Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 50

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 50
5° kunn, kom inn aptur 1692, var sama ár kallaður til konrektors eður heyrara í Hólaskóla af Einari biskupi þorsteinssyni og varð, eptir þriggja ára dyggva þjón- ustu í þessari stöðu, 1695 skólameistari á Hólum í stað Egils Sigfússonar. I því embætti sat hann 12 ár, til 1707, við bezta orðstír, nema hvað hann þótti harður við skólasveina. Einir tveir af öllum lærisveinum hans sluppu hjá höggum, sem sé Ormur Bjarnason, síðar prestur á Melstað, og þorlákur Skúlason, síðar prestur á Grenjaðarstað. Hafði Jón þá bú f Geldinga- holti og giptist 1703 Guðrúnu Einarsdóttur biskups, sem var 38 ára, eins og hann. Frá 1692 hafði hann haft svokallað vonarbréf fyrir Stað í Steingrímsfirði; var hann, við fráfall síra Magnúsar prófasts Einarssonar, vfgður til þessa brauðs 1707 af Jóni meistara Vídalín og varð árið eptir prófastur í Strandasýslu. Eins og kunnugt er, vildu allir prestar í Skálholts- stipti hafa Jón prófast Haldórsson, föður Finns bisk- ups, í stað Jóns biskups Vídalíns, þegar hann féll frá 3. ágúst 1720, enda studdi Fuhrmann amtmaður að því. En, það er eins kunnugt, að Jón Haldórsson var lítt framgjarn maður, mun og hafa haft pata af, að Ditleifur geheimeráð Vibe hafði, fyrir fortölur Arna prófessors Magnússonar, boðið Jóni Arnasyni SkálfTolts- stól. Fór Jón því utan 1721, tók biskupsvígslu áboð- unardag Maríu (13. febr.) 1722, kominnaptur samsum- ars, reið á alþingi til að sitja sýnodal-réttinn og byrj- aði biskupsdóminn með því að setja frænda sinn, síra Árna í Hvítadal, prest til Saurbæjarþinga, frá embætti fyrir drykkfeldni. Urðu menn þá fljótt áskynja, hvers vænta mátti af honum, og brá nokkuð í brún, því meistari Jón Vídalín hafði ekki tekið svo hart á þeim breiskleika. Jafnframt útgaf hann umburðarbréf um uppfræðing barna og fyrirskipaði barnalærdómskver, sem hann hafði sjálfur látið prenta í Kaupmannahöfn.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.