Óðinn - 01.01.1928, Qupperneq 10

Óðinn - 01.01.1928, Qupperneq 10
10 Ó Ð I N N megnugur að greiða úr öllum vandkvæðum mínum. Það greip mig sterk öryggistilfinning, og ósegjanleg gleði rann upp í mjer. Hann var mjer svo lifandi og persónulegur, að söngurinn var upp frá því eiginlega samtal við hann. Þá bað jeg með sjálfum mjer og var handviss um að bænin væri heyrð. Þessi tilfinning staðfestist svo við textann, sem upp var lesinn. Það voru fyrstu versin úr 55. kap. Jesa- jasar spádómsbókar: »Heyrið allir þjer, sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins og þjer, sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs og endurgjaldslaust, bæði vín og mjólk . . . Hneigið eyru yðar og komið til mín, heyrið svo að sálir yðar megi lifna við! Og jeg vil gera við yður eilífan sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála*. Sá sem ræðuna hjelt, var ungur mað- ur, skotskur, Alexander Mitschell að nafni. Hann talaði á ensku og maður túlkaði á færeyisku. Hann talaði heitt og innilega og það var eins og texti og hvert orð í ræðunni væri til mín stílað. Jeg tók á móti þessum náðarsáttmála og gerði á mót þann sátt- mála, að tilheyra Drottni það, sem eftir væri æfinnar. Þetta varð ein hin þýðingarmesta stund æfi minnar. Jeg var mjög sæll og glaður og var viss um að alt mundi fara vel. Svo vissi jeg varla af fyr en samkoman var úti og jeg kvaddi hr. Slóan og bauð hann mjer að heim- sækja sig næsta dag. Jeg gat með engu móti sagt honum, hvernig á stóð fyrir mjer, því jeg var fyltur af mikilli unaðsemnd. Jeg gekk út í hríðarjagandann og myrkrið eins og mjer væru allir vegir færir. Jeg gekk lengi, Iengi og hugsaði um þetta nýja, sem komið var svo óvænt inn í líf mitt. Loksins klukkan 10 fór jeg að hugsa um að ein- hvers staðar yrði jeg að fá mjer húsaskjól og tók jeg svo rögg á mig og gekk rakleitt til gistihúss, er stóð þar rjett við lækinn niður við sjóinn. Jeg hugs- aði sem svo: »Þótt jeg hafi enga peninga til að borga næturgreiðan, þá hefi jeg nokkuð af fötum og góðum bókum á dönsku meðferðis. Svo gekk jeg þar inn og bað um rúm. Þegar jeg kom inn stóð þar matur á borðum og var jeg spurður um, hvort jeg vildi ekki borða. Jeg áleit að rjettara væri að gera það ekki, en þá vaknaði sulturinn upp eins og af dvala, og jeg stóðst ekki mátið og borðaði með góðri lyst. Þar var meðal annars >skerpukjöt* (vindþurkað kjöt) á borðum og fanst mjer það ljúffengara en nokkurt kjöt annað, sem jeg hafði smakkað. Að loknum snæðingi var mjer vísað upp í herbergi. Þar var borð og stóll og gott rúm upp búið. Þá fanst mjer eins og jeg væri kominn í höfn og jeg fann aftur glögt vil nærveru hins verndandi kraftar. Jeg baðst fyrir lengi og það var lofsöngur í sál minni, og glaður og áhyggjulaus háttaði jeg og sofnaði vært og svaf til morguns. Um kl. 9 fór jeg niður í stofu og var þá án þess að jeg bæði um komið með kaffi með kleinum til mín, og drakk jeg það, og svo lang- aði mig mikið til þess að fara út, en kom mjer ekki að því, og kveið fyrir að fara að gera upp nætur- reikninginn. Loks tók jeg hug í mig og spurði kon- una, hvað jeg skuldaði. Jeg sá að henni hálf hnikti við og spurði hún hvort jeg ætlaði að fara, og hvort mjer líkaði þar eigi. Jeg sagði, að mjer hefði líkað mæta vel, en jeg vildi gjarnan vita hvað mikið þetta kostaði. Hún sagði: »50 aura«. Jeg gat varla trúað mínum eigin eyrum, svo ódýrt fanst mjer það. Jeg kváði því og sagði »50 aura«!? — Konan sagði: »Já, það getur ekki verið minna*. Jeg sagðist trúa því, því mjer fyndist það afaródýrt. Svo spurði jeg hana, hvað það myndi kosta á dag að vera þar um tíma. Hún sagði: »Ef þjer viljið hafa sjerstakan mat fyrir yður, kræstan, þá kostar það kr. 1,50 um daginn, herbergi og fæði«, en ef jeg vildi borða með fjölskyld- unni þá aðeins krónu. Jeg kvaðst heldur vilja það, því þá gæti jeg líka betur lært færeyisku. Svo var þetta um samið og jeg sótti kofort mitt og settist þar að. Maðurinn hjet Diurhuus og konan Olivia og var fædd Möller, systir Möllers sýslumanns, ef jeg man rjett. Þau áttu engin börn. Þau voru mjer ein- staklega góð og leið mjer þar mæta vel. Jeg fór til ritstjóra »DimmaIætting« og fjekk hann til að geta um það í blaðinu, að jeg tæki að mjer að kenna ís- lensku og hjálpa gagnfræðaskóladrengjum í náms- greinum þeirra. Jeg var heilmikið á randi fyrstu vik- una og komst brátt í kynni við ýmsa menn. Sá sem jeg kyntist einna fyrst hjet Djóne Isaksen. Hann var mikill maður vexti og stórmyndarlegur, fróður og lesinn. Hann bauð mjer heim til sín. Hann átti þrjá sonu: Pál, Kristinn og Pjetur. Þeir voru mjög myndarlegir drengir. Kristinn gekk í gagnfræða- skóla og var vel gáfaður. Páll gekk að vinnu. Hann var elstur, þá eitthvað um sextán ára. Pjetur var yngstur, sjö eða átta ára. Þeir drengirnir urðu mjög hændir að mjer og sjer í lagi Kristinn, því hann var á Iærdómsbraut. Djone Isaksen var hinn skemtileg- asti maður og skáldmæltur vel. Hann hafði ort kvæði til konungs, er hann kom þangað árið 1874 á leið- inni til íslands, og ennfremur hafði hann ort erfiljóð eftir Lutzen kennara, sem bráðkvaddur varð í kon- ungsveitslunni við það tækifæri. Lutzen hjelt ræðuna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.