Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 63
ó Ð I N N
63
hátt. 1 öllum viðskiftum við aðra var hann
hreinn, áreiðanlegur og falslaus. Hann var dulur
maður, sem sjaldan ljet uppi hinar instu tilfinn-
ingar sínar. En því betur sem menn kyntust
honum, því betur fundu menn að hann var
drengskaparmaður í öllum efnum«.
Þórdís kona hans var ágætiskona og manni
sínum samhent í öllu. Sami nákunnugi maður
segir um hana: »Hún hafði í mörgum efnum
til að bera höfðingslund og skörungsskap ættar
sinnar. Rausn og festa og óbilandi trygglyndi
voru aðaleinkenni hennar«.
Það mun ekkert ofmælt í þessari lýsingu á
þeim Suðureyrarhjónum. Hjer er ekki drepið
nema á fátt eitt af því, er þau unnu bygðarlagi
sínu til heilla sína löngu æfi. En ekki er að
efa, að Tálknfirðingar muna þau hjón lengi og
að virðing þeirra og þakklæti fylgdi þeim til
grafar.
Ólalur Lárusson.
Guðmundur Guðmundsson
Og
Guðrún Ingvarsdóttir.
Guðmundur Guðmundsson er fæddur 8. júlí
1840 á Litlahrauni í Stokkseyrarhreppi hinum
forna og því nærri
88 ára að aldri. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Þor-
gilsson og kona hans
Málfríður Kolbeins-
dóttir, systir Þor-
leifs Kolbeinssonar
á Stóru-Háeyri. Þor-
gils, afi Guðmund-
ar, var Jónsson frá
Bakkakoti í Land-
eyjum, Guðbrands-
sonar, Lafranzson-
ar í Kornhúsum í
Hvolhreppi, Þórðar-
sonar á Efra-Hvoli,
en kona Þorgilsar
var Margrjet Gísla-
dóttir, Eyjólfssonar sterka á Litlahrauni.
Guðmundur fór vestur um haf árið 1870 og
lenti í Milwaukee, en fór um haustið til Wash-
ington-eyjar í Wisconsin-ríki og hefur dvalið
þar síðan. Árið 1874 kvæntist hann Guðrúnu
Ingvarsdóttur, Magnússonar frá Mundakoti á
Eyrarbakka, og er hún fædd 14. marts 1842. Var
Guðrún heitin Guðmundi áður en hann fór af
landi burt og fór hún svo síðar vestur og var í
hópi þeirra tólf, sem fluttust hjeðan 1872.
Börn þeirra Guðmundar og Guðrúnar eru:
1. Málfríður, f. 4. okt. 1875; gift þarlendum
manni og búa þau í Chicago, barnlaus. 2. Guð-
rún Sigríður, f. 20. okt. 1877, giftist ung og á
eina dóttur barna. 3. Guðbjörg, f. 3. nóv. 1879,
bóndakona í Indiana-ríki, og eiga þau 4 börn.
4. Albert Theodór, f. 6. júlí 1881, kvæntur þar-
lendri konu og eiga þau eina dóttur. 5. Þor-
leifur, f. 14. maí 1883, kvæntur þarlendri konu
og eiga þau 4 börn.
Báðir eru bræð-
urnir til heimilis á
Washington-eyju og
eiga þar fiskiútgerð
allstóra, enda sjó-
menn miklir og
athafnamenn hinir
mestu, enda eiga þeir
ekki langt að sækja
það, því Guðmundur
faðir þeirra var tal-
inn hinn mesti sjó-
garpur, hugdjarfur
og happasæll for-
maður, meðan hann
stundaði sjó á Eyrar-
bakka, og svo kræf-
ur sláttumaður þótti
hann, er vestur kom, að hann fjekk brátt við-
urnefnið »sláttuvjelin« (the mower). — Nú á
síðari árum hafa þau hjónin, Guðmundur og
Guðrún, stundað netagerð, og þrátt fyrir óaf-
látanlega iðjusemi og háan aldur hafa þau enn
fulla sjón og heyrn, lesa blöð og bækur og skrifa
brjef, eins og væru þau aldarfjórðungi yngri.
I brjefum sínum hingað, nú fyrir skemstu,
minnisl Guðmundur oft æskustöðva sinna með
viðkvæmni og velvildarhug til lands og þjóðar
og er ótrúlega fróður um flest það, er fram
hefur farið hjer heima síðan hann fór, og vonar,
Guðmundur Guðmundsson og Guðrún Ingvarsdóltir.