Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Qupperneq 61
6l
5. Donatus, grammatík og latínsk-íslenzk orðabók, Kh.,
1734-
b. óprentaff, helzt:
6. Íslenzk-latínsk orðabók.
7. Ritgjörð í bréfsformi til Jóns meistara Vídalíns, um
framburð á grísku og latínu.
8. Ritgjörð í bréfsformi til Páls lögmanns Vídalíns um
tíund, eykt, ping.
9. Varnarrit gegn Páli Vídalín og Árna Magnússyni
fyrir Bergþórs statútu.
B. Eptir affra, en sem Jón biskup kom á framfæri:
1. Joh. Arndts sanni kristindómur, íslenzkaður af sira
þ>orleifi Árnasyni á Kálfafelli á Síðu, Kaupmanna-
höfn, 1730.
2. Rostochs postilla, íslenzkuð af síra Pétri Einarssyni
að Miklaholti, Kaupmannahöfn, 1739.
3. íslenzk sálmabók, Kaupmannahöfn, 1742.
4. Upprisusálmar Steins biskups, Kaupmannah., 1743.
5. Joh. Lassenii bænir, fslenzkaðar af síra þ>orsteini
Gunnarssyni, Kh., 1743.
Jón biskup var mikill búhöldur og fyrirhyggju-
maður, og kallaður naumur hversdagslega. En þó
liggur meira eptir hann af stórgjöfum, en flesta bisk-
upa vora. Gaf hann til prestsseturs Garpsdal vestra,
Berufjörð eystra, Strönd í Árnessýslu, Arnarbælií Gríms-
nesi, Geitagil til Sauðlauksdals, Háfós til Otrardals,
Veigastaði til Svalbarðs, styrkti marga námsmenn til
bókiðna, svo sem Einar, síðar skólameistara, Jónsson,
Jón stúdent Árnason, er dó erlendis, þórð, síðar prest
í Reykjadal, Jónsson, er verst reyndist honum o. m.
fl., ól mörg börn upp, bæði konur og karla, og kom
þeim til manns, svo sem síra Jóni Andréssyni í Arnar-
bæli, síra Agli Eldjárnssyni á Utskálum, Erlendi Niku-
lássyni, síðar heyrara á Hólum; hafði hann þann sið,
að skilja svo við hvert fósturbarn, hvort það var karl