Óðinn - 01.01.1928, Side 65
Ó Ð I N N
65
bekknum, en las þó ýnnslegt aukreitis, einkum
nýju málin. P*á er hann hafði lokið fjórða-
bekkjar-prófi, vorið 1903, fjekk hann leyfi til
þess að lesa á einum vetri undir stúdentspróf,
en slíkt leyfi fengu þeir einir, sem reyndir voru
að góðum hæfileikum. Hann stundaði heimilis-
kenslu á Patreksfirði veturinn 1903—4, en las
í tómstundum sínum og lauk stúdentsprófi 30.
júní 1904, með I. einkunn.
Björgúlfur fór úr Reykjavík á hverju sumri,
á meðan hann var í latínuskólanum, til þess
að leita sjer atvinnu. Þótti skólabræðrum hans
einkennilegt, hve viða hann fór á þeim árum.
Hann var eitt sumar á Hólum í Hjaltadal,
annað í Möðrudal á Fjöllum, hið þriðja í Borg-
arfirði eystra og fjórða sumarið kendi hann
sund í Vestmannaeyjum. Sumarið, sem hann
gekk inn í Latínuskólann, rjeðst hann til veiða
á sþórcc, sem þá var botnvörpuskip, í eigu
danskra útgerðarmanna, en nú er varðskip hjer
við land. Af þessum sökum varð Björgúlfur
vel kunnugur atvinnuvegum og landsháttum og
kyntist fjölda manna.
Sumarið 1904 fór hann til Iíaupmannahafnar
og tók þar að stunda læknisfræði. Hann lauk
háskólaprófi í þeirri grein vorið 1911, þótt hann
yrði oft að hverfa frá námi tima og tíma til
þess að afla sjer fjár, því að fjelítill var hann
þá eins og margir aðrir landar hafa verið og
eru enn, þeir er nám stunda. Var hann þá
læknir fyrir aðra, sem tóku sjer hvild um stund.
Skildist hann hvarvetna svo við, að virðing hans
og vinsældir jukust því meir sem dvöl hans
varð lengri í hverjum stað. Næstu tvö ár eftir
embættispróf stundaði hann lækningar víðsvegar
um Danmörku, t. d. í Oresunds Hospital, Odense,
Vordingborg og Juelsminde. Átti hann þar við
góð kjör að búa, eftir því, sem þá gerðist, en
þó festi hann þar aldrei yndi. Honum var um
eitt skeið ríkt í huga að gerast skipslæknir á
einhverju langferðaskipi, en þó varð aldrei úr
því. En veturinn 1913 kom honum til hugar
að sækja um læknisstörf í nýlendum Hollend-
inga í Asíu. Hafði hollenska stjórnin auglýst
eftir læknum í því skyni. Fór hann þá þegar á
fund sendiherra Hollendinga í Kaupmannahöfn,
án þess að leita nokkurs manns aðstoðar. Var
honum ráðlagt að skrifa stjórnardeild þeirri, sem
um þetta mál fjallaði, og skömmu síðar var
hann ráðinn til þriggja ára hjá hollensku stjórn-
inni, til þess að annast lækningar austur i ný-
lendum Hollendinga.
Þá um sumarið kom hann snögga ferð hingað,
til þess að vitja vina og ættingja, áður en hann
færi austur.
í nóvembermánuði 1913 lagði hann af stað í
hina miklu »austurför« sina og fór þá til Bata-
via á Java. Þaðan fór hann til Tímahí, — sem er
uppi í háfjöllum á Java, — og stundaði sjúkra-
húslækningar fram til vors 1914, en varð þá
herdeildar- og hjeraðslæknir í Kenangan á Borneó
og dvaldist þar í þjónustu hollensku stjórnar-
innar þangað til vorið 1916, en þá var liðinn
sá tími, sem hann rjeðst til í upphafi, eins og
fyr segir.
Árið 1915, 16. dag aprílmánaðar, kvæntist Björg-
úlfur ungfrú t’órunni Benediktsdóttur, kaup-
manns, Þórarinssonar, en þau voru þá sitt í
hvorri heimsálfu, hún í Amsterdam í Hollandi,
en hann í Kenangan á Borneó, og fór hjóna-
vígslan fram samtímis á báðum þessum stöðum,
en síðan fór brúðurin austur, fyrst til Genóva
en þaðan sjóleiðis til Borneó. — Þau hafa eign-
ast tvö börn, dóttur, sem Sigrún heitir og fædd
er í Kaupmannahöfn 14. desember 1922, og son,
sem Egill heitir. Hann fæddist i Sambó 7. ágúst
1924.
Þegar Björgúlfur fór úr þjónustu stjórnarinn-
ar, settist hann að í Bandjurnasin, höfuðstað á
Borneó, og stundaði þar lækningar fram til vors
1917, en rjeðst þá í þjónustu Asiatic Petroleum
fjelagsins. Þykir læknum gott til fjár og frama
að starfa hjá því fjelagi, og getur það jafnan
gengið í valið um góða starfsmenn, hvort sem
eru læknar eða aðrir. Ugglaust hafa margir átt
betri aðstöðu en Björgúlfur til þess að komast
í þjónustu þessa fjelags, en honum dugði það,
að hann hafði áður getið sjer hinn besta orðstir
í starfi sínu. Settist hann þá að i eynni Sambó,
rjett hjá borginni Singapore, er stendur í ey við
suðurodda Malakkaskaga. Þar starfaði hann fram
til vorsins 1926 og var yfirlæknir i spítala þeim,
sem fyrgreint fjelag hefir látið reisa þar, og
tekur á annað hundrað sjúklinga. Voru þar
tveir læknar auk hans.
Auk spítalastarfsins gegndi hann einnig sótt-
varnarstörfum fyrir hollensku stjórnina, því að
þar er sóttgætslustöð þeirra skipa, sem fara frá
Singapore til hollensku nýlendunnar (Strate
Settlement). Þar eru siglingar svo miklar, að