Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1903, Page 22

Eimreiðin - 01.09.1903, Page 22
i82 að vonum þá tilurð eða staðreynd, að skipulegur heimur (kosmos) með lifandi og siðlega batnandi verum skuli framþróast úr þvílíku frumefni. En dýpri kensl á hlutföllum náttúrunnar birtir oss, að heimurinn er kosmos, sem hefir sín ákveðnu og óbreytilegu lög, og að þau lög eru alveg eins verulegir (real) frumpartar náttúr- unnar eins og hinir áþreifanlegu. Peir eru eigi til út af fyrir sig, eða koncret, en þó verulega (realt) til, og enda meiri þýðing- ar en virkileiki námskynjaðra hluta. Kosmos er eigi einungis ein ógnar-heild ótölulegra atóma (frumagna) og heilla sólna og hnatta, heldur birta hinir smágjörvari veíir hans, að niður að hinu allra smæsta nær samfeld heild dásamrar niðurröðunar, sem full er lífs og staðfestu og gædd er glöggum og skynjanlegum einkunnum. Heimurinn hefir objektleik, þ. e.: hann hefir sjálfstæða tilveru, óháða því, sem vér hugsum hann sé. Hann er eigi eins og vér myndum oss hann í huga vorum, heldur hljótum vér að hugsa oss hann — læra að hugsa oss hann, eins og hann er, og hegða oss þar eftir.1 Þessar eru meginstaðhafnir vísindanna, sem jafnvel hver mað- ur ætti að þekkja, sem eigi hefir minstu vísindaþekkingu. Ein- ungis þær verur standast þróunar framrásina til lengdar, sem sam- kvæmt þeim sannleik breyta. Pannig gróðursettu menn og bundu sannleikann í siðareglum, þegar áður en vísindin kunnu að rök- 1 Höfundurinn bendir stundum í ritum sínum á stærðfræðina sem ljósasta dæmi þess, hversu eðlislög tilverunnar hljóti að vera allsherjar-nauðsyn háð, o: eilíf; t. d. margföldunartaflan, eða líkingin (a—b)2, o. s. frv. ígyði (enþeismi) kennir alstaðar-íbúð guðs, en í heiminum (ekki fyrir utan hann). Algyði (panþeismi) kennir, að guð sé sama sem heimurinn. Polyþeismi er = marggyði, eins og hjá Rómv. og Grikkjum. Löggyði (nomoþeismi) kennir, að lög náttúrunnar ög eðli sé bæði opinberanir guðs og partar hans veru. Eingyði (monoþeismi) er sú fræði, að til sé einn guð, bæði yfir heiminum og í honum, og er hann venjulega hugsaður sem persóna með mannkenningu — eiginleikum (í æðsta skilningi). Þó gilda engar þessar ummerkingar um hin fornu, afar-dulu trúarbrögð Austurasíumanna, sízt Búddatrúna. í^eirra hugsjónir um guðdóminn skilja nálega engir fræðimenn hinna vestlægu landa, þ. e. þeim ber aldrei saman um þær. Pósitívistar og margir yngri fræðimenn eru hættir við ídealisma eða súbjekt- ívisma Kants, sem áleit, að enda þótt menn hlyti að trúa objektívri tilveru heims og hluta, þá gæti menn eigi þekt fyrir víst meira en sínar eigin reyndir og hugmyndir um hlutina. »Das Ding an sich« (hlutinn í sjálfu sér) gæti enginn þekt né sannað. það er númmalismi. Nú hafa menn þótzt sjá, að súbjektið (maður sjálfur) er líka objekt, og kemst að eðli allra hluta fyrir lögmál formsins, sem skapar hlut- ina, og er þeirra raison d’ étre. (Pýð.).

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.