Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 20

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 20
20 Ó Ð I N N keltur þeirra, er veggmegin sátu. Orsökin til þessa, fengum vjer að vita, hafði verið sú, að skipið sigldi yfir boða, sem brotnaði rjett í því. Skipsmenn sögðu að skipstjóri hefði verið afarreiður 2. stýrimanni, er stjórnina hefði haft. — Svo sigldum við um daga og svo sigldum við um nætur og komum á hvern fjörð á Vestfjörðum. Og loks á 19. degi frá því við fórum frá Seyðisfirði, sigldum við inn í Faxaflóa snemma morguns. Nú var farið að úthluta peningunum frá Wathne og urðu það 5 kr. 87 aur. á mann. Erfitt var að skifta þessu í smátt, en það tóksf. Þá áttu sjó- menn fund með sjer í lestinni og samþyktu að senda Hovgaard skipstjóra þakkarskjal fyrir framkomu hans við þá, og var mjer falið að semja það. Að því loknu voru kosnir 2 menn til þess að fara með það með mjer til skipstjórans. Hann tók þessu mjög vel og varð auðsýnilega glaður við. Þennan dag komst jeg nær í lífsháska. Jeg sat og var að drekka kaffi inni á öðru farrými og varð mjer það á að segja: »Það vildi jeg óska að við ættum enn þá 19 daga eftir til Reykjavíkur«. Jeg hefi víst sagt það í þeim sannfær- ingarróm, að allar konur og stúlkur risu upp og lá við sjálft að þær rifu mig í sundur, og slapp jeg þó með lífi frá þeim. — Svo komum vjer til Reykja- víkur þ. 23. október um kvöldið. Er þetta ein af þeim bestu og skemtilegustu sjóferðum sem jeg hef farið. Þegar jeg skilaði farseðli mínum, fjekk jeg pen- inga þá affur, sem jeg hafði goldið fyrir hann á Seyðisfirði. Hjelt jeg mjög hróðugur í land. Seinustu skólaárin. Margir vinir mínir fögnuðu mjer vel. Mamma varð og fegin komu minni, hún hafði leigt sjer herbergi á Laugaveg 15 í húsi góðrar og merkilegrar konu, frú Kristínar Johnsen. Hún var ekkja og átti uppkomin börn. Var sonur hennar sjera Ólafur Ólafsson, þá prestur að Lundi í Borgarfirði. Og dóttir hennar var kona sjera Jóseps Hjörleifssonar, prests frá Undirfelli í Vatnsdal. Tvær dætur voru ógiftar heima. Frú Kristín og dætur hennar voru mömmu ákaflega góð- ar og urðu þær miklar vinkonur frú Kristín og mamma. Mjer var boðið húsnæði og morgunverður í Vinaminni, hjá frú Maríu Einarsdóttur, en hún var systir frú Soffíu, konu Sigurðar prófasts Gunnars- sonar, og móðir frú Kjerúlf, konu Þorvarðar Kjerúlfs hjeraðslæknis. Var hjá frú Maríu dóttursonur hennar, Eiríkur sonur Þorvarðar læknis. Var hann kominn í skóla í fyrsta bekk og átti jeg að hjálpa honum með námið. Jeg sjálfur var utan skóla og ætlaði mjer að lesa undir burtfararpróf það sem jeg hafði afgangs af tíma frá kenslu. Jeg fjekk talsverða kenslu þann vetur og varð lítið úr lestri. Frú María var hin mesta sæmd- arkona, bæði góð og guðhrædd. Hjá henni var kona að nafni Kristín Oddsdóttir og hafði jeg mikla upp- byggingu af að tala við hana um trúarefni, því hún var heit í trú sinni og vel að sjer. Hún las mikið predikanir »Blædels«, dansks prests við Garnisons- kirkjuna í Kaupmannahöfn, og fleiri góðar guðsorða- bækur, og varð mjer þetta góður styrkur í hinu unga og óljósa trúarlífi mínu. Annars hafði jeg ekki sam- fjelag við neinn í trúarefnum og flíkaði ekki heldur trú minni við neinn. En jeg var samt glaður og ör- uggur með þá trúarreynslu, sem jeg hafði hlotið. En samt var hún ekki svo sterk að ekki gætu komið stundir þar sem þess gætti lítið, og stundum kom veraldarólga upp í sál minni og allskonar skáldskap- argrillur. Astarharmurinn kom líka stundum og knúði mig til að yrkja svæsin ljóð, full af sárri tilfinningu, eða þá viðkvæmar »elegiur« með heitri meðaumkvun með sjálfum mjer. En flestu af því fleygði jeg seinna, en sumt las jeg upp í »Framtíðinni«, í blaðinu »Urð- ur«. Vorum við mjög saman Urðarfeður og var með okkur hin besta vinátta. Þrátt fyrir þessi mörgu »skapbrigði«, en svo þýddi jeg þá danska orðið »stem- ninger«, var jeg langt frá því að vera einmana. Jeg átti altof marga vini meðal skólabæðra minna til þess. Vil jeg nefna þá Knud Zímsen, Eggert Claessen og Jón Þorláksson, sem voru mjer mjög kærir og komu oftlega til mín þann og næsta vetur. Þar að auki voru margir aðrir, og hafði jeg þá ýmsan fje- lagsskap við þá. Það voru margskonar markmið, sem þau stefndu að þessi fjelög; voru sum nokkurskonar málfundafjelög, voru í þeim nokkurir piltar og komu við og við saman að æfa sig í að ræða ýms mál; sumir komu saman að fá sjer tafl o. s. frv. — Jeg hjelt einn mánuð skrá yfir alla, sem komu til mín, og var það sama, hvort þeir stóðu stutt eða lengi við. Ekki man jeg hvað margir komu, en einn kom 63 sinnum og annar 61 sinni og þriðji 57 sinnum. Þessir urðu hæstir að heimsóknatölu, en glaður er jeg nú yfir því að hugsa til þess, að þessir þrír voru dúxar og semídúxar í sínum bekkjum, svo að á því sjest að það var samt enginn slæpingsháttur á þeim. Þessir voru: Knud Zímsen, Eggert Claessen og Jón Þor- láksson. Þann vetur tók jeg Iíka mikinn þátt í skóla- lífinu, enda þótt jeg væri utanskóla. Jeg var í »Fram- tíðinnic, bindindisfjelagi skólans, náttúrufræðisfjelaginu og í þremur eða fjórum bekkjarfjelögum, einskonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.