Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 17

Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 17
Ó Ð I N N 17 Fóru brjef og boðsendingar milli sjómanna á fjörð- unum og kom svo, að haldinn var fundur á hverjum firði og kosinn maður til þess að ráða fram úr þessu máli. Áttu þeir kosnu menn að eiga fund með sjer á Seyðisfirði. ]eg var kosinn fyrir hönd sjómanna á Mjóafirði. Jeg fór svo á tilsettum tíma til Seyðis- fjarðar, og var þar samþykt að semja við kaupmann Otto Wathne um flutning suður. Svo voru fimm menn kosnir til þess og var jeg einn af þeim. Svo gengum við á fund Wathnes og tók hann okkur mjög ljúf- mannlega og samdist svo með okkur, að Wathne skyldi senda gufubátinn »Vaagen« 15. septem- ber og aftur þann 24. september suður um land og átti fargjaldið að vera 10 krónur á mann, lestarpláss. En við áttum að ábyrgjast honum 150 manns í fyrri ferðina, og 100 í þá seinni. Var þetta bundið fast- mælum og undirritað af Wathne og okkur öllum. Á meðan jeg var í þessum leiðangri gerði stórveður og foráttubrim. Lá við sjálft að bátana tæki út og meðan menn voru að bjarga bátunum tók út fiskistakk, og var áætlað að við, sem áttum hann, hefðum tapað þar 30 krónum hver. Þetta fjekk jeg að vita, er jeg kom heim. Nokkrum dögum seinna fór húsbóndinn til Seyðisfjarðar og setti mig til að vekja á meðan og lánaði mjer úrið sitt. Eftir að hann kom heim, hjelt jeg áfram að vekja, það sem eftir var tím- ans. Mjer þótti það tilvinnandi til þess að hafa úr upp á vasann, en það hafði jeg aldrei haft áður. Einn laugardag var farin ferð til Seyðis- fjarðar og komu þeir, sem fóru, aftur um kvöldið og höfðu með sjer kút fullan af brennivíni. Dag- inn eftir fór jeg snemma upp á fjall að leita berja og skemta mjer við útsýnið hátt uppi. Jeg kom heim um nónbilið og var það fremur leið aðkoma. Allir karlmennirnir voru fullir og alt var í uppnámi. Húsbóndinn og formaður minn höfðu orðið missáttir og lent í áflogum, sem enduðu með því að formað- urinn stökk blóðugur burtu til næsta bæjar og sagði upp stöðu sinni. Jeg varð svo stöðugt að ganga milli og stilla til friðar og var það all-erfitt verk. Loks komust þeir allir í rúmið um sex leytið. Um kveldið kl. 11 vakti jeg þá, því sjóveður var hið besta. Jeg sagði húsbóndanum vel til syndanna og kvað illa farið með sunnudaginn. Hann tók þessu mjög vel og lof- aði því að aldrei skyldi þetta koma fyrir aftur, og mætti jeg lesa húslestur á hverjum sunnudegi það sem eftir væri. Hann bauð mjer að vera formaður á bátnum og fá formannskaup, en sjálfur skyldi hann vera háseti og aðstoða mig í formenskunni. Jeg tók þessu fjarri og hótaði að fara burt, ef jeg mætti ekki sækja formanninn næsta morgun og skyldi hann biðja hann fyrirgefningar og þóknast honum eitthvað fyrir áverka og vansa. Hann lofaði því. Svo um morgun- inn fór jeg út að Krossi og fann formanninn. Hann var fyrst talsvert æstur, en jeg hjelt því fram að sökin væri hans, og segðist talsvert á því að berja hús- bóndann. Krafðist jeg þess að hann kæmi heim með mjer og bæði húsbóndann fyrirgefningar. Svo kom hann með mjer, og er þeir hittust, báðu þeir hvor annan fyrirgefningar, og alt komst í samt lag aftur. Aðeins einu sinni komumst við í hann krappann. Við höfðum róið eitt kvöld í besta veðri; við fiskuðum vel um nóttina. En um morguninn snemma lágum við undir Norðfjarðarbjargi í sólskini og logni, nýbúnir að leggja. Flestir bátar voru farnir af stað í land. Alt í einu sáum við kolsvarta rák inni á firðinum. Hún breikkaði og færðist nær, við sáum hvernig sjór- inn ýfðist upp og skein í hvíta sjávarfroðuna, er nær kom. Enn lágum við í logni. Svo rerum við út að línunni og fórum að draga; þá skall ofviðrið á okkur alveg eins og fellibylur og rótaði sjónum upp. Brátt stóð alt í einu hvítu löðri. Við reyndum enn að draga. Það var mikill fiskur á línunni. En brátt varð ofviðrið okkur yfirsterkara. Við sáum færeyiskan bát, er var að draga rjett hjá okkur. Svo sáum við að hann skar sundur línu sína og hleypti svo undan til Norðfjarðar. Við vorum svo skamt á línuna komnir, að við gátum lagt út það, sem við höfðum tekið inn, og tókum svo að róa í land. Stundum miðaði okkur ekkert og stundum rak okkur undan ofviðrinu og sjóganginum. Svo streyttumst við í nokkra klukkutíma. Einn varð alt af að standa í austri, því svo mikið gaf á. Jeg var innst inni hræddur, en ljet það ekki á mig ganga og reyndi að skemta mjer við þá mikilfengu sýn, að sjá sjóinn í æðigangi sínum, og neyddi jeg mig til þess að slá upp á gamni og ýmsri dægrastytting, kveðskap og köldum hlátri. Svo rerum við þannig í 9 klukkutíma, leið sem nam aðeins eins klukkutíma róðri í góðu veðri. Svo náðum við vör einni fyrir utan Kross og var þar góð landtaka og voru þar komnir menn frá Krossi og að heiman að taka á móti okkur. Þetta var eina svaðilförin, sem við fengum. Er nú fljótt yfir sögu að fara það sem eftir var tím- ans. Þann 15. september kom »Vaagen« og fóru þá þrír frá okkur suður og fjekst þá full tala sú, er á- skilin var. Svo biðum við, sem eftir urðum, til þess 24., er »Vaagen« átti aftur að koma. Jeg var þá al- búinn til fararinnar. Húsbóndinn kom hlut mínum í peninga vel og reiðilega. Síðan gaf hann mjer úrið sitt fyrir að vekja, og var það fyrsta úr sem jeg eign-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.