Óðinn - 01.01.1928, Page 64

Óðinn - 01.01.1928, Page 64
64 Ó Ð I N N að Vestur-íslendingar »haldi uppi sóma gamla landis á allan hátt«. Vinir og venslamenn þessara gömlu heiðurs- hjóna hjer heima — og þeir eru margir — senda þeim hugheilar hamingjuóskir um friðsæla elli og fagurt æfikvöld. Reykjavík, 19. júní 1928. Jón Pálsson. Björgúlfur Ólafsson læknir. Landar vorir, sem leitað hafa sjer fjár og frama erlendis síðustu áratugi, hafa flestir farið Björgúlfur Ólafsson. til Vesturheims eða Danmerkur, og ef þeim hefur vegnað vel, hafa þeir sjaldan leitað heim aftur til langdvala. Hjer birtist mynd af manni, sem haft hefur áræði til þess að kanna þá stigu, sem Islend- ingum voru ókunnir. Það er Björgúlfur læknir ólafsson, sem nú er alkominn heim hingað eftir margra ára dvöl austur í Asíu. Honum hefur gengið alt til gæfu og frama austur þar, en þó hefur hann staðráðið að setjast hjer að og hefur keypt hið fræga höfuðból Bessastaði og reisti þar bú síðastliðið vor. Björgúlfur Ólafsson fæddist 1. dag martsmán- aðar 1882 í Húsum í Neshreppi á Snæfellsnesi. Faðir hans var Ólafur Jónsson Guðmundssonar frá Munaðarhóli og Kristínar Ásgrimsdóttur, Hellnaprests. Kona Jóns, en móðir Ólafs, var Herdís Ólafsdóttir, Bjarnasonar, Bogasonar, sýslu- manns á Staðarfelli. Kona Ólafs, en móðir Björgúlfs, var Guðbjörg Melchiörsdóttir, Eggerts- sonar prests, Bjarnasonar, Pálssonar, land- læknis, að Nesi við Seltjörn. Móðir Guðbjargar var Björg Jónsdóttir Bachmanns, prests að Klausturhólum. Kona Eggerts, en móðir Mel- chiörs, var Þorgerður Eyjólfsdóttir frá Sviðholti, en kona Bjarna var Bannveig Skúladóttir land- fógeta, Magnússonar. Kona Jóns Bachmanns var Bagnheiður Björnsdóttir, prests, Þorgríms- sonar, að Setbergi í Eyrarsveit. Eru þelta merkar ættir og þjóðkunnar. Foreldrar Björgúlfs bjuggu í Mávahlíð fyrstu búskaparár sín, en fluttist þaðan að Húsum og nokkuru síðar til Ólafsvíkur. ólafur faðir hans hafði áður verið verslunarmaður og sýsluskrif- ari í Stykkishólmi, og þá er hann fluttist til Reykjavíkur (árið 1899), varð hann skrifari hjá Árna landfógeta Thorsteinsson og síðar bæjar- fógetaskrifari til dánardægurs. Hann andaðist í Reykjavík vorið 1910, 58 ára gamall, en kona hans andaðist 29. dag martsmánaðar 1926 á heimili Grímúlfs sonar síns. Björgúlfur ólst upp með foreldrum sínum og var yngstur þeirra þriggja bræðra, sem nú eru á lífi, en systkinin voru sex, og dóu þrjú í æsku, stúlka og tveir drengir. Elstur þeirra bræðra er Melchiör skipstjóri (fæddur 1. febrúar 1878), en þá Grímúlfur tollvörður í Reykjavík (fæddur 9. júní 1880). Melchiör fór ungur í siglingar og hefur lengi verið skipstjóri og í förum við Kyrra- hafsstönd. Hann á heima í San Fransisco í Kaliforníu. Björgúlfur vandist allri algengri vinnu á sjó og landi í uppvexti sínum, en veturinn 1898— 99 nam hann skólalærdóm hjá Skúla lækni Árnasyni, sem þá var hjeraðslæknir i Ólafsvík (síðar í Skálholti og nú kominn til Reykjavíkur). Vorið 1899 gekk hann undir inntökupróf í Lærðaskólanum og settist í fyrsta bekk um haustið. Var hann þá þegar þroskameiri en títt er um unglinga á því reki, sterkur vel og glæsi- legur, og var bekkjarbræðrum hans jafnan mikið traust að honum, ef »herferðir« voru farnar á hendur þeim úr öðrum bekkjum. Honum sótt- ist námið auðveldlega og var jafnan ofarlega í

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.