Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 54

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 54
54 Ó Ð I N N úm Krist kröftuglega. Margir tignarmenn snerust til Guðs fyrir orð hans og óteljandi meðal hinna dýpst föllnu og aumustu komust á rjettan kjöl fyrir predikun hans. Hann hafði áður verið ríkur gósseig- andi, en er hann var unninn af Kristi, fórnaði hann þægindum og auði vegna fagnaðarerindisins. Hann og Adam greifi Moltke, frændi hins fyrnefnda, stóðu fyrir miðnæturtrúboðsstarfinu. Clausen gamli kyntist mjer í fjelaginu og fjekk mig til þess að starfa í miðnæturtrúboðinu eina nótt í viku. Starfið var þannig, að vjer, sem í því vorum, gengum um sem á verði í þeim götum, þar sem hin opinberu hóruhús voru, og áttum að tala við alla unga menn, sem ætl- uðu inn í þau hús og aðvara þá og reyna að fá þá frá því. Það var ákaflega einkennilegt starf. Margir fóru að vísu burt fyrir orð vor, aðrir sneru frá undir eins og þeir sáu vörðinn; sumir »dispúteruðu« og aðrir skömmuðu; að sjá beinan árangur var ekki að vænta, því í raun og veru var það enginn árangur, þótt þeir sneru aftur í það sinn. — Það var sex tíma vörður frá kl. 9—3 á nóttunni. Margt einkenni- legt gat fyrir komið, og ekki svo litla þekkingu á sálarlífi og lundarlagi manna var þar að fá. Oftast nær vorum við 2 saman. En verið gat að annar kæmi ekki. Laugardagskvöld voru mín kvöld. Laug- ardagskvöldið fyrir páska hitti jeg tvo unga menn um tvítugt eða svo. Þeir stældu lengi við mig og voru orðnir reiðir, svo ekki var langt frá að þeir mundu ráðast á mig. En á endanum fóru þeir burt. Páska- dagseftirmiðdag var jeg í Trínitatiskirkju og undir sálm- inum fyrir predikun komu þrír ungir menn og settust við hliðina á mjer. ]eg leit upp og þekti þá tvo. Þeir urðu dreyrrauðir er þeir sáu mig. En jeg leit ekki framar á þá og ljet sem jeg þekti þá ekki. Islendingum var illa við að jeg tók þennan starfa, þeim fanst það víst hálfgerð skömm, en aldrei mætti jeg nokkrum Islending á þeim slóðum. Vfir höfuð varð jeg oft að verja kristindóminn fyrir lönd- um mínum, en oft fanst mjer að þeir fremur vildu stríða mjer en að þeim væri full alvara með mót- spyrnu sína. Og engan varð jeg var við, sem yrði óvinur minn af þessu. Seinni part þessa vetrar urðu prófasta skifti á Garði. Ussing sagði af sjer og prófessor Larsen kom í staðinn; hann var lögfræðingur, og hinn ágætasti maður. Hann var trúaður maður og velviijaður. Pró- fessor Ussing var haldið af Garðbúum kveðjusamsæti niðri í Stúdentafjelagshúsinu; var það mjög virðulegt samsæti. Hjsldu þar margir 'ágætarjræður, voru og margir af prófessorunum boðnir. Þar var um leið nýja prófastinum fagnað. Hann hjelt þar fagra ræðu. í byrjun marts fjekk jeg brjef frá Þórhalli lector. Dómur hans var á þessa leið: »Eftir að hafa lesið yðar góða og langa brjef, gleðst jeg enn meira yfir því, að þjer viljið koma heim*. Þar með var það ákveðið, og jafnframt að jeg kæmi heim sumarið 1897; vildi jeg verja þeim tíma til þess að setja mig sem best inn í starfið og var nú spursmálið leyst og fanst mjer nú að jeg geta með góðri samvitsku starf- að óskift í fjelaginu. Jeg var því allur í því. Jeg hafði langerfiðustu sveitina, því hún náði yfir eitt af verstu hverfum bæjarins. En með mikilli gleði minn- ist jeg margra ánægjustunda hjá foreldrum minna ungu vina, á fátækum heimilum, þar sem gleðin átti heima; á góðum borgaraheimilum, þar sem ánægjan hafði raskast um stund við útslátt og óreglu sonarins. Hugljúfar eru sumar minningarnar úr fjelagslífinu, frá hátíðahöldum og skemtiferðum, um fundi, sem gáfu svo mikið og urðu ógleymanlegir; fundi, sem fyrir mig gengu mest í það að halda óróaseggjum í skefjum og berjast við að vinna þá til siðsemi og vekja áhuga þeirra á einhverju nytsömu starfi eður sporti, til þess að vinna þá fyrir Krist, er unt væri. Það er frá þessum vetri svo margt mjer minnistætt, en ætti jeg að fara að skrifa um það alt, mundi það verða á margar arkir. Jeg verð nú aðeins að stikla á stóru steinunum í frásögninni. Hugljúft væri líka að tala um samstarfið í »Urvalinu« og einstaka menn innan þess, en einnig það yrði oflangt. Marga gleði- minning á jeg og marga sára endurminning um von- brigði og getuleysi. — Ricard fór út á langt ferða- lag til þess að kynna sjer fjelagsstarf í öðruni lönd- um; hann átti að verða framkvæmdastjóri fjelagsins næsta haust. Jeg saknaði Ricards mjög, því hann komst brátt í fremstu röð vina minna. Þetta sumar kallaði jeg saman ýmsa Islendinga á fund og ræddi um við þá, hvort þeir vildu ekki stofna íslenska deild innan K. F. U. M. og voru undirtektir að því góðar. Og var deildin stofnuð með nokkrum mönnum. Þar var Jón Halldórsson, snikkari, Pjefur Sighvatsson, úrsmiður, Stefán Eiríksson, útskurðarmaður, Guð- mundur bókbindari Gamalíelsson. Af stúdentum man jeg ekki eftir öðrum en Haraldi Þórarinssyni, annars voru það mest iðnaðarmenn. Fyrsti fundurinn var haldinn 1. ágúst 1896 og deildin þá stofnuð. Við höfðum vikulega fundi. Man jeg eftir ágætum stund- um og veittist mjer hlý vinátta, sem varað hefur við og verið mjer dýrmæt gegnum árin. Samt var deildin aldrei fjölmenn. Fyrir sjerstöðu mína í kristindómsmálum varð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.