
vel og naut lífsins, meðan þær entust. En þegar hann var
búinn að eyða öllu, tók hann að líða skort. Loks ákvað
hann að fara heim aftur og segja við föður sinn: „Faðir,
ég hefi syndgað móti himninum og fyrir þér; ég er ekki
framar verður að heita sonur þinn.“ Síðan tók hann sig
upp, fór heim til föður síns og sagði þetta við hann, sem
hann ætlaði að segja. Faðirinn fyrirgaf honum orðalaust
og fagnaði honum vel.
Fjarlæga landið í sögu Krists táknar syndina. Hún getur
veitt unað um tíma, en svo kemur skorturinn, þreytan, lífs-
leiðinn. Loksins kemur dauðinn, því að „laun syndarinnar
er dauðinn," segir ritningin. Hér er ekki átt eingöngu við
hinn líkamlega dauða, heldur það að glatast, að verða um
eilífð útilokaður frá Guði og samfélagi hans og undir rétt-
látri refsingu.
L. Ég trúi því ekki, að góður Guð láti nokkurn mann
glatast.
R. Leyfði ekki faðirinn syni sínum að fara til fjarlæga
landsins? Hvers vegna leyfði hann það?
L. Af því að sonur hans vildi það. Hefði hann ekki
fengið að fara, hefði hann kvalizt af leiðindum heima.
R. Alveg rétt. Svo hefði hann orðið reiður við föður
sinn að halda sér heima. Þannig yrðu menn reiðir við Guð,
ef hann héldi þeim með valdi. Gat nú faðirinn farið til
fjarlæga landsins með þjóna sína og tekið son sinn þaðan
með valdi?
L. Auðvitað ekki, meðan sonurinn vildi vera þar.
R. Hvernig hefði nú farið fyrir unga manninum, ef
hann hefði ekki viljað taka sig upp og fara heim?
L. Hann hefði að sjálfsögðu dáið þar, nema einhver
hefði hjálpað honum.
R. Það var einmitt það, sem ekki var gert. „Enginn gaf
honum neitt.“ Ungi maðurinn átti aðeins um tvennt að
velja: Deyja eða fara heim. Skilur þú, hvað ég á við?
L. Þú átt við, að við verðum annaðhvort að segja skilið
við syndir okkar og snúa okkur til Guðs eða glatast.
R. Þetta er rétt. Og nú koma gleðifréttirnar. Hlustaðu á:
Drottinn Jesús sagði: „Svo elskaði Guð heiminn, að hann
gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á liann trúir,
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Og ritningin segir: „Guð
auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir
oss dáinn, meðan vér enn vorum í syndum vorum.“ Hún
segir ennfremur: „Kristur Jesús kom í heiminn til að
frelsa synduga menn.“
L. Hvað þýðir þetta, að Kristur sé dáinn fyrir oss?
R. Þegar einhver brýtur lögin, verður hann sekur um
lögbrot. Ef brot hans varðar fangelsi, á hann að fara í
fangelsi. Varði brot hans sektum, verður hann að greiða
sekt. Setjum svo, að sektin sé svo há, að hann geti ekki
greitt hana sjálfur. Þá má vinur hans hjálpa honum og
greiða sektina fyrir hann. „Laun (eða endurgjald) syndar-
innar er dauði.“ Þess vegna dó Drottinn Jesús fyrir okkur,
þig og mig. Réttlæti Guðs heimtaði dauða syndugs manns.
En kærleikur Guðs, elska hans til okkar, sendi Drottin
Jesúm, og hann fullnægði réttlætinu og dó fyrir okkur.
L. Ég er ekki viss um, að ég skilji þetta vel.
R. Þá skulum við láta það bíða að sinn.i. Lítið barn þarf
ekki að vita, hvaða efni eru í mjólk móður sinnar. Það
kemur að brjósti hennar, drekkur og dafnar. Kom þú á
sama hátt til Drottins Jesú nú og veittu honum viðtöku
sem frelsara þínum, því að hann hefir sagt: „Þann, sem
til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka.“ (Jóh. 6. 37.)
L. Hvernig á þá að koma til hans?
R. Á svipaðan hátt og þú kemur til læknis. Þú segir
honum, að þú sért sjúkur og biður hann að lækna þig.
Þú getur til dæmis gert þessa bæn að þinni bæn . . .
L. Andartak, hvernig á ég að gera bæn að minni bæn?
R. Þú leggur vilja þinn, hjarta þitt, í hana, eins og það
værir þú sjálfur, sem værir að tala þessi orð við Guð.
L. Þarf ég að gera það upphátt?
R. Það er ágætt, ef þú ert í einrúmi. En sértu núna stadd-
ur í návist annarra, þá getur þú beðið þessarar bænar hið
innra með þér. Hér er hún:
„Ó, Guð, ég hefi ekki elskað þig af öllu mínu hjarta,
huga og mætti. Þess vegna hefi ég syndgað á móti þér.
Faðir, ég hefi syndgað á móti þér. Fyrirgefðu mér allar
mínar syndir vegna þess, að Jesús er dáinn fyrir mig. Kæri
Drottinn Jesús, ég kem til þín og veiti þér nú og hér við-
töku sem frelsara mínum og Drottni mínum. Nú vil ég
þjóna þér, upp frá þessu en ekki syndinni. Ég þakka þér,
að þú hefir tekið á móti mér, því að þú hefir sjálfur sagt:
„Þann, sem til mín kemur, mun ég alls ekki burt reka.“
í Jesú nafni. Amen.“