Norðurljósið - 01.01.1967, Page 134
134
NORÐURLJÓSIÐ
mæðgur? Traustið hennar ömmu á forsjá Guðs óx og styrktist.
„Guð leggur mér eitthvað til,“ varð orðtak hennar, byggt á
reynslu. Hjá móður minni þroskaðist samúðin. Hún kenndi í
brjósti um alla, menn og dýr, sem áttu bágt. I æsku minni vissi
ég, að aumingjar vildu komast til dvalar á heimili hennar. Kon-
ur vildu enga Ijósmóður bjá sér aðra en hana, ef hún hafði einu
sinni setið yfir þeim. Hún átti líknarlund og ljósmóðurhendur í
fleiri en einum skilningi.
Huggaður til að hugga.
Hann átti stundum erfiða daga, hann Páll postuli. Boðskapur
hans, að Jesú frá Nazaret, sem Pílatus lét krossfesta, hefði verið
og væri Kristur, sonur Guðs, hinn fyrirheitni konungur
Gyðinga, hann var ekki vinsæll boðskapur. Hann var Gyð-
ingum hneyksli og heiðingjum heimska,“ eins og Páll komst
að orði. Hann mætti því margs konar þrengingum og\ofsóknum
svo að líf hans var tíðum í bráðri hættu. En Guð 9þóð með
honum. Þess vegna gat hann ritað: „Lofaður sé Guð og faðir
Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð
allrar huggunar, sem huggar oss í sérhverri þrenging vorri,
svo að vér getum huggað aðra í hvaða þrenging, sem er, með
þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af Guði hlotið.“
„Svo að vér getum huggað aðra.“ Þetta er stundum tilgangur
Guðs með sorgum og þrengingum lífsins. Guð ætlast ekki til
þess, að sorgartárin, sem oftsinnis streyma af hvörmum manna,
verði að haglhryðjum beiskju og gremju við Guð og menn. Þau
eiga að verða gróðrarskúrir samúðar og meðaumkunar mann-
kærleikans.
Við segjum stundum, að tíminn ^ekni öll sár. Biblían segir
um Drottin: „Hann læknar þá, er hafa sundurkramið hjarta, og
bindur um benjar þeirra.“ Láttu huggast, þú, sem harmar. Drott-
inn græðir sár þín á sínum tíma. Kristur ber alla hluti með orði
máttar síns, segir ritningin. Hann megnar því að bera okkur,
halda okkur uppi, svo að við bugumst ekki. Hann er máttugur
og góður.
Endusköpuð ævi.
Kristur getur endurheimt glatað siðferði, endurskapað glat-
aða ævi. í 7. kafla guðspjalls Lúkasar segir frá því, að hann var
gestur í húsi manns, sem var Farísei. Heldur voru móttökurnar