Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 19

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 19
6 Ð I N N 19 manns á Norðfirði, og fleiri. Voru þetta alt góðir vinir mínir. Sjómennirnir voru í miðskipslestinni og bjuggu þar eins vel um sig og þeir gátu. Skipstjór- inn ljet sjer mjög ant um þá og útvegaði þeim þó nokkuð af ábreiðum og ljet rýma sem best til fyrir þá. Hovgaard skipstjóri var mjög vinsæll, svo að jeg hygg að fáir skipstjórar hafi á þeim tímum verið í eins miklu uppáhaldi hjá landsmönnum og hann. Sjómennirnir höfðu mat með sjer sjálfir og keyptu heitt vatn í kaffið. Vatnið kostaði 5 og 10 aura eftir stærð könnunnar og fanst mönnum það nokkuð dýrt, og yrði það ekki svo lítið fje samandregið á svo langri ferð. Komu þeir með þessi vandkvæði eins og önnur til Hovgaards, en hann sagðist ekki hafa nein umráð þar yfir og ætti eldamaður sjálfur peningana, sem fyrir vatnið kæmi. Vmsar fleiri kvaðir voru þeir með til skipstjórans. Annan daginn, sem við vorum á leiðinni, kallaði Hovgaard á mig og sagði mjer, að hann skyldi láta mig fá frítt far til Reykjavíkur, ef jeg gæti jafnað svo málið milli eldamanns og sjó- manna, að báðum líkaði vel, og gæti jeg svo verið milliliður milli sín og þeirra, ef þeir hefðu um eitt- hvað að kvarta. ]eg fór svo og átti fund með sjó- mönnum og fólu þeir mjer að koma þessu í kring. Jeg átti tal við eldamann og sýndi honum fram á, að þetta væri alt of mikið og spurði hann, hvort hann vildi ekki heldur fá eina summu og láta þá svo fá það vatn sem þyrfti með. Hann var fús til þess að láta þá fá ótakmarkað vatn tvisvar á dag, kl. 8—9 á morgana og kl. 7—8 á kveldin. Könnurnar voru rjettar niður og upp um glufu á þilfarinu uppi yfir eldaskála. Var það tilskilið að jeg stæði þar á verði þá klukkutíma. Þegar þessu var komið í kring, sagði skipstjóri mjer að þetta væri ágætt og hefði jeg nú frítt far, og svo gerði hann meira; hann Ijet mig hafa herbergi fyrir mig á ganginum á 2. farrými, það var herbergi þjónsins og var hann fluttur eitthvað annað. Mjer fanst jeg vera orðinn einhver herramaður, og gat nú boðið skólabræðrum mínum inn til mín til að rabba saman eða spila. Hovgaard var mjer mjög góður og bauð mjer stundum inn til sín. Jeg átti ýmsa góða vini á öðru farrými, þar á meðal Karl Einarsson og Pálínu móður hans, sem var á leið suður til þess að dvelja í Reykjavík um veturinn með syni sínum og dóttur. Jeg ljet þau fá heitt vatn eins og þau vildu, og fjekk ríkulega í staðinn hið ágæta kaffi, sem frúin bjó til. Aðrir á öðru farrými urðu að kaupa vatn, því þeir voru ekki með í samningnum. Ferðin var bæði löng og ströng fyrir norðan land, mikil illviðri og erfitt til athafnar. Á Sauðarkróki lág- um við í fimm sólarhringa, og var jeg þá talsvert í landi, því öllu var óhætt. Einn morgun snemma hljöp jeg út á Reykjaströnd að Fagranesi að finna sjera Árna og mína kæru vini þar, og kom þangað um fótaferðartíma. Auðvitað barði jeg ekki að dyrum, en óð inn í baðstofum öllum að óvörum, og alla leið inn í prestsherbergið og náði prestinum í rúminu. Urðu nú heldur en ekki fagnaðarfundir. Meðan frú Elín var að búa til kaffið, sat jeg á stól hinumegin við borðið gegnt rúmi prestsins og sagði um alt, sem á dagana hafði drifið. Alt í einu kom stóra kisa inn, og er hún sá mig, mjálmaði hún og stökk þegar upp í kjöltu mína og fór að mala og horfði með svo miklum ánægjusvip á mig, að jeg hálfviknaði. Mjer þótti næstum því eins vænt um þennan móttökufögnuð eins og þann, er vinir mínir sýndu mjer. Nú má hver segja sem vill, að kettir geti ekki verið bæði tryggir og minnugir, því jeg hef þetta og fleiri dæmi, er sýna trygð þeirra og minni. — Fram eftir degi var jeg á Fagranesi með miklum fögnuði. — Næsta dag tók jeg mjer skemtigöngu upp að Heiði og Veðramóti. Drengirnir á Veðramóti voru alt af í kringum mig. Þeir höfðu sýnilega stækkað og þrosk- ast vel á þessu hálfu öðru ári. Fyrir mig voru þessir fimm dagar á Sauðárkróki hreinasta hátíð, og í eigin- girni minni tók jeg mjer ekki nærri, þótt allir aðrir á skipinu bölsótuðust yfir biðinni. Svo loks hjeldum við af stað og sigldum út Skagafjörð í allgóðu veðri, en undiralda var þó enn allþung. Á lágþilfarinu voru allir á öðru farrými uppi og þar stóðu margar tunn- ur, er fara áttu til Skagastrandar. Einn af farþegun- um sat á tunnu og ljek fjörug danslög á harmóniku. Vmsir fóru að dansa, þótt danssalurinn væri ekki sem rúmbestur. Þegar komið var út fyrir Tindastól var alt í bestu skemtun. Það var borðunartími á fyrsta far- rými. Alt í einu legst skipið alveg á aðra hliðina, þá er frá landi vissi, svo að kolblár sjór svall upp á borðstokkinn. Allir hinir dansandi fóru út í þá hlið- ina og þar ægði öllu saman, tunnum og fólki. Svo reis skipið hægt upp og veltist á hina hliðina og alt fór í einni skriðu þangað. Sumir hlógu, aðrir báðu fyrir sjer í ofboði og jeg vil ekki segja hvað sumir sögðu. — Eftir fyrstu veltu kom skipstjóri þjótandi upp á stjórnarpall. I seinni veltunni rann sjórinn inn á lág- þiljurnar og gerði það ekki glundroðann minni. Svo náði skipið aftur á rjettan kjöl og brunaði áfram eins og ekkert hefði í skorist. Á eftir varð úr þessu kæti tilbreytingarinnar, og gortuðu allir af, hvað þeir hefðu verið hugrakkir. Það þótti líka skemtun að heyra að allur maturinn á fyrsta farrými hefði farið ofan í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.