Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 15

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 15
setur upp um óþrifnað vorn og bókaskemdir, svo það er þó orðið einum fleira af þeim, sem prédika þetta um oss, eins og hvergi megi annarstaðar finna lík dæmi. |>essi orð höf. hljóða þannig: „tlie damp climate, the chances of fireíl [hið rakasama lopt, eldsvoðarnirj, (bls. 132); „fire, damp, and ill-usage in lcelandic farms'1 (bls. 133); „In Iceland self, smoke and dirt, in farm- houses built of turf, and imperfectly weathertight and warmed with fires of sheeps dung, were, after all, the greatest enemies of MSSil [þegar alt kemur til alls, voru verstu óvinir handritanna á íslandi sjálfu, reykj- arsvæla og saur í moldarkofum, sem leka og þar sem brent er sauðataði] (bls. 153). Vér vitum vel, að vér erum og höfum verið óþrifnir, en G-uðbrandur hefði heldur átt að prédika það fyrir oss sjálfum, heldur en fyrir útlendingum, því þess gjörðist engin þörf; og það því síður sem hann mun varla þurfa að leita lengi í Öxnafurðu eða Lundúnum, eða hvar sem er, til þess að finna — ekki einungis helmingi meiri óþrifnað, held- ur og þann óþrifnað, sem ekkert fólk á íslandi hefir nokkra hugmynd um. Og hvað skemdunum á hand- ritunum við víkur, þá talar hann (eins og annars er vant) eins og hvergi hafi skemzt eða týnzt bækur nema á íslandi. Munu öll grísk og rómversk handrit vera til enn ? Hvað varð um bókasafnið í Alexandríu ? Hvern- ig fór um ritverk Aztekanna í Mexíkó? J>ó ótrúlegt sé, þá lítur samt svo út, sem höfund- ur forspjallsritsins geti ekki svarað þessum spursmál- um, svo barnalega ritar hann. því á bls. 152 er hann að tala um, að töluverð viðskipti hafi verið milli Engla og íslendinga á árunum 1413—1520, og þykir honum bæði undarlegt og leiðinlegt, að handritvor ekki skuli hafa flutzt þá til Englands, eins og hann viti ekki, hvern- ig þá stóð á á Englandi, að menn munu hafa hugsað um annað en handrit, þar sem öll bókvísi var gleymd

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.