Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 58

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 58
58 Ó Ð I N N eins og var, að jeg ætti eklri grænan eyri hvað þá meira. »]á, mig grunaði það. Nú skal jeg segja þjer: Jeg var að fara með fáeinar krónur niður í spari- sjóð Landmandsbankans, en á tröppunum þar datt mjer alt í einu í hug, hvort þú mundir ekki þurfa á þeim að halda, og kom með þær, ef þú vilt hafa þær«. Það voru 20 krónur. Jeg hló og sagði: »Það er lakur banki, sem þú ætlar nú að leggja inn í, því jeg er hræddur um að þú tapir bæði rentum og höfuðstóU. Hann sagðist Iíka ætlast til þess. Svo sagði jeg honum hið sanna frá hag mínum, og að jeg tæki þetta sem orðsendingu frá guði um að jeg skyldi ekki vera hræddur. Jeg sæji af þessu, að nóg ráð hefði hann og nóga vegi. Jeg veit varla hvor okkar var glaðari, hann að gefa eða jeg að þiggja. Nokkrum dögum seinna fjekk jeg kenslu, sem mig munaði mikið um. Jeg fjekk brjef frá yfirkennaranum við Östersögades Latín- og Real-skole, og bað hann mig að finna sig. Jeg brá við skjótt, forviða á hvað hann vildi mjer; jeg þekti hann ekki. Það var þá er- indið, hvort jeg vildi taka að mjer að lesa með dreng þar í skólanum, sem þyrfti aukakenslu. Hann var sonur höfuðsmanns í riddaraliðinu (Ritmester), og áiti jeg að fá kr. 1,25 um tímann og hafa tíma 3svar í viku. Jeg spurði, hvernið honum hefði dottið í hug að skrifa mjer. Hann sagði, að af öllum, sem sótt hefðu um tilfallandi kenslu við skólann, hefði jeg best meðmæli. Jeg varð enn meira forviða og kvaðst aldrei hafa sótt um hana. Hann tók upp stóran prótókoll og þar var listi yfir nær 200, sem sóttu um kenslu. Og jeg var nr. 104; en meðmælendur voru prófessor Larsen og próf. Har. Vestergaard. Þá skildi jeg hvernig í öllu lá. Jeg fjekk frá öðrum skóla sams- konar tilboð, þótt það væri ekki eins glæsilegt. Svo að jeg komst vel af fram á vorið. Faðir Richards sendi mjer líka 50 krónur einu sinni. Jeg gat keypt föt handa Hans og alt baslaðist vel af. En þegar vora tók, þá fór að koma í mig leiði yfir því að þurfa að fara heim, og sú spurning kom upp, hvort það væri nú ekki meiningin, að jeg yrði áfram í Dan- mörku, í þessum starfa. Það var aftur hold og blóð, sem fanst það girnilegra, að ílengjast í Danmörku. Jeg var búinn að ná talsverðum tökum á starfinu þar og geigurinn við starfið heima óx því meir, sem jeg hugsaði meira um það. Það voru líka margir af vin- um mínum, sem voru þess mjög fýsandi að jeg yrði kyr, og margar tilraunir voru gerðar til þess, að útbúa eitthvert starf fyrir mig, sem jeg gæti lifað á. Bæði greifi Moltke og fleiri góðir menn reyndu til þess, en hver hindrunin kom upp eftir aðra, og stundum þegar best leit út, þá kom eitthvað til hindrunar. Um vorið komst jeg aftur inn í fjárhagsvandræði, þegar jeg þurfti ekki lengur að lesa með piltum, og loks stóð jeg aftur í sömu sporum og um veturinn. Jónas hafði oft komið og hjálpað mjer og reyndist mjer hið besta, og mun jeg aldrei gleyma veglyndi hans. Richard vildi og alt gjöra fyrir mig, en jeg ljet sem minst bera á neyð minni og ljet í veðri vaka, að jeg hefði nægilegt. Jeg flutti um vorið út í Hallinsgade 15 og bjó þar uppi á kvisti; var það góð og sólrík íbúð, en hún kostaði líka 18 krónur. Og varð það þyngsti bagginn. Ein sú mesta gleði, sem mætti mjer í bústaðnum í Hallinsgötu, var það, að Knútur Zimsen heimsótti mig eitt kvöld. Jeg hafði sterkan grun um að mikil breyt- ing hefði farið fram í honum, en hve langt hún náði vissi jeg ekki. Jeg var því mjög varfærinn í tali mínu fyrst við hann, en svo kom játningin skýr og ákveð- in. Hann hafði fundið frelsara sinn, og vissi nú hver hann var. Nú urðu ekki stælur og þráttanir, reynsla okkar var orðin hin sama. Enginn hafði stælt við mig um trúna eins alvarlega og hann, aldrei með ljettúð. og því síður spotti, stundum með ákafa, og nú — hví- likur fögnuður! Við sátum lengi og töluðum saman og hann sagði mjer, hvernig Guð hefði kallað, og um baráttu sína og sigurinn. En því öllu sleppi jeg hjer, þar sem það er ekki mín eign, og jeg átti því miður engan þátt í því, sem fram hafði farið. Sama gleðin gagntók mig eins og þegar skáldið Jóhannes Jörgen- sen varð kristinn og allir kristnir í Danmörku fögn- uðu og glöddust; nú samt enn þá meiri, þar sem persónulegur vinur átti í hlut. Jeg var búinn að fá eftirmann í »íslensku deildina* og var það mikil gleði. Tvo atburði enn verð jeg að nefna frá þessu vori, sem höfðu mikla þýðingu fyrir mig. Þeir sýndu mjer, hvernig Guð hjelt hendi sinni yfir mjer. Þeir eru báð- ir af sömu tegund. Hans hafði aldrei komið út í skóg og hafði jeg lofað honum að jeg skyldi fara með honum þangað 5. júní. En þegar 5. júní kom, var svo langt frá því að jeg hefði peninga til þess, því að það kostaði 2 krónur, að jeg hafði ekki peninga til að borga húsaleiguna. Þetta var allra seinasti dagurinn. Um morguninn segir Hans: »Nú er grundvallarlaga- dagurinn, eigum við að fara í skóginn?« Jeg sagði hon- um, að það gæti ekki orðið af því, þar sem jeg hefði ekki peninga í húsaleiguna. — »Jeg skal út- vega peninga«, sagði hann. »Já, gerðu það«, sagði jeg. Jeg var að þvo upp úti í eldhúsinu. Svo rjett á eftir heyri jeg að Hans er að tala við einhvern inni í stof- unni. Jeg fór að gægjast í gegnum gættina og sá, að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.