Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 80
80
N ORÐURLJ ÓSIÐ
Liggur þér ekki eitthvað á hjarta? Áttu nokkurn vin
eða vinstúlku, sem þú getur talað við um ALLT, sagt frá
öllu, sem fyrir þig kemur, sem þú gerir?
Eg á slíkan vin. Hann heitir Jesús Kristur. Hann elskar
mig, og hann elskar þig, og hann vill vera vinur þinn líka.
Má ég segja þér, hver hann er? Hann er sonur Guðs.
Hann var hér á jörðinni um stuttan tíma. Þá dó hann fyrir
syndir okkar, til þess að Guð gæti á réttlátan hátt fyrir-
gefið þær. Síðan reisti Guð hann upp frá dauðum. Eftir
það steig hann upp til himins, og þar er hann nú. Eigi að
síður sér hann okkur og þekkir öll okkar vandamál. Við
getum trúað honum fyrir þeim öllum, af því að hann
elskar okkur. Þú getur trúað því, að hann elskar okkur
meir en lítið, fyrst hann hefir dáið fyrir okkur.
Það var einu sinni ungur, japanskur námsmaður, sem
kom til kristniboða. Hann langaði til að verða kristinn,
en hann var fullur af ótta og efasemdum í sambandi við
þetta. Það allt sagði hann kristniboðanum, sem svaraði
honum á þessa leið:
„Hvers vegna fer þú ekki aleinn til Drottins Jesú og
segir honum það, sem þú hefir sagt mér?“
Ungi maðurinn kom með alls konar mótbárur, en
kristniboðinn svaraði þeim öllum með því, að vísa honum
til Drottins Jesú.
Japanski pilturinn fór svo burt og hlýddi ráði hans.
Honum reyndist það vel, að tala um allt við Jesúm. Svo
skrifaði hann kristniboðanum bréf og endaði það með
þessum orðum: „Hvernig get ég nokkurn tíma þakkað þér
nóg fyrir það, að þú komst mér í kynni við Hann?“
Má ég að lokum nefna nokkur mál, sem er ágætt og
nauðsynlegt reyndar að tala um við Drottin Jesúm Krist:
Vantrú þína, ef þú trúir ekki, að Guð sé til eða að Jesús
sé sonur hans eða að biblían sé Guðs orð, talaðu um þetta
við Jesúm.
Námið eða atvinnan, ef þú hefir lítinn eða engan áhuga
fyrir þessu, segðu Jesú frá því.
Astamálin, sem oft skipa efsta sætið í huga og hjarta
unga fólksins. Það er sjálfsagt að eiga Drottin Jesúm þar
að trúnaðarvini, fela honum þau og biðja hann um leið-
beiningu, að þú fáir réttu stúlkuna, rétta manninn, svo að
hjónabandið geti orðið gott og farsælt ævilangt.
Vandamál foreldra þinna, ef þú finnur, að þau eiga við
vandamál að stríða. Bið þú Drottin Jesúm að taka þau að
sér, greiða fram úr þeim, og þú gætir bent foreldrum þín-
um á það einslega, hvoru í sínu lagi, að þau ættu að reyna
að fara með allt til Jesú.
Ef einhver illur ávani eða venja hefir náð tökum á
þér, eitthvað, sem þú vilt ekki láta nokkra manneskju vita,
þá er sjálfsagðast af öllu að segja Jesú frá. Leitaðu hjálpar
hans af öllu hjarta. Vertu ákveðinn að hætta með hans
hjálp við allt, sem þú veizt að er rangt.
Líður þér stundum illa hið innra með þér? Finnur þú
til þess, að þú hafir gert rangt? Finnst þér, að þér hafi
mistekizt, að þú hafir ekki breytt eins vel og þú vildir?
Segðu Jesú frá. Bið þú hann að vera frelsari þinn og að
fyrirgefa þér.
Eða þjáir heilsuleysi þig? Verður þú að liggja, þegar
aðrir geta verið úti um allt og leikið sér? Segðu Jesú frá.
Vera má, að með veikindum þínum hafi hann tekið í hönd
þér og leitt þig afsíðis, eins og foringinn systurson Páls,
til þess að þú í einveru með honum gætir sagt honum
allt, sem þér kann að liggja á hjarta.
Tilheyrir þú hinni frjálsu, glöðu æsku, sem lífið leikur
við með hreysti og leiftrandi áhuga?
Þá ert þú einmitt sá eða sú, sem á að koma til Jesú og
helga honum gáfur og krafta.
Athugaðu vandlega þetta, sem kemur hér:
Á ævi minnar árdagsstund,
með æskuglaðri, frjálsri lund,
ó, Kristur, á þinn kærleiksfund
nú kem ég, sem ég er.
Um augnablik ég eigi tef,
en algerlega þér ég gef
mig sjálfa(n), allt sem á og hef
um æskulífsins skeið.
Eg meir og meir vil þekkja þig
og það, sem leiðstu fyrir mig
og feta þinn hinn þrönga stig,
unz þú mig kallar heim.
í sorg og gleði, sælu og neyð,
í svefni, og vöku, lífi og deyð,
nú átt þú mig um æviskeið,
mig allan, sál og líf.
Mér væri mikil þökk á því, að æskufólk, sem hefir lesið
æskuþætti Norðurljóssins, vildi skrifa mér og láta mig
v.ita, ef það hefir haft gagn af þeim.
Áritun mín er: Ritstjóri Norðurljóssins, Akureyri.
-------------------------x---------
Til vina minna í fangelsi
I Þýzkalandi átti ég þó nokkur samtöl við fanga. Við
áttum góðar stundir saman, er við hlýddum á það, sem
Drottinn sagði okkur.
Maður nokkur, sem fyrir dálitlum tíma tók á móti Jesú
Kristi sem frelsara sínum, sagði mér, að hann hefði engan
raunverulegan frið í hjarta sínu. Þetta var ekki það, sem
Guð hafði ætlað honum. Hann skildi það, og gaf Drottni
Jesú líf sitt að nýju.
Leirkerasmiðurinn getur ekki mótað leirinn, meðan
hann er ekki algerlega í hendi hans. Drottinn getur ekki
fyllt hjarta mannsins með heilögum Anda, svo lengi sem
hann er ekki Drottni algerlega gefinn á vald.
Guð gefur heilagan Anda sinn þeim, sem honum hlýða.
í Lúk. 11. 13. er ritað: „Ef nú þér, sem eruð vondir, hafið
vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hversu miklu
fremur mun þá Faðirinn af himni gefa þeim heilagan
Anda, sem biðja hann?“
Svo biðjið þá, og hann mun gefa. Þakkaðu honum fyrir
að hafa gefið þér sinn heilaga Anda. Reiddu þig á hann.
Hve þetta er einfalt og gleðiríkt!
(Þýtt úr „It’s Harvest-Time).