Norðurljósið - 01.01.1965, Blaðsíða 95
NORÐURLJÓSIÐ
95
Lækning kólnaðs hjarta
Eftir dr. John R. Rice.
Þegar ég verð kaldur í hjarta, fer ég ekki að drekka
mig drukkinn eða að blóta. Þetta gerði ég ekki, áður en
ég frelsaðist. Nei, þegar ég finn stundum, að biblíulestur
minn gerist vélrænn og verður mér skyldustarf í stað gleði-
ríkrar, ákafrar nautnar, þá veit ég, að hjarta m,itt þarfnast
endurlífgunar. Sorglega finn ég það, enda þótt ég trúi á
sálvinning (að vinna sálir fyrir Krist) og prédiki sálvinn-
ing, og þó að ég fyrir Guðs miklu miskunn hafi verið fær
um að vinna þúsundir manna mfeð persónulegum samtöl-
um, þá finn ég stundum, að sálvin'ning er mér ekki létt.
Eg verð að knýja mig til að gera það, sem ég ætti að gera,
eða ég finn upp afsakanir til að vanrækja það. Ég verð
með allan hugann við önnur málefni.
Um áratugaskeið hefi ég haft unun af þeim mikla heiðri
að vera kallaður til að prédika. Ég hefi aldrei haft á móti
því að prédika fjórum eða fimm sinnum á dag. En ef ég
finn, að það fer að verða mér byrði og ég þarf að vinna
eða lesa mikið til að finna, hvað á að prédika, og ef mig
fer að langa mikið heim til að slaka á, þá veit ég, að hjarta
mitt þarfnast mikillar endurhressingar frá Guði.
Mjög nýlega hefir álag þessa blessaða starfs verið mjög
mikið vegna ferðalaga, ferðalaga, ferðalaga, svefnmissis á
nóttum, að láta niður og taka upp farangur. „Ég verð að
Ijúka af þessu blaði af „Sword of the Lord“ fyrir mið-
vikudag.“ „Ég verð að ganga frá þessum útvarpsræðum og
taka þær upp á segulband handa „Vakningarröddinni“ í
útvarpinu.“ Eða skrifari minn segir: „Dr. Rice, það ætti
að svara þessum mikilvægu bréfum undir eins.“ Eða grasið
heima er orðið svo hátt í kringum húsið, að það verður að
slá það. Við verðum að láta einhvern mála þessa stóru
hlöðu! Girðingin er gömul og ljót, og önnur verður að
koma í staðinn. Þetta gamla, ómálaða hænsnahús ætti að
rífa. — Ég játa, að hjarta mitt varð dálítið þreytt. Mig
langaði til að hvíla mig. Riblíulesturinn varð eins konar
skyldustarf. Hjarta mitt var ekki yfirfullt af ritningar-
greinum og köflum, sem mig langaði til að prédika um
að nýju! Ég hefi frumdrög að þremur eða fjórum bókum
í huga mínum, sem eru nokkurn veginn undirbúnar, en ég
hefi óttazt að setjast niður við hið erfiða, erfiða starf að
undirbúa handritin.
Ég hefi þess vegna ákveðið að kippa þessu máli í lag
og fá vakningu í hjarta mitt.
Hér ætla ég að eiga nokkrar klukkustundir aleinn í
g.istiherbergi mínu. Síðdegis í gær las ég 25—30 kapítula
í biblíunni. Ég athugaði þá vandlega og las þá aftur unz
ég gat þulið þá utanbókar: 1. Sálminn, síðan 8., 15., 19.,
23., 24., 34., 100., 103., 121., 126. Ég endurhressti mig
aftur með Jóh. 14., og síðan las ég kafla úr 3. Móse bók,
hélt röðinni á lesköflum í daglegum biblíulestri mínum.
Ó, hin eina, mikla þörf kristins manns er ekki blátt áfram
að trúa biblíunni eða blátt áfram að fylgja biblíunni, heldur
að hafa unun af henni, hugleiða orð Guðs dag og nótt.
Ég er minntur á Jeremía 15. 16.: „Kæmu orð frá þér,
gleypti ég við þeim; og orð þín voru mér unun og fögn-
uður hjarta míns.“
Ég hefi því í dag byrjað að læra utan að 1. kaflann í
guðspjalli Jóhannesar. Ég hefi líka farið yfir Jóh. 3.,
sem ég man nærri því, ég kunni hann áður utanbókar.
Ég ætla að athuga vandlega 1. Kor. 13., Fil. 4., Róm, 10..
Róm. 8., Róm. 12., sem ég hefi áður lagt á minnið. Ójá,
og í gær endurlas ég Matt. 28. A páskadagsmorgna höfum
við venjulega haft hann yfir upphátt við morgunverðar-
borðið.
Ég er sannfærður um, að tvennt er nauðsynlegt til að
endurlífga þetta vesalings hjarta mitt. Annað er: að taka
nógan tíma með orði Guðs og lesa það, þangað til ég finn
eitthvað svo indælt, að það brenni í hjarta mínu. Síðan að
læra eitthvað af því utanbókar, geyma það í hjarta mínu,
svo að Guð geti óhindrað sagt mér, hvert er áform hans
og vilji mér til handa hvern dag ævi minnar.
Ó, að hafa unun af sérhverju verki hans, sérhverju kalli,
sérhverju af v.ilja hans, sem hann kunngerir, sérhverri
fórn, sérhverri þjáningu, sem honum getur þóknazt.
Úr „Sword of the Lord,“ 26. júní 1964).
Ef trúaðir lesendur vilja gefa sér tóm til að íhuga ofan-
skráða játningu og hugleiðingar dr. John R. Rice, þá geta
þeir vafalaust skilið, hvers vegna Guð notar þann mann
eins mikið og hann gerir í þjónustu sinni. „Af gnægð
hjartans mælir munnurinn.“ „Far þú og ger þú slíkt hið
sama.“ Ritstj.
---------x---------
Munið bœkurnar, svo sem: George Muller, œvisaga.
Óbundin á 25 kr. Flogið um álfur allar. Ferðasaga Kristín-
ar og Arthurs Gook. Lækkað verð: Innb. 90 kr., ób. 60 kr.
Kenningar frá öðrum heimi, á 10 kr. Höfundur trúar vorr-
ar, 5 kr., Þróun eða sköpun? 10 kr„ allar óbundnar. Dag-
legt Ijós á daglegri för. Innb. 50 kr. Hin sígilda bók við
daglegar guðræknistundir. Norðurljósið 16.—39. árg.
innb. í 4 bækur hver bók 50 kr„ 40.—43. árg. 1 bók á 70
kr. Ein bók enn, 44.—46. árg„ sennilega á 100 kr. bætist
væntanlega við síðar á þessu eða á næsta ári. — Póstgjald
bætist við allar bækurnar. Þær fást á afgreiðslu Nlj„ Akur-
eyri. og hjá frú Soffíu Sveinsdóttur, Miðtúni 26, Reykja-
vík.
---------x---------
Kœri lesandi, gerðu þetta að játningu þinni og bæn:
Ó, Jesús, Drottinn dýrðar,
ég dýrka og lofa þig,
sem forðum saklaus, særður,
dóst sjálfur fyrir mig.
Ó, hafðu í mínu hjarta
þinn hástól, Drottinn minn.
Þú hljóta skalt mitt hjarta og allt,
ó, Herra, ég er þinn.
(Kór úr þýddum sálmi í Andlegum ljóðum.)