Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 12

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Side 12
in Icelandlí [endurlifnun forns lærdóms á íslandi], er ekkert annað en byrjunin á framförum síðari tímanna, en þess er ekki getið með einu orði. Hann kallar kirkjusögu Finns biskups hið lærðasta verk, er samið haíi verið eptir siðabótina (the most learned work that has proceeded from an Icelandic pen since the Reforma- tion, bls. 203). Sveinbjörn Egilsson fær það lof, að hann hafi verið „the last of the long list of Icelandic Latinists11, bls. 182; „hann rekur lestina“ segjum vér; en á sömu bls. er Unger hrósað fyrir „his colossal industry“ [sína fjarskalegu starfsemi]. Að útgáfur Sveinbjarnar Egils- sonar og Árna-Magnússonar-nefndarinnar af Snorra- Eddu séu ónýtar, sjáum vér af þessum orðum á bls. 81: „A new edition is much needed, which should take Codex Wormianus as its basis“ [það væri mesta þörf á nýrri útgáfu, er ætti að leggja C. W. til grundvallar]. En á bls. 194, þar sem Madvig er náttúrlega ,æru- skyldugast' upphafinn á guðasætið, er Bergmann kall- aður „Nestor of Eddic studies“ [Nestor Eddufræðinnar], og S. Bugge hálofaður fyrir „gift of divination11 [spá- dómsanda], sem vér munum skoða betur síðar. Berg- mann hefir tileinkað Guðbrandi bók um Harbarðsljóð. í ritgjörð sinni um „Tímatal í íslendinga sögum“ og í innganginum fyrir þ>jóðsögum Jóns Árnasonar var Guðbrandur Vigfússon gagntekinn af fegurð hinna yngri skáldsagna (þótt þær í rauninni séu eldri, þá eru þær miklu seinna ortar og stýlfærðar en fornritin). í „Tíma- talinu“ (Safn I, 207) t. a. m. er Kjalnesinga saga kölluð „ágæt saga í sinni röð“; en í „Prolegomena“ er hún kölluð „spurioiis“ (sem alls ekki merkir skröksögu, eins og höf. segir) og „fabrication“ (bls. 62 og 63). En allar sögur eru í rauninni „fabrication", eins „Prolegomena“; en allir sjá með hverjum huga til sagnanna þetta er ritað. í „Tímatalinu“ er þessum orðum farið um Grett- issögu: „Grettla hefir í ýmsu yfirburði yfir allar vorar

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.