Norðurljósið - 01.01.1967, Síða 25
NORÐURLJÓSIÐ
25
ofstæki, sem grípur fólk, fyllir á því kollinn með grillum og hé-
giljum? Hafa ekki Islendingar sýnt þroska sinn og andlegt jafn-
vægi á þann hátt, að hér héfir aldrei komið trúarvakning?
Hvað er trúarvakning?
Hún er sunnanþeyrinn, hlýviðrið, hvassviðrið, sem brýtur ís-
inn, hafís hjartans. „Ollum hafís verri er hjartans ís, er heltekur
skyldunnar þor. Ef hann grípur þjóð, þá er glötunin vís, þá gagn-
ar ei sól né vor.“ Þannig mælti skáldið Hannes Hafstein, í
kvæðinu um skipstjórann, sem fórnaði sjálfum sér til að bjarga
mönnum sínum úr hafísnum, sem var að granda þeim. Stjórn-
uðu honum eiginhagsmunir? Var hugarfar hans í ætt við það
hugarfar, sem heimtar allt af öðrum, ekkert af sjálfum sér? Auð-
vitað ekki. Þessi hafís hjartans, þessi ískalda peninga- og lifs-
þægindagræðgi, „heltekur skyldunnar þor.“ Hún er í ætt við
Kain, bróðurmorðingjann, sem spurði: „Á ég að gæta bróður
míns?“
Hvort sem hér er vinstri stjórn eða hægri, þá rekur ríkið áfeng-
isverzlun í því skyni, að afla sér tekna. En vill ekki einhver hag-
fræðingur reyna að reikna út, hvort ávinningurinn er nokkur,
sé allt tekið með, sem vínið kostar þjóðina fram yfir þessar
400—500 mi'lljónir króna, sem hún greiðir núna fyrir áfengi ár-
lega? Hvers virði eru vinnudagarnir, sem tapast vegna áfengis-
neyzlu? Hvað kosta bifreiðaárekstrarnir og slysin, sem verða af
völdum ölvunar? Hvað kosta hælin og sjú'krarúmin, sem notuð
eru vegna áfengissjúklinga? Hvað kosta mennirnir, sem vínið
gerir að ræflum? Það má reikna, hve mikið kaup verkamaður
eða embættismaður gæti unnið sér inn á 40—50 árum. Og hvað
kosta allir hjónaskilnaðirnir af völdum drykkjuskapar? Hvað
kosta börnin og unglingarnir, sem fara á mis við forsjá og um-
önnun föður eða móður vegna áfengisneyzlu þeirra? Hvað
kosta sálir fólksins, sem týnir eða fyrirgerir sjálfu sér með of-
drykkju? Bihlían segir: „Villizt ekki .... drykkjumenn munu
ekki guðsríki erfa.“
Trúarvakning þurrkar út dryk'kjuskap þeirra, sem verða henn-
ar aðnjótandi. Hún þurrkar út afbrot og glæpi, sé hún almenn.
Eftir trúarvakningu, sem varð í Norður-írlandi fyrir rúmum
hundrað árum, höfðu dómarar ékkert að gera, og fangelsin
tæmdust.
Hvað er trúarvakning? Hún hreinsar, andlega talað, öskuna
og eitrið úr andrúmsloftinu. Svo að fólk skilji betur, hvað ég á
.ið, skal ág segja sögu til skýringar. Hún er alveg sönn.