Óðinn - 01.01.1928, Side 3

Óðinn - 01.01.1928, Side 3
Ó Ð I N N 3 Ibsens-drápa. Dugið mjer, hamingju- dísir góðar, er hauglögðum hygst jeg færa Yggjar mjöð andans jöfri nafnfrægstum Norðurlanda. Gengið hafa giftu dísir nýrra tíma um Noregs bygðir, vakið til dáða dali og firði, mannvit magnað og menta snilli. Lásu |>ær lýðum lengi gleymdar fræða skrár fyrri tíða. Dýrðlegar urðu í draumaljósi lornra hildinga fósturbygðir. Glóðu hlíðar, er gömul fjöll óðu sólgylt úr alda þoku; undraðist þjóðin og aftur þekti fold hinna frjálsu feðra sinna. Á þeim tíma endurfæðist til nýrrar æsku hin norska þjóð, eignast afreksmenn oiða og verka og forustumenn í framsókn djarfa. Hjá fámennri þjóð er í fátækt alinn Henrik Ibsen fyrir hundrað árum, en ættgöfgri þjóð með ungar vonir, viðreisnar þrá og víkinga þori. Er sem í heimi æfintýra gangi hinn língi Grímstaða-sveinn, sem úti um álfur með andans sverði ruddi sjer veg og til rikis brautst. Að andans orku er hann öldnum þul, Agli Skallagríms arfa, líkur: heilaborgin úr lieimi jölna, en eldar Alföður innra brunnu. Gekk hann í hamra gljúfra vegi ungur i leit að óskasteini, og við tískunnar tröllalýði, flögð og forynjur fangbrögð átti. Mælti hann, er þrautir magn hans reyndu: Sterkastur er sá, sem stendur einn. Og í arnar ham upp frá bygðum hóf hann flug til hæstu tinda. Dvaldi í dulheimum dimmra nátta, og í Ása- og álfa-heimum; safnaði víða vitsku og snilli til mats á meinsemdum manna heima. Einrænn hugur og innfjálgur var að sannindum sileitandi; skynjaði í skuggsjá skapanorna leik með launþræði láns og harma. Kringum hann óx kyngi mögnuð hirð hugskaptra huldu-lýða: skuggamyndir úr skatna heimutn og hugar sýnir holdi klæddar. Er fylkti hann liði í fólkheimum og Iýða líf í leikum sýndi, fengu undrandi áheyrendur við vafaspurningum vjefrjettar svör. En á lausnir lífsins gátna hlýddu hugfangnar heimsins þjóðir, og á ölturum aðdáunar færðu fimbulþul fórnir stórar. Svo var hinn mikli sigur fenginn: Alt það unnið, er hann ungur þráði. Hjelt hann svo heim hlaðinn lofi, fje og frama til föðurlands.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.