Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1881, Side 40
40
en ekki eins glitrandi og kökukolanna, þau er harð-
ari en kökukolin, og brotna í flísar. f>au bráðna ekki
í köku, þegar þeim er brent, og heldur ekki gefa
þau frá sér eins mikið gas eins og kökukolin; einnig
kviknar ekki eins fljótt í flísakolunum, og þau þurfa
meiri loptsúg, ef þau eiga að loga, en þau gefa af
sér sterkan og jafnan hita, eru þau því opt höfð til
eldsneytis við gufuvélar. Ekki loga þau í opnum eld-
stóm eins vel og kökukolin, en i lokuðum ofnum má
vel hafa þau til eldsneytis.
Cannelkol eða Parrotkol eru svört eðagrásvört að
lit; gljái þeirra er litill eða þvínær enginn ; þau brotna
í skelbrot eða flísabrot. f>au eru þétt, hörð og þung,
og gefa frá sér mikið gas, þegar þeim er brent, og
því eru þau einkum höfð til gasgjörðar. í>egar búið
er að ná úr þeim gasinu, verður eptir coke, sem þá
er hafður og notaður eins og sá coke, sem fæst úr
kökukolunum. þ>au eru kölluð Cannel- eða Candle-kol
(kertiskol) af því, að ef maður tekur af þeim þunna
mola, og kveikir á þeim, þá loga þeir eins og kerti.
f>að má fága þau, eins og lignit, og eru opt búnir til
úr þeim ýmsir smíðisgripir, t. a. m. tóbaksdósir, blek-
byttur, perlur og fleiri skrautgripir.
4. Anthracit er hin elzta af öllum kolategundum,
og finnst hann neðst í kolalögunum. í Norður-Ameríku
og sunnarlega í Wales á Englandi er mikið af þess-
ari kolategund. f>essi kol eru hörðust, þéttust og
þyngst af öllum kolum; þau eru járnsvört að lit, hafa
málmgljáa opt með regnboga bliki (iridescent), og
brotna í skelbrot. f>að kviknar seint í þeim; þau vilja
springa í stykki þegar þau hitna, brenna með rauðri
glóð, en með litlum eða engum loga ; þau þurfa mjög
mikinn loptsúg, en hita fjarska mikið; eru þau mjög
mikið höfð við gufuvélar, til að draga út málma, og
til að bræða þá, sem og til ýmislegs annars verknaðar.