Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 94

Norðurljósið - 01.01.1965, Qupperneq 94
94 N ORÐURLJ ÓSIÐ Sjúklingur og fiðrildi Langþjáður, rúmfastur sjúklingur segir frá því, að hann geymdi hjá sér nærri árlangt keisara-fiðrildi á púpu-skeiði. Hamur þess er flöskulagaður. Þegar það skríður úr hamn- um, fer það út um afarþröngan háls. Það kostar mjög mikla fyrirhöfn, en styrkir vængi þess. Sjúklingurinn sá, hvernig fiðrildið — nærri heilan fyrri- hluta dags — barðist við að komast út. Loks kenndi hann svo í brjósti um það, að hann tók skæri og víkkaði opið. Þá komst það út án frekari fyrirhafnar. Hann bjóst svo við, að það breiddi út vængina sína fögru og fær.i að svífa um stofuna. Af þessu varð ekki. Það skreiddist um gólfið sína stuttu ævi. Því þroskuðust aldrei þeir vængir, sem ljómað hefðu í litum regnbogans, ef hann af skammsýnni meðaumkun hefði ekki gripið fram í þroskafer.il þess. „Það, sem ég lærði þann dag,“ segir hann, „hefir oft komið sér vel fyrir mig. Það hefir hjálpað mér til að skilja þetta, sem Þjóðverjar kalla: „Harðúð kærleika Guðs.“ Eg hefi hugsað um þetta atvik, þegar ég hefi horft meðaumkunaraugum á þá, sem glímdu við sorgir, þján- ingar eða erfiðleika. Og mér hefir virzt, að ég væri misk- unnsamari en Guð, því að feginn hefði ég viljað stytta agann og veita lausn.“ Það er djúpstæð merking í orðum, sem standa í biblí- unni um Krist, að Guð hafi fullkomnað hann „með þján- ingum.“ Var ekki Kristur hinn fullkomni maður, meðan hann var hér á jörðu? Vissulega var hann það frá sjónar- miði siðferðis og kærleika. „Hann drýgði ekki synd, og svik voru ekki fundin í hans munni.“ „Hann gekk um kring, gerði gott og græddi alla, sem af djöflinum voru undirokaðir, því að Guð var með honum.“ Þó varð hann að ganga út í Getsemane, hryggjast, skjálfa, gráta, biðja „með sárum kveinstöfum og táraföllum,“ vera þar í „dauð- ans angist,“ „en sveiti hans varð sem blóðdropar, sem féllu á jörðina.“ I höll æðsta prestsins var hrækt í andlit honum, hann sleginn með hnefum og barinn með stöfum. Hjá landshöfðingjanum var hann húðstrýktur, krýndur með kórónu úr þyrnum og spottaður. Á Golgata var hann krossfestur, hæddur, þjáður af þorsta og yfirgefinn af Guði. Hvílíkar andlegar og líkamlegar þjáningar! En allar þessar þjáningar fullkomnuðu hann, segir ritn- ingin. Hann var látinn reyna þær í ákveðnum tilgangi. Af eigin reynslu þekkir hann síðan, hvað þjáning er. Þess vegna getur hann nú — af því að hann reis aftur lifandi upp frá dauðum — skilið svo vel þjáningar þeirra, sem líða, sýnt þeim samúð, tekið þátt í kjörum þeirra, ef þeir vilja leyfa honum að gera það. Getur þú ekki hugsað þér, að Guð hafi einnig einhvern tilgang með sjúkdómi þínum, sorg þinni, erfiðleikum þínum? Getur ekki verið, að Guð sé með þessu móti að kalla til þín? Er ekki Kristur einmitt nú að segja við þig: „Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld?“ Guð elskar okkur. Hann er góður. En hann getur þurft að beita harðúð kærleikans. Stundum höldum við fast við eitthvað, sem hann hatar, einhverja synd, löst eða brest, sem hann v.ill láta okkur leggja niður. Stundum erum við í uppreisn gegn honum. Hann vill, að við gerum rétt, ekki rangt, og að við beygjum vilja okkar undir vilja hans. Stúlka nokkur lá rúmföst í tíu ár, oft mikið þjáð. í hjarta sínu var hún óánægð með kjör sín. Vilji hennar var á móti Guði. Loks sagði hún við sjálfa sig á þessa leið: „Ef Guð vill láta m,ig liggja, þá vil ég gera vilja hans. Ég er fús til að liggja hér í þúsund ár, sé það vilji hans.“ Eftir eina viku var hún komin á fætur. Guð hafði þurft að draga það í tíu ár að lækna hana, til þess að hún gæti öðlazt þessa miklu blessun: að vilji hennar væri lagður undir vilja Guðs. Fúsleiki og máttur Drottins Jesú til að lækna er hinn sami nú sem forðum. En hann getur þurft að fá vilja okkar lagðan undir vilja Guðs. Hann bað sjálfur: „Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan bikar frá mér! En verði þó ekki minn, heldur þinn vilji!“ Eigum við ekki að biðja þessa bæn saman: „Góði Drottinn Jesús, þú sem fyrirgefur syndir og gerir mönnum gott, ég kem til þín. Ég játa, að ég hefi syndgað á móti Guði. Fyrirgefðu syndir mínar og leggðu vilja minn undir vilja Guðs. Huggaðu sál mína. Bættu úr öllum erfið- leikum mínum, og vertu nú og síðar læknir anda míns, sálar og líkama, jafnvel þótt þú notir menn til að hjálpa mér. Gefðu mér trú til að treysta þér fullkomlega. Bænheyrðu mig fyrir sakir þíns nafns. Amen.“ Láttu ekki bregðast að vegsama Drottin fyrir það, sem hann kann að gera fyrir þig, því að Guð segir: „Akalla mig á degi neyðarinnar; ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig.“ (Sálmarnir 50. 15.). Lestu oft og sem mest í orði Guðs, biblíunni, og segðu öðrum frá, hvað Drottinn Jesús gerir fyrir þig. Guð bænheyri þig á deg.i neyðar þinnar. Nafn Drottins Jesú Krists bjargi þér. Með beztu kveðjum, Sœmundur G. Jóhannesson, Sjónarhœð, Akureyri. Þetta efni er tekið saman eftir hugmynd manns, sem lætur ekki nafns síns getið, og gefið út með styrk frá honum. Ofanskráð grein fæst sérprentuð og ókeypis hjá ristj. Nlj. Hugsjón kostnaðarmannsins er sú, að ritið verði gefið öllum sjúklingum í öllum sjúkrahúsum landsins. Hve mörg eintök vilt þú fá? í Reykjavík mun það fást hjá frú Soffíu Sveinsdóttur, Miðtúni 26. ---------x--------- Utsölumenn óskast fólk, sem vill hjálpa til að útbreiða Norðurlj. og selja það í lausasölu. Hver, sem hjálpar til að selja blaðið, má taka 10 kr. af verðinu — 40 kr. — sem þóknun fyr.ir ómak sitt. Gangi hefti af, sem ekki seljast, má gefa þau öldruðu fólki eða í skip og háta. Skrifið sem fyrst. Afgreiðsla Norður- Ijóssins, Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.