Óðinn - 01.01.1928, Blaðsíða 52
52
Ó Ð I N N
Quð er nú að leiða þig að ákveðuu verki og ætlar
þjer þetta fyrir æfistarf? ]eg varð órólegri og óró-
legri; hvar sem jeg stóð og var, kom þessi óróleiki
yfir mig. Stundum varð hann nær því óþolandi. Jeg
hafði samt ekki orð á þessu við neinn, því þótt jeg
ætti marga vini, þá var jeg ekki viss um að neinn
mundi fyllilega skilja mig og þar að auki vildi jeg
ekki skerða gleði annara með sorgum mínum. Svo
leið fram til 30. nóvember. Þá náði þetta sálarástand
hámarki sínu. Það kvöld lokaði jeg mig inni og bað
og ákallaði guð »úr djúpinu«, og bað hann um upp-
lýsingu yfir veg þann, er hann vildi að jeg skyldi
ganga. ]eg opnaði alla mína sál fyrir honum, og bað
svo um að hans vilji mætti verða, hvort sem hann
fjelli saman við minn vilja eða ekki; bað hann að
gefa mjer eitthvert teikn eða upplýsingu um sinn
vilja, sem væri svo ljós að það væri ómögulegt fyrir
mig að villast; jeg tiltók ekkert um teiknið, því það
áleit jeg ekki sæma, heldur hitt, að það kæmi alveg
ótvírætt, hvort hann vildi að jeg skyldi helga mig al-
gerlega málefni hinna ungu eða rífa mig lausan frá
því og taka aftur með fullum krafti á náminu. ]eg
held jeg hafi þannig talað við guð í heila tvo tíma
frá kl. hjer um bil 9 til kl. 11. Þá steig alt í einu
friður yfir sál mína og jeg fjekk innri sannfæringu
um, að bæn mín væri heyrð og að jeg fengi svar,
en hvernig eða hvenær, það var jeg ekki einu sinni
forvitinn um að vita. ]eg var alveg orðinn rólegur og
ásetti mjer að bíða Drottins tíma, og lagði alt í hans
hönd. Svo fór jég upp til Har. Níelssonar. Það var
afmælisdagur hans. ]eg talaði ekkert um þetta, sem
lá mjer á hjarta, og svo ákváðum við að vera saman
til altaris næsta dag, því að það var sunnudagur, og
jeg vildi staðfesta loforð mitt um hlýðni við altaris-
borðið. Svo næsfa dag vorum við til altaris í Tríni-
tatiskirkjunni og friður og fullvissa fylti sál mína með
öruggri vissu um nærveru guðs og handleiðslu hans.
Meðan jeg lá á hnjánum við gráturnar hafði jeg mjög
ákveðna tilfinningu um að hin gegnumstungna hönd
frelsara míns hvíldi yfir höfði mínu. Það var mjög
sælurík stund. Svo beið jeg rólegur dag frá degi. ]eg
var svo handviss um að teiknið kæmi, að jeg hafði
engar áhyggjur. ]eg starfaði meira en áður og gekk
líka í tíma á háskólanum. Hið eina sem jeg sló slöku
við var Skotfjelagið. ]eg skildist við það um þessar
mundir.
Svo liðu dagarnir fram að 12. desember. ]eg lá
um morguninn snemma í rúmi mínu og mig dreymdi.
Mig dreymdi að jeg stæði einhverstaðar, jeg vissi ekki
hvar, og fram hjá mjer gekk röð af drengjum, sem
jeg hafði þekt og kent, þegar jeg var í fjórða bekk.
Þar sá jeg ]úlíus Árnason, Sigvalda Stefánson (Kalda-
lóns), Pjetur Egilsson og þá alla. Sigurður Loftur,
uppáhaldið mitt sjerstaka frá þeim tíma, var þar og
leit til mín og sagði: »Það er grein í Helga kveri
sem jeg skil ekki«. »]eg skal útskýra hana fyrir þjer«,
sagði jeg; svo gekk hann líka áfram. Guðbjartur,
jeg man ekki hvers son, sagði: »Það er langt síðan
þú komst heim til okkar mörnmu!* »]eg kem nú
bráðurn*, sagði jeg; svo vaknaði jeg og draumurinn
var svo lifandi fyrir mjer. ]eg Iygndi aftur augunum
og naut draumsins. ]eg sá þá fyrir mjer þessa drengi
eins og þeir voru þá, eins klædda og þá og eins litla.
]eg hafði um mörg ár ekkert munað eftir þeim fyrir
öllu hinu nýja, og mjer datt í hug: Nú eru þeir á
U-D aldri, og jeg hugsa aðeins um danska drengi.
]eg gæti nú skrifað þeim brjef og þannig orðið þeim
að liði í andlegum efnum.
Svo var barið að dyrum og inn kom pósturinn og
lagði tvö brjef á borðið. ]eg tók annað og las það,
það var frá mömmu. ]eg þekti ekki höndina á hinu.
En utan á var skrifað: Hr. cand. phil. — jeg varð
hálfgramur og fanst eins og væri það móðgun. Stud.
mag. var þó hið rjefta og cand. phil. notað mest um
þá sem hættir voru öllu námi. — ]eg var að hugsa
um að opna það ekki. Þá var aftur komið inn. Það
var Har. Þórarinsson. Nú bjuggum við ekki saman.
]eg var fluttur á þriðja gang nr. 12 og hafði herbergi
einn, fremra herbergi, en innra herbergið hafði fyrst
danskur stúdent og seinna Sigurður Magnússon frá
Laufási. Haraldur vildi fá frjettir, en jeg hafði engar.
Hann vildi að jeg opnaði brjefið, en jeg sagði nei,
og stakk því niður í borðskúffuna hjá rúmi mínu.
Svo fór Haraldur hálfgramur. En er hann var
farinn, tók jeg brjefið og fór að skoða það, og svo
fór að jeg opnaði það. Það var frá Þórhalli lector
Bjarnarsyni. ]eg fór að lesa. Það var um það, að
hann hefði heyrt að jeg starfaði mikið í hinu kristi-
lega fjelagi ungra manna og væri eini Islendingurinn,
sem þekti fjelagið af reynslunni. Hann hefði og heyrt
að nám mitt væri að fara út um þúfur af þessum
ástæðum. Hann spurði, hvort jeg vijdi nú ekki koma
heim og vinna að stofnun slíks fjelags heima og
stæðu íslenskir drengir mjer nær en danskir. Gæti
jeg unnið fyrir mjer með kenslu og ef jeg vildi
gengið á prestaskólann, til þess að hafa það fyrir
bakhjarl o. s. frv. — Þegar jeg hafði lauslega rent
augunum yfir brjefið, reis jeg upp og henti því út í
horn og sagði: »Það skal þó aldrei verða«, en samt
komst jeg í mikla geðshræringu. ]eg fór að klæða