Fylkir - 01.01.1919, Qupperneq 16
16
FYLKTR.
syru. Hve mikilá virði yrði þá það, sem sjóða mætti úr 200000
smálestum, þ. e. 200 million kilógrömmum brennisteins.? F*etta er
einn vegur til að nota brennisteininn í nefndu fjalli; en til eru
einnig aðrir vegir, ekki arð minni. En menn munu spyrja, hvern-
ig getum vér íslendingar, fáliða og fátækir, komið upp verksmiðj-
um, til að hreinsa og nota brennistein ? og hvað eigum við að
gera með hann og öll hans efna sambönd?
Eg vona, að hinir mörgu ritsnillingar, stjórnvitringar og skóla-
gengnu vísindamenn láti ekki bíða að svara fyrri spurningunni,
og að búfræðingar, gagnfræðingar, verkfræðingar, gróðamenn og
hugvitsmenn (»genii«) svari seinni hluta spurningarinnar. Eg I*4
mér nægja að vísa alþýðu, einkum þul lesnum bændum, eins og
margir eru þar eystra, til jarðyrkju bóka, til efna-fræða og til iðn-
aðar rita, sem syna Ijósar en hér er imt, til hvers má nota þau
efna sambönd, sem brennisteinninn getur myndað, og eg vísa
verka mönnum, sjávar bændum, kaupmönnum og lögmönnum til
stjórnarvalda landsins og til þeirra bakhjalla hér á landL og er-
Iendis, til að sjá ráð og finna vegi til að koma upp nógu öflugri
verksmiðju við nánasta vatnsfall, nl. Laxá eða Jökulsá. Vonandi
að alþingi, fossa-nefndin og stjórnarráð íslands sjái svo til, að
hinn mikli auður, sem nefndar námur geyma, verði ekki útlend-
um ránfuglum að bráð, né að Laxárfossar séu lengur látnir vera
iðjulausir og fleygja öllu afli sínu í sjóinn, að eins fyrir þá sök,
að þing og þjóð hefir ekki nent, tímt eða kunnað, að leggjavið
þá beizlið; því að Laxá mun vera einfær um að reka allar þaer
verksiniðjur, sem íslendingar þurfa þar í grend, fyrst um sinti,
og að hita og lýsa húskofa þeirra að auki*
Væri Laxá beizluð, eins og hér segir, svo gæti hún gefið naer-
liggjandi sveitum og jafnvel öllu landinu of fjár; að minsta kosti
mundi fyrirtækið marg-borga sig, þó kostnaður aflstöðvarinnar
* Laxá flutti þegar eg reið hana 8. f. m. nál. 40 ten. metra á sek. og getur
því á þeirri fallhæð, sem fá má frá Birningsstöðuin og ofan fyrir brúna Hja
Orenjaðarstað, nl. 100 m. gefið 40,000 hestöfl rafmagns.