Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 41

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Page 41
41 unaraðferð, sem hann kallar „flagsléttu“. Hann seg- ist hafa reynt, að flagslétta, sem hentugur áburður var borinn á, hafi verið fullgróin á 3 árum, og hafi gefið eins mikið eða meira gras en jafngömul „þakslétta“, sem tyrfð var með slæmri grasrót. þ>essar greinir hefi eg sett þeim til bendingar, er reyna vildu að flagslétta. Um kostnaðinn til að slétta dagsláttuna er það að segja, að eptir þvi sem alment gengst við hér um sveitir, þá má reikna fullkomnum verkamanni í fæði og kaup 3 krónur á dag, einkum sé þar með talið verk- færa lán. f>eir, sem plægja og leggja plóg, herfi, ak- týgi og hesta til, leigja sig fyrir 5 kr. á dag að for- sorgun meðtalinni. Verður þá kostnaðarminnst að hafa þijá menn i verki með þeim, sem plægir, svo alt geti gengið jafnt fram, og að hin leigðu jarðyrkjutól og plóghestur verði tilhlýðilega að notum. Með hinni 1. sléttunaraðferð gjörði eg að það næmi 80 dagsverkum að slétta dagsláttuna, og þegar hvert dagsverk er reiknað á 3 kr., verður allur kostn- aðurinn 240 kr. Við hina 2. sléttunaraðferð ætlaði eg á að 72 dagsverk gengju til dagsláttu-sléttunarinnar á 3 kr. hvert, verður þá kostnaðurinn 216 kr. Við hina 3. sléttunaraðferðina er ráðgjört, að 53 dagsverk gangi til þess að slétta dagsláttuna. J>ar af gjöri eg 40 dagsverk á 3 kr., en 13 dagsverk á 5 kr. Verður þá kostnaðurinn 185 kr. f>essi sléttunaraðferð er að öllu leyti hin hagfeldasta, og ættuþví allir, sem gætu, að viðhafa hana. Um kostnað við hina 4. sléttunaraðferð sleppi eg að gjöra áætlun. Er nú tilvinnandi að taka fé á leigu til að leggja í sléttunarkostnað ? Eg ætla nú að gjöra ráð fyrir, að dagsláttan fáist sléttuð fyrir 200 kr., sem eg tek að

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.