Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Síða 13
13
nefnd hvorttveggja, Æverlingar og Húnröðlingar. f>ar
næst er það óvíst, hvort Húnröðlingar er sama ætt
sem kyn Hafliða. f>ar sem Húnröðlinga er getið, má
rekja ætt þeirra til Húnröðar, föður Jóns Húnröðarson-
ar, en eigi lengra, og er því líklegt, að það sé sá hinn
sami Húnröðr, sem ættin er kend við; en vér vitum
eigi hvers son sá Húnröðr var; en með engu móti
hefir hann verið sami maðurinn og afi Hafliða, því að
Jón Húnröðarson lifðiásíðari hluta 12-aldar1, en Hún-
röðr Véfröðarson var samtíða Hallfreði vandræðaskáldi
og Sigurði biskupi, er var með Olafi Tryggvasyni, og
hefir Gunnlaugr munkur sagt frá viðureign hans og
Sigurðar biskups í Olafssögu sinni, er hann ritaði á
latínu2; hefir Gunnlaugr eflaust haft sögu sina frá
ættmönnum Hafliða. í Sturlungu og Guðmundar sögu
er getið um deilur Jóns Húnröðarsonar og þórðar ív-
arssonar frá þorkelshóli (1184)3; lýkur þeim málum
svo, að þórðr gjörir Jón Húnröðarson sekan skógar-
mann. J>að eru nú allar líkur til þess, að þ>órðr þessi
hafi verið bróðir J>orsteins þess, sem gaf Snorra Sturlu-
syni Æverlingagoðorð, sonur ívars þórðarsonar Hafliða-
sonar Mássonar. A það bendir bæði tíminn, sem hann
lifði á, bærinn, sem hann býr á, í nágrenni við Breiða-
bólstað, þar sem Hafliði hafði búið, og það að nafni
1) Sturl. 1878. IV, 9. k. (I. b. 100,—102. bls.).
2) Fms. III. b. 20. og 169.—170. bls. Hallfreðar s. 10.
k. (Leipz. 1860, 109. bls.).
3) St. 1878. IV. 9. (I. b. 101.—102. bls.), Biskupa s. I.,
427. bls. þórðr hefir verið Ivarsson en eigi Másson, og
er hann þó nefndur svo í Sturlungu á einum stað, en tvisvar
Jvarsson (eptir útg. Guðbr. Vigfússonar). I Sturl. 1878, IV.
13. k. (I. b., 106. bls.) er getið um lát Bergþórs þórðarsonar
á Stangarfola, og nefnir útgáfa Guðbr. Vigfússonar föðurBerg-
þórs þórð Einarsson, en í handritinu B (Á.M. 122 A) stend-
ur Ivarsson, og svo hefir Resensbók (Biskupa s, I. b., 435.
bls.), og er þetta eflaust sami maðurinn og þórðr frá þor-
kelshóli.