Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 48

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 48
48 Allur sinu-úrgangur og moð borið i haug og bland- að vallarafrakstri er góður undirburður, einkum sé haug- vatni eða þvagi yfir hann helt. Áburðurinn ofan á þökurnar þarf að vera frjór og léttur, t. a. m. hesthús- haugur, moði blandinn, einkum töðumoði, eða þá mykju- vatn eða forarvatn þunt. f>ví meiri stund, sem lögð er á túnræktina, þess meiri þörf verður á áburðinum, og þess meiri nauðsyn að auka hann með öllu móti. Um þetta efni eigum vér ágæta ritgjörð „um áburð“, eptir Svein búfræðing í 30. ári Nýrra Félagsrita 1873, bls. 28—76, og bendi eg með mestu ánægju til hennar. Sömuleiðis eigum vér f 1. ári Andvara góða ritgjörð um þúfnasléttun eptir Guðmund jarðyrkjumann Olafsson, sem áður er sagt. Ef túnræktin ætti að vera í bezta lagi, er full þörf á að slétta upp aptur svo sem 15. hvert ár, og ætti þá að slétta upp aptur tiltekinn túnhluta árlega. Eg enda þá grein þessa með þeirri hugheilu ósk, að þér, kæru samlandar, ræktið tún yðar sem bezt, og að þér af eigin reynslu komizt til sömu sannfæringar sem eg, að túnræktin sé ein hin arðmesta, áhættu- minnsta, hagfeldasta og skemtilegasta atvinnugrein.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.