Óðinn - 01.01.1928, Side 51

Óðinn - 01.01.1928, Side 51
Ó Ð I N N 51 og fleiri góðar bækur. Jeg lærði »Arvingen« eftir Goldschmidt nærri því utan að, til þess að geta lært að skrifa góða dönsku. Fjárhagurinn þennan vetur var oft mjög þröngur og garðstyrkurinn vildi ekki ætíð ná til enda mán- aðarins, og stundum var jeg líka of ógætinn að nota það lánstraust, sem kaupfjelag Garðbúa veitti, og kom það fyrir að jeg varð að skila viðskiftabókinni, og hafði þá ekkert um tíma. Stundum neyddist jeg til að fara að selja eitthvað til þess að draga fram lífið, en það var lítil hjálp í því, og nokkrar dýrmætar bækur misti jeg á þann veg. Stundum var svo erfitt að jeg hafði ekki neitt til matar. Þannig var það einu sinni, að jeg hafði ekkert haft og ekki smakkað mat í tvo daga. Svo að morgni hins þriðja dags fór jeg út á heræfingu. En jeg var eitthvað svo linur að jeg gat ekki gert neitt til hæfis. Jeg var svo seinn með allar hreyfingar byssunnar, að þegar jeg átti að setja byssu við öxl kom minn smellur 2 sekundum á eftir hinum, og foringi minn var alveg forviða og skamm- aði mig; jeg beitti öllum krafti til að gera það, sem jeg gat, en gat ekki að þessu gert, og þegar jeg gekk heim, þá fanst mjer byssan vera svo afarþung. Svo er jeg kom heim, fór jeg að hugsa um að þetta hefði komið af því að jeg hafði verið matarlaus svo lengi. Svo fór jeg að hugsa um, hvort jeg hefði nokkuð að setja á lánstofuna, en gat ekki fundið neitt. Svo fór jeg inn í fafaskápinn minn að sjá hvort jeg hefði nokkurt plagg, sem jeg gæti mist og væri nokkurs virði, en fann ekkert. En þegar jeg var að gæta að þessu, rakst jeg á sódavatnsflösku í horninu á skápnum. Þá niundi jeg eftir því, að löngu fyrir jól kom einu sinni til mín maður, sem jeg vildi gæða á einhverju og hann kaus sódavatn, svo jeg hljóp út til kryddsalans og fjekk eina af þeirri tegund sem kall- aðar voru sogflöskur (Siphon), kostaði innihaldið 16 aura, en flaskan fylgdi með þannig að maður lagði kr. 3,50 í veð, sem maður fjekk aftur, er flöskunni var skilað. Þefta veð hafði jeg svo lagt. Maðurinn drakk aðeins lítið eilt og hafði jeg svo sett flöskuna inn í skapinn, og af því jeg drakk aldrei sódavatn, hafði jeg gleymt henni. Nú kom hún í góðar þarfir. Jeg tæmdi innihaldið í skólpfötuna, og fór með flösk- una og fjekk mínar 3 kr. og 50 aura fyrir. Nú var jeg birgur og fór strax á matarhús og keypti mjer máltíð fyrir 50 aura. Og er jeg var orðinn saddur var jeg svo sæll. Jeg gekk út á Norðurbrú; þar hitti jeg lítinn dreng, sem var að naga brauðskorpu. Jeg var sve glaður af því að jeg átti fjársjóð, og var saddur, að jeg bauð drengnum að borða þar í kjallarakrá einni og varð hann afarfeginn. Og jeg átti samt forða eftir til nokkurra daga. Þetta kom nú ekki oft fyrir, og alt af rættist fram úr á einhvern veg. Svo var mjer einn dag tilkynt frá K. F. U. M. að einhver hefði komið og borgað fyrir mig miðdagsmat í 2 mánuði. Hann hefur haft grun um að jeg væri ekki vel stæð- ur, en nafn hans fjekk jeg aldrei að vita. Sumarið 1895 var fyrir mjer viðburðalítið sumar. Jeg varði mestu af því til þess að starfa í »sveit« minni og sjerstaklega lagði jeg alúð við þá drengi sem voru erfiðir eða voru að komast á glapsfigu. Hefði jeg ýmislegt fróðlegt að segja frá því starfi og viðkynningu við piltana og heimili þeirra, sem hjer yrði of langt að skrifa um; en sumir af þeim piltum, sem þá voru allra erfiðastir viðfangs, eru nú meðal minna góðu vina og merkir menn. Þetta sumar komst jeg svo inn í starfið að það tók mig algerlega; mjer fanst jeg hafa að lokum fundið sjálfan mig. Og þetta ágerðist eftir því sem á sumarið leið. Allur annar áhugi þvarr fyrir þessu eina og auðvitað fór námið að líða við það. Um vorið fórum við skemtiför til Skánar með eitthvað um 300 drengi og var það mikill skemtidagur. Jeg orti kvæði, sem sungið var í skóginum, og Ricard orti annað. Aðallega tók jeg þátt í U-D, miklu minna í aðaldeildirni. Þegar haustið kom gekk jeg að vísu á fyrirlestra, en aðallega til þess að fá haldið iðnisattesti mínu, en heldur varð lítið úr lestri. Þó las jeg talsvert í Ovid fyrri partinn um veturinn. Jeg fór að verða talsvert kunnugur í fjelaginu og margir voru mjer afar góðir. Bankastjóri Bangert, formaður fjelagsins, var mjer ákaflega góður og vinveittur, og var hann það til dauðadags. Kemur hann að vísu enn þá meira við sögu mína síðar. Svo fór að líða á nóvembermánuð og þá fór mjer að verða dálítið órótt út af árekstrinum milli þessa kristi- lega sjálfboðastarfs og skyldunámsins. Og jeg fann æ belur og belur að jeg var ekki maður til að hafa hvorttveggja saman; sumir gátu skift sjer þannig á milli, að þeir gátu unnið gott verk í fjelaginu og stundað samt nám sitt, en jeg fann að jeg gæti það ekki. Ef jeg vildi stunda námið, varð jeg að draga mig burt frá K. F. U. M. þangað til jeg væri búinn, og jeg fann að jeg mundi þurfa að beita við mig mjög hörðu, ef jeg ætti að hætta við fjelagið. Mjer fanst jeg bregðast ýmsum af hinum ungu, sem jeg fann að jeg var til hjálpar. Þetta varð því í huga mínum að skyldubága, en í raun og veru var það þannig, að skyldan stóð á móti tilhneigingunni. Og tilhneigingin hafði sterkari taugar. En baráttan varð alt af þyngri og þyngri. Svo kom spursmálið, en ef

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.