Norðurljósið - 01.01.1967, Side 119
NORÐURLJÓSIB
119
þeim vel söguna, enda segir hann einhvers staðar í ritum sínum,
að hann vilji heldur lýsa kind í góðum holdum og með fullu reyfi
en horaðri og ullarlausri. Upplýsingar þessar ásamt öðru sendi
svo mr. Jones áfram til Bretlands. Þar las þær ungur maður,
Arthur Gook að nafni, og er hann las lýsingarnar á Islendingum,
komst hann að þeirri niðurstöðu, að hér á landi byggju sofandi
englar.
Bræður tveir, ungir kaupmenn á Akureyri, tóku nir. Jones
mjög vel. Lánuðu þeir honum vöruskemmu til að halda í sam-
komur, áður en reistur var samkomusalurinn. Voru þessar sam-
komur vel sóttar. Þá var fátt til að stytta tómstundir með, ekkert
útvarp og engar kvikmyndasýningar á hverju kvöldi. Auk þess
kom systir mr. Jones til að hjálpa honum við starfið. Þau léku
bæði vel á strengjahljóðfæri og sungu mjög vel, einkum þó hún.
Þegar byggja skyldi húsið og salinn, afhenti mr. Jones bygg-
ingameistara peninga til að byggja fyrir. Síðan fór hann í ferða-
lag og leit ekki eftir neinu. Þótti síðar koma í ljós, að maðurinn
hefði brugðizt því trausti, sem honum var sýnt, og húsið vera
miður vandað en hefði þurft að vera.
Frederick H. Jones var maður ekki heilsuhraustur. Gekk að
honum sykursýki, og úr henni dó hann árið 1905, þá kominn
brott af íslandi.
Nokkrir þeirra, sem hlustað höfðu á fagnaðarboðskap Krists,
eins og hann var boðaður af mr. Jones, höfðu snúið sér til
Krists. Af þeim mun Halldór Halldórsson, söðlasmiður á Akur-
eyri, hafa lifað lengst.
Mr. Jones var tilheyrandi svonefndum Bræðrasöfnuðum. Þeir
mynduðu enga sérstaka kirkjudeild í þá daga, heldur kostuðu
kapps um að vera með öllu óháðir erfikenningum manna, sem
margar eru og mismunandi. Söfnuðir þessir hafna barnaskírn og
fermingu, en leggja allt kapp á að vinna menn til persónulegs
afturhvarfs og trúar á Drottin Jesúm sem son Guðs og freisar-
ann eina. Síðan eftir afturhvarfið til Krists boða þeir, að mönn-
um beri sem lærisveinum Krists að láta skíra sig til nafns Föð-
urins, Sonarins og hin heilaga Anda, eins og Kristur býður í
Matt. 28. 19. Áður en mr. Jones fór héðan af landi brott, hafði
hann engan skírt og liklega lítið minnzt á skírnina. Gengu þeir,
sem hann hafði leitt til trúar á Krist, í Hjálpræðisherinn, þegar
hann var stofnaður hér á Akureyri eða þá skömmu síðar. Var
gert ráð fyrir því, að enginn kæmi aftur í stað mr. Jones. En
Guð hafði aðrar fyrirætlanir.