Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 52

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 52
52 Ó Ð I N N Quð er nú að leiða þig að ákveðuu verki og ætlar þjer þetta fyrir æfistarf? ]eg varð órólegri og óró- legri; hvar sem jeg stóð og var, kom þessi óróleiki yfir mig. Stundum varð hann nær því óþolandi. Jeg hafði samt ekki orð á þessu við neinn, því þótt jeg ætti marga vini, þá var jeg ekki viss um að neinn mundi fyllilega skilja mig og þar að auki vildi jeg ekki skerða gleði annara með sorgum mínum. Svo leið fram til 30. nóvember. Þá náði þetta sálarástand hámarki sínu. Það kvöld lokaði jeg mig inni og bað og ákallaði guð »úr djúpinu«, og bað hann um upp- lýsingu yfir veg þann, er hann vildi að jeg skyldi ganga. ]eg opnaði alla mína sál fyrir honum, og bað svo um að hans vilji mætti verða, hvort sem hann fjelli saman við minn vilja eða ekki; bað hann að gefa mjer eitthvert teikn eða upplýsingu um sinn vilja, sem væri svo ljós að það væri ómögulegt fyrir mig að villast; jeg tiltók ekkert um teiknið, því það áleit jeg ekki sæma, heldur hitt, að það kæmi alveg ótvírætt, hvort hann vildi að jeg skyldi helga mig al- gerlega málefni hinna ungu eða rífa mig lausan frá því og taka aftur með fullum krafti á náminu. ]eg held jeg hafi þannig talað við guð í heila tvo tíma frá kl. hjer um bil 9 til kl. 11. Þá steig alt í einu friður yfir sál mína og jeg fjekk innri sannfæringu um, að bæn mín væri heyrð og að jeg fengi svar, en hvernig eða hvenær, það var jeg ekki einu sinni forvitinn um að vita. ]eg var alveg orðinn rólegur og ásetti mjer að bíða Drottins tíma, og lagði alt í hans hönd. Svo fór jég upp til Har. Níelssonar. Það var afmælisdagur hans. ]eg talaði ekkert um þetta, sem lá mjer á hjarta, og svo ákváðum við að vera saman til altaris næsta dag, því að það var sunnudagur, og jeg vildi staðfesta loforð mitt um hlýðni við altaris- borðið. Svo næsfa dag vorum við til altaris í Tríni- tatiskirkjunni og friður og fullvissa fylti sál mína með öruggri vissu um nærveru guðs og handleiðslu hans. Meðan jeg lá á hnjánum við gráturnar hafði jeg mjög ákveðna tilfinningu um að hin gegnumstungna hönd frelsara míns hvíldi yfir höfði mínu. Það var mjög sælurík stund. Svo beið jeg rólegur dag frá degi. ]eg var svo handviss um að teiknið kæmi, að jeg hafði engar áhyggjur. ]eg starfaði meira en áður og gekk líka í tíma á háskólanum. Hið eina sem jeg sló slöku við var Skotfjelagið. ]eg skildist við það um þessar mundir. Svo liðu dagarnir fram að 12. desember. ]eg lá um morguninn snemma í rúmi mínu og mig dreymdi. Mig dreymdi að jeg stæði einhverstaðar, jeg vissi ekki hvar, og fram hjá mjer gekk röð af drengjum, sem jeg hafði þekt og kent, þegar jeg var í fjórða bekk. Þar sá jeg ]úlíus Árnason, Sigvalda Stefánson (Kalda- lóns), Pjetur Egilsson og þá alla. Sigurður Loftur, uppáhaldið mitt sjerstaka frá þeim tíma, var þar og leit til mín og sagði: »Það er grein í Helga kveri sem jeg skil ekki«. »]eg skal útskýra hana fyrir þjer«, sagði jeg; svo gekk hann líka áfram. Guðbjartur, jeg man ekki hvers son, sagði: »Það er langt síðan þú komst heim til okkar mörnmu!* »]eg kem nú bráðurn*, sagði jeg; svo vaknaði jeg og draumurinn var svo lifandi fyrir mjer. ]eg Iygndi aftur augunum og naut draumsins. ]eg sá þá fyrir mjer þessa drengi eins og þeir voru þá, eins klædda og þá og eins litla. ]eg hafði um mörg ár ekkert munað eftir þeim fyrir öllu hinu nýja, og mjer datt í hug: Nú eru þeir á U-D aldri, og jeg hugsa aðeins um danska drengi. ]eg gæti nú skrifað þeim brjef og þannig orðið þeim að liði í andlegum efnum. Svo var barið að dyrum og inn kom pósturinn og lagði tvö brjef á borðið. ]eg tók annað og las það, það var frá mömmu. ]eg þekti ekki höndina á hinu. En utan á var skrifað: Hr. cand. phil. — jeg varð hálfgramur og fanst eins og væri það móðgun. Stud. mag. var þó hið rjefta og cand. phil. notað mest um þá sem hættir voru öllu námi. — ]eg var að hugsa um að opna það ekki. Þá var aftur komið inn. Það var Har. Þórarinsson. Nú bjuggum við ekki saman. ]eg var fluttur á þriðja gang nr. 12 og hafði herbergi einn, fremra herbergi, en innra herbergið hafði fyrst danskur stúdent og seinna Sigurður Magnússon frá Laufási. Haraldur vildi fá frjettir, en jeg hafði engar. Hann vildi að jeg opnaði brjefið, en jeg sagði nei, og stakk því niður í borðskúffuna hjá rúmi mínu. Svo fór Haraldur hálfgramur. En er hann var farinn, tók jeg brjefið og fór að skoða það, og svo fór að jeg opnaði það. Það var frá Þórhalli lector Bjarnarsyni. ]eg fór að lesa. Það var um það, að hann hefði heyrt að jeg starfaði mikið í hinu kristi- lega fjelagi ungra manna og væri eini Islendingurinn, sem þekti fjelagið af reynslunni. Hann hefði og heyrt að nám mitt væri að fara út um þúfur af þessum ástæðum. Hann spurði, hvort jeg vijdi nú ekki koma heim og vinna að stofnun slíks fjelags heima og stæðu íslenskir drengir mjer nær en danskir. Gæti jeg unnið fyrir mjer með kenslu og ef jeg vildi gengið á prestaskólann, til þess að hafa það fyrir bakhjarl o. s. frv. — Þegar jeg hafði lauslega rent augunum yfir brjefið, reis jeg upp og henti því út í horn og sagði: »Það skal þó aldrei verða«, en samt komst jeg í mikla geðshræringu. ]eg fór að klæða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.